Fréttablaðið - 21.11.2016, Page 4
Beltone Legend™
Enn snjallara
heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust
beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis
heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki
lánað til reynslu.Bel
to
ne
L
eg
en
d
ge
ng
ur
m
eð
iP
ho
ne
6
s
og
e
ld
ri
ge
rð
um
, i
Pa
d
A
ir,
iP
ad
(4
. k
yn
sl
óð
),
iP
ad
m
in
i m
eð
R
et
in
a,
iP
ad
m
in
i
og
iP
od
to
uc
h
(5
. k
yn
sl
óð
) m
eð
iO
S
eð
a
ný
rr
a
st
ýr
ik
er
.
A
pp
le
, i
Ph
on
e,
iP
ad
o
g
iP
od
to
uc
h
er
u
vö
ru
m
er
ki
s
em
ti
lh
ey
ra
A
pp
le
In
c,
s
kr
áð
í
Ba
nd
ar
ík
ju
nu
m
o
g
öð
ru
m
lö
nd
um
.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
HEYRNARSTÖ‹IN
HEILBRIGÐISMÁL Tvisvar á síðustu
tíu árum hefur það gerst að læknir
hefur skoðað sjúkraskýrslu einstakl-
ings án þess að hafa til þess ástæðu.
Þetta kemur fram í svari Landspítal-
ans við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Fyrir skemmstu birti Persónu-
vernd ákvörðun í máli sem laut
að kvörtun fyrrverandi eiginkonu
læknis á spítalanum. Taldi konan
að hann hefði skoðað sjúkraskrá
hennar þrátt fyrir að hún hefði
bannað honum það. Skilnaður
þeirra hefði verið harkalegur og
læknirinn hefði í hyggju að nota
gögnin í annarlegum tilgangi. Lækn-
irinn hafði skoðað skýrslu hennar í
fjórgang og hafði gildar skýringar í
þrjú þeirra skipta. Honum var veitt
áminning fyrir brot sitt af spítal-
anum. Ákvörðun Persónuverndar
fólst í því að fela spítalanum að setja
reglur um aðgang starfsmanna að
skýrslum fjölskyldumeðlima eða
fyrrverandi fjölskyldumeðlima.
„Á Landspítala gilda skýrar reglur
um aðgangsheimildir starfsmanna
að heilsufarsupplýsingum. Regl-
urnar eiga við um alla starfsmenn,
hvort sem þeir eru aðstandendur
sjúklinga eða ekki,“ segir Ólafur
Baldursson, framkvæmdastjóri
lækninga á spítalanum.
Gildir sú meginregla að starfs-
maður skal aðeins leita eftir upp-
lýsingum sem hann þarf í tengslum
við starf sitt, í þágu sjúklings eða
í öðrum lögmæltum tilgangi. Í
reglum spítalans er kveðið á um
aðgangsstýringu og eftirlit með
aðgengi starfsmanna að upplýsing-
um sem leita spítalans.
„Aðgangur heilbrigðisstarfs-
manns að heilsufarsupplýsingum í
sjúkraskrá er skráður hverju sinni
þannig að hægt er að rekja hverjir
hafa farið inn á hverja sjúkraskrá.
Sérstök eftirlitsnefnd með notkun
sjúkraskrár starfar við Landspítala
og annast hún í samstarfi við upp-
lýsingatæknideild eftirlit með því
hvernig upplýsingar eru sóttar í
tölvukerfi spítalans og hvort það
sé í samræmi við gildandi aðgangs-
heimildir,“ segir Ólafur.
Brot á reglunum varða áminningu
eða brottrekstri úr starfi auk kæru
ef um lögbrot er að ræða. Persónu-
vernd hafa verið kynntar þessar
reglur spítalans. – jóe
Læknar tvisvar skoðað sjúkraskýrslur í óleyfi
Strangar reglur og aðgangsstýringar
eru á Landspítalanum um aðgang að
sjúkraskýrslum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ólafur Baldursson,
framkvæmdastjóri
lækninga
VIÐSkIptI Ísland er eina norræna
landið þar sem útflutningur eykst
meira en í löndum Evrópusam-
bandsins samkvæmt nýrri skýrslu
frá hagstofum Norðurlandanna fimm
og OECD sem ber saman útflutnings-
tölur Norðurlandanna.
Skýrslan er kostuð af Norrænu
ráðherranefndinni. Hún verður birt í
dag og helstu niðurstöður kynntar á
ráðstefnu í Kaupmannahöfn.
Útflutningur Norðurlanda er
sem fyrr ívið minni en útflutningur
aðildarríkja Evrópusambandsins.
Árið 2015 nam heildarútflutningur á
vörum og þjónustu á Norðurlöndum
557 milljörðum evra, sem er 38 millj-
örðum minna en árið 2012. Útflutn-
ingstölur eru hins vegar á hraðri
uppleið á Íslandi. Frá 2008 hefur
útflutningur á vörum og þjónustu til
alþjóðamarkaða aukist um meira en
80 prósent. Árið 2015 flutti Svíþjóð út
fyrir hæsta fjárhæð eða yfir 200 millj-
arða evra, Ísland flutti út fyrir minnst
eða 8,1 milljarð evra.
Böðvar Þórisson, skrifstofustjóri
fyrirtækjasviðs Hagstofu Íslands,
segir grunninn að þessari vinnu hafa
verið að eftir hrun fóru menn að sjá
að útflutningshneigð ríkja virtist hafa
áhrif á þróun vinnumarkaðar og hag-
kerfis eftir hrun.
