Fréttablaðið - 21.11.2016, Blaðsíða 8
Hlíðasmára 8 | Skipholti 70 | Spönginni 13
Sími 554 7200 | hafid@hafid.is |
HAF
IÐ
FISKVERS
LU
N
10
ára
Jólahumar
Sælkeraverslun
Aðeins
9.900 kr. kg.
heilbrigðismál Vegna fjárskorts
hefur aðeins reynst mögulegt að
sinna fjórðungi þess utanhúss-
viðhalds sem verkfræðistofan
Efla taldi aðkallandi á byggingum
Landspítalans árið 2013 – alls 70
talsins.
Árið 2013 vann verkfræðistofan
Efla fyrir Landspítala úttekt á öllu
húsnæði spítalans, viðgerðar-
þörf og áætlaði kostnað. Sett var
upp þriggja ára viðhaldsáætlun.
Skýrslan náði aðeins til utan-
hússviðhalds bygginga en Land-
spítali hefur notað þessa úttekt
sem grunn í sinni áætlanagerð
síðustu árin, en vegna fjárskorts
ekki komist nándar nærri eins
hratt í verkefnin og áætlun Eflu
gerði ráð fyrir.
Með úttektinni taldi Efla að
komin væri þokkaleg heildar-
mynd á ástand mannvirkja í eigu
Landspítala, og kostnaðurinn
metinn á þrjá milljarða króna að
núvirði.
I n g ó l f u r Þ ó r i s s o n , f ra m -
kvæmdastjóri rekstrarsviðs LSH,
segir að 300 milljónir hafi verið
settar í utanhússviðhald árin
2014, 2015 og 2016. Það sé um
þriðjungur þess sem tiltekið var í
úttekt Eflu en myndin hafi breyst
nokkuð síðan. Einstakar viðhalds-
aðgerðir hafa reynst umfangs-
meiri en reiknað var með. „Ætli
svona fljótt á litið megi ekki áætla
að við höfum náð um fjórðungi af
því sem lagt var upp með,“ segir
Ingólfur sem áréttar að skýrslan
nái í engu til viðhaldsþarfar
innan húss.
„Fjárframlag til viðhalds á Land-
spítala hefur verið aukið tölu-
vert síðustu þrjú árin, en það er
eftir langt tímabil þar sem bygg-
ingarnar voru sveltar áratugum
saman. Það hefur því safnast upp
mikill hali sem við erum að vinna
niður,“ segir Ingólfur og bætir við
að alls ekki sé um sparnað að ræða
því viðhaldsþörfin hverfur ekki.
Ódýrast sé til lengdar að sinna við-
haldi bygginga jafnt og þétt árlega.
„Ef viðhald er dregið lengi er
hætta á lekum og þar með til-
heyrandi skemmdum innanhúss
og möguleika á mygluvexti innan
bygginganna. Það er ekki þar með
sagt að allur mygluvöxtur sé vegna
þess að viðhald hefur ekki verið
viðunandi, við höfum líka dæmi
um að ný hús hafa verið það illa
byggð að raki hefur safnast upp í
þeim og mygla gert vart við sig,“
segir Ingólfur. svavar@frettabladid.is
Viðhaldsféð dugir hvergi nærri
Á síðustu þremur árum hefur náðst að sinna fjórðungi þeirrar viðhaldsþarfar bygginga LSH sem verkfræðistofa
taldi aðkallandi 2013. Fjárskortur er skýringin sem fyrr þó gefið hafi verið í miðað við áratugina á undan.
Viðgerðir á Landakoti standa yfir og eru langt komnar í þessum áfanga. FréttabLaðið/ViLheLm
Það hefur því
safnast upp mikill
hali sem við
erum að vinna
niður.
Ingólfur Þórisson,
framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs LSH
NOregUr Norska lögreglan hefur
sektað borgaryfirvöld í Ósló um 2
milljónir norskra króna, eða um 26
milljónir íslenskra króna, fyrir að hafa
ekki kortlagt þörf konu fyrir heima-
hjúkrun eftir að hún var send heim af
sjúkrastofnun. Konan svalt til bana og
fannst ekki fyrr en 16 dögum eftir að
hún lést.
Konan var flutt heim af sjúkra-
stofnuninni í janúar 2015. Hún fannst
látin á heimili sínu haustið 2015 og
var dánarorsökin vannæring.
Borgaryfirvöld eiga nú í viðræðum
við lögregluna um upphæð sektar-
innar. – ibs
Send heim og
svalt til bana
samgöNgUr Vegagerðin hefur varað
við efni sem brotnar upp úr slitlagi á
vegum á Austurlandi.
„Vegfarendur á milli Egilsstaða og
Norðfjarðar eru varaðir við mögu-
legum slitlagsblæðingum og að
slitlagskögglar sem brotna af bílum
geta verið varasamir, sérstaklega er
varað við kaflanum milli Eskifjarðar
og Norðfjarðar,“ segir í tilkynningu
á vef Vegagerðarinnar. Mikilvægt
sé að draga úr hraða þegar bílar mæt-
ast. „Skoðið dekkin áður en haldið er
í langferð og hreinsið með dekkja-
hreinsi ef vart verður við tjöru.“ – gar
Varað við
vegum á
Austurlandi
blæðing í slitlagi. FréttabLaðið/Pjetur
iNDlaND Minnst 115 eru látnir og
um 150 slasaðir eftir að lest fór
út af sporinu í norðurhluta Uttar
Pradesh-héraðs á Indlandi í gær.
Fjöldi látinna jókst jafnt og þétt í
allan gærdag. Líklegt er talið að sú
þróun gæti haldið áfram í dag.
Björgunarmenn unnu allan
daginn í gær að því að draga lík
og slasaða úr vögnunum fjórtán
sem fóru af sporinu. Slysið varð
skammt frá þorpinu Pukhrayan.
Uttar Pradesh er í norðurhluta
Indlands við landamærin að
Nepal.
Orsök slyssins er ókunn en ind-
verskir miðlar, þar á meðal Times
of India, hafa gert því skóna að
sködduðum teinum hafi verið um
að kenna. Slysið átti sér stað klukk-
an þrjú að nóttu að staðartíma.
Farþegar sem komust lífs af lýsa
því hvernig þeir hrukku upp með
andfælum við mikið högg. Sjónin
sem blasti við þeim í birtingu hafi
verið skelfileg. Flestir hinna látnu
voru í fremstu tveimur vögnunum
en þeir ultu þegar lestin fór út af
sporinu.
Hluti vagnanna er afar illa farinn
sem gerir björgunarmönnum erfitt
um vik með að komast að hinum
særðu. Klippum hefur verið beitt
en illa hefur gengið að láta þær ná
í gegnum vagnana.
Slysið er fimmta mannskæðasta
lestarslys í sögu Indlands. Lestar-
kerfi landsins er hið þriðja lengsta
í heimi og brúkað af um 22 millj-
ónum farþega daglega. Mörg þús-
und manns deyja í slysum tengd-
um lestum ár hvert og til dæmis
fórust rúmlega 27.500 í slíkum
slysum árið 2014. – jóe
Fimmta mannskæðasta lestarslys í sögu Indlands er 115 létust
Lestarslys eru tíð á indlandi og dauðsföll tengd lestum algeng. FréttabLaðið/ePa
Lestarkerfi Indlands er
hið þriðja lengsta í heimi og
brúkað af um 22 milljónum
farþega daglega.
2 1 . N ó v e m b e r 2 0 1 6 m á N U D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
C
-4
5
D
C
1
B
5
C
-4
4
A
0
1
B
5
C
-4
3
6
4
1
B
5
C
-4
2
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K