Fréttablaðið - 21.11.2016, Side 2
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
ÖLL BRAUÐ Á
25%
AFSLÆTTI
ALLA MÁNUDAGA
• Austurströnd 14
• Dalbraut 1
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
PREN
TU
N
.IS
www.bjornsbakari.is
Skref í átt til stjórnarmyndunarVeður
Hæg norðlæg átt og dálítil él austan-
lands, suðlægari og él norðvestanlands,
en annars léttskýjað. Frost yfirleitt 0 til 5
stig. sjá síðu 20
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, gekk ákveðnum skrefum inn í hús Alþingis í gær til að ræða við fulltrúa fjögurra annarra flokka um
myndun nýrrar ríkisstjórnar. Síðar um daginn samþykktu þingflokkarnir fimm að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður. Fréttablaðið/Eyþór
stjórnsýsla Lilja Alfreðsdóttir
utanríkisráðherra hyggst nota rúmar
1,8 milljónir króna af sérstöku ráð
stöfunarfé sínu sem ráðherra í kaup
á tölvum fyrir ráðuneytið sjálft.
Í yfirliti yfir starfsemi ráðuneytisins
í október vísar Lilja til könnunar sem
Fréttablaðið sagði frá í vor og sýndi
mikla óánægju starfsmanna. Við því
mætti bregðast. Hún hafi ákveðið
að láta kaupa fartölvur fyrir þær
1.848.030 krónur sem eftir væru af
ráðstöfunarfénu.
„Þegar græjurnar koma í hús fá
stjórnendur ráðuneytisins það verk
efni að koma þeim í notkun með
réttum og sanngjörnum hætti,“ segir
í bréfi ráðherra. – gar
Ráðherrafé í
nýjar tölvur
lilja
alfreðsdóttir
utanríkisráðherra.
BjÖrGun Ein fjölmennasta leitar
aðgerð Landsbjargar frá upphafi fór
fram um helgina er um 450 björg
unarsveitarmenn, frá nær öllum
landshornum, leituðu Friðriks Rúnars
Garðarssonar sem skilaði sér ekki til
byggða eftir rjúpnaveiði á Héraði á
föstudagskvöld.
Friðrik fannst heill á húfi fyrir
hádegi í gær. Álíka mannmargar leitir
hafa allar spannað lengra leitartíma
bil.
„Það bættist um metri af snjó við
á meðan við vorum að leita. Landið
var erfitt yfirferðar sökum þess auk
þess að mikið var um bratta, kjarr og
kletta,“ segir Sveinn Halldór Odds
son Zoëga, formaður svæðisstjórnar
á Austurlandi.
Rauði krossinn opnaði hjálparstöð
á Egilstöðum fyrir leitarmenn. Þar
gistu yfir hundrað manns.
„Það var strax tekin ákvörðun
um að hefja fjölmenna leit og sífellt
bætt í til að tryggja að á svæðinu
væri óþreytt fólk að leita,“ segir Þor
steinn Gunnarsson, upplýsingafulltrúi
Landsbjargar. „Menn voru ekki von
litlir um að hann fyndist á lífi.“
Friðrik var vel útbúinn að öðru leyti
en því að hann skorti fjarskiptatæki.
Hann gróf sig í fönn í tvær nætur. Með
honum í för var labradorhundur en
þeir héldu hita hvor á öðrum í mesta
kuldanum.
„Þetta var allur tilfinningaskalinn,“
segir Garðar Sigurvaldason, faðir Frið
riks Rúnars. Garðar var í Reykjavík
þegar hann fékk fréttir af leitinni á
föstudag og flaug austur morguninn
eftir. „Maður var agalega kvíðinn,
lystar laus og ómögulegur. Hugur
manns flakkaði frá fullkominni björg
un yfir í það að maður myndi ekki sjá
hann aftur.“
Garðar var í stjórnstöðinni á Egils
stöðum þegar fréttin um fund sonar
hans barst þangað.
„Maður hafði ímyndað sér hræði
lega hluti og gríðarlega ógnvekjandi
verkefni fram undan. Sem betur fer
snerist það í eintóma hamingju. Ég
nánast „flikkflakkaði“ aftur á bak,
öskraði og veinaði,“ segir Garðar.
Það sem snart Garðar mest var að
vinir sonar hans flykktust á Egilsstaði.
Menn komu frá Dalvík, Akureyri, Sel
fossi, Vestmannaeyjum og Reykjavík
að ógleymdum þyrluskíðamönnum
úr Skíðadal. Markmið fararinnar var
að veiða rjúpu og það tókst. „Hann
veiddi eina rjúpu sem hann notaði
sem kodda í báðum snjóbyrgjunum,“
segir Garðar. johannoli@frettabladid.is
Hafði einu rjúpuna sem
hann veiddi sem kodda
Um 450 björgunarsveitarmenn víða af landinu leituðu um helgina að rjúpna-
skyttu sem skilaði sér ekki til byggða. Maðurinn fannst heill á húfi í gærmorgun
eftir tvær nætur í snjóbyrgjum. Faðir hans kveðst þá hafa veinað af feginleik.
saMFÉlaG Frú Eliza Reid, vel
gjörðarsendiherra SOS, veitti í
gær Fjölskylduviðurkenningu
SOS Barnaþorpanna. Viður
kenningin féll Miðstöð foreldra
og barna í skaut fyrir ötult starf
í þágu fjölskyldna hér á landi.
Miðstöðin sérhæfir sig í tengsla
eflandi meðferð fyrir verðandi
foreldra og ungbörn.
Samtímis var eiginmaður Elizu,
Guðni Th. Jóhannesson forseti,
staddur á Landspítalanum í Foss
vogi. Þar fór fram minningarathöfn
um þá sem látist hafa í umferðar
slysum. – jóe
Veitti SOS-viðurkenningu
þetta er í fyrsta skipti sem fjölskylduviðurkenning SOS er afhent. Fréttablaðið/Eyþór
Maður hafði ímynd-
að sér hræðilega
hluti og gríðarlega ógnvekj-
andi verkefni framundan.
Garðar Sigurvaldason, faðir rjúpnaskytt-
unnar sem týndist og fannst.
Fjölskylda Friðriks rúnars tók á móti honum við landspítalann í Fossvogi eftir að
þyrla landhelgisgæslunnar lenti með hann. Fréttablaðið/FriðriK þór
2 1 . n ó v e M B e r 2 0 1 6 M á n u D a G u r2 F r É t t i r ∙ F r É t t a B l a ð i ð
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
C
-2
3
4
C
1
B
5
C
-2
2
1
0
1
B
5
C
-2
0
D
4
1
B
5
C
-1
F
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K