„Ríkin sem voru með meiri útflutn-
ing voru líklegri til að ná bata hratt,"
segir Böðvar.
Böðvar bendir á að útflutn-
ingur hafi sérstaklega aukist á
Íslandi ef þjónusta er skoðuð. Á tíma-
bilinu 2010 til 2014 jókst útflutningur
á þjónustu um 42 prósent – sem er
langtum meiri aukning en á hinum
Norðurlöndunum. Til samanburðar
jókst útflutningur á þjónustu í lönd-
um Evrópusambandsins um 29 pró-
sent. Útflutningur þjónustu var 48
prósent af heildarútflutningi, saman-
borið við 37 prósent árið 2008.
„Við fórum í vinnu um að skoða
hvort Norðurlöndin væru ólík, og
niðurstaðan var að þetta eru misjöfn
lönd. Vöxturinn í þjónustu á Íslandi
hefur verið gríðarlegur, hann hefur
vaxið um 63 prósent á árunum 2010
til 2015,“ segir Böðvar.
Skýrslan sýnir að Ísland er það
Norðurlandanna sem er mest háð
útflutningi. Samtals flutti Ísland út
þjónustu fyrir 3,2 milljarða evra árið
2014, sem samsvarar 25 prósentum af
landsframleiðslu.
Bandaríkin eru mikilvægasti
útflutningsmarkaður íslenskra
fyrirtækja. Um 17 prósent af öllum
útfluttum vörum og þjónustu voru
seld til Bandaríkjanna árið 2014.
Um 23 prósent voru seld til Norður-
landanna árið 2013. Samgöngur og
ferðaþjónusta eru mikilvægustu
útflutningsgreinarnar í þjónustu-
geiranum og voru 70 prósent af öllum
þjónustuútflutningi Íslands árið 2014
í þessum tveimur greinum.
„Norðurlöndin eru mjög ólík. Á
Íslandi hefur bati á vinnumarkaði að
miklu leyti komið til af þjónustu við
ferðamenn. Sem dæmi var meðal-
fjöldi launþega í farþegaflutningum í
flugi árið 2015 2.600, samanborið við
1.900 launþega að meðaltali í fram-
leiðslu málma, sem er sami fjöldi og
bara atvinnugreinin þjónusta við
flug. Ferðaþjónustan hefur komið inn
sem öflug atvinnuskapandi grein eftir
hrun,“ segir Böðvar.
Þetta er í fyrsta sinn sem unnin er
ítarleg samanburðargreining á milli-
ríkjaviðskiptum með vörur og þjón-
ustu frá Norðurlöndunum. Skýrslan
inniheldur einnig greiningu á stærð
og eignarhaldi norrænna fyrirtækja
sem byggja afkomu sína á útflutningi
á vörum og þjónustu.
saeunn@frettabladid.is
Fremst Norðurlanda í útflutningi
Útflutningur hefur aukist um meira en 80 prósent frá 2008 á Íslandi. Ísland er eina norræna landið þar sem
útflutningur eykst meira en í löndum ESB. Ísland flutti út fyrir 8,1 milljarð evra árið 2015.
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015
200
180
160
140
120
100
80
60
n Ísland
n Evrópusambandið
n Svíþjóð
n Danmörk
n Noregur
n Finnland
Þróun á útflutningi frá 2008-2015Ferðaþjónustan
hefur komið inn
sem öflug atvinnuskapandi
grein eftir hrun.
Böðvar Þórisson,
skrifstofustjóri
fyrirtækjasviðs
Hagstofu Íslands
SýRLand Tillaga frá Sameinuðu
þjóðunum um að binda enda á
átökin í Aleppo með því að borgin
fái sjálfsstjórn hefur verið hafnað af
sýrlensku stjórninni að því er segir
á vef BBC.
Samkvæmt áætlun SÞ áttu upp-
reisnarmenn að halda austurhluta
Aleppo gegn því að draga stríðs-
menn sína til baka. Utanríkisráð-
herra Sýrlands, Walid al-Muallem,
sem hitti sendinefnd SÞ í gær,
sagði hugmyndina brjóta í bága
við fullveldi Sýrlands. – gar
Ekki sjálfsstjórn
fyrir Aleppo
Hörmungar í Aleppo. NORDICPHOTOS/AFP
Samgöngur og ferðaþjónusta voru 70 prósent af öllum þjónustuútflutningi Íslands
árið 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÞýSkaLand Angela Merkel til-
kynnti í gær að hún myndi bjóða
sig fram fyrir Kristilega demókrata
til embættis kanslara í fjórða sinn
í Þýskalandi á næsta ári.
Engin mörk eru á því hve mörg
kjörtímabil þýskir kanslarar geta
setið. Bæti Merkel fjórða tíma-
bilinu við mun hún jafna met
Helmuts Kohl sem var kanslari í
sextán ár. – us
Merkel vill vera
fjögur ár enn
Angela Merkel,
kanslari Þýska-
lands
2 1 . n ó V E M B E R 2 0 1 6 M Á n U d a G U R4 f R é t t I R ∙ f R é t t a B L a Ð I Ð
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
C
-3
7
0
C
1
B
5
C
-3
5
D
0
1
B
5
C
-3
4
9
4
1
B
5
C
-3
3
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K