Fréttablaðið - 21.11.2016, Side 9
Isavia boðar til morgunfundar þann 23. nóvember næstkomandi í Þingsölum á Hótel Reykjavík Natura kl. 8:30.
Á fundinum verður kynnt farþegaspá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll fyrir árið 2017, farið yfir framkvæmdir á flug
vellinum og þróun ferðaþjónustunnar í nánustu framtíð. Í spánni kemur m.a. að aukning ferðamanna yfir vetrartímann
verður mun meiri en áður hefur verið sem staðfestir að ferðaþjónustan á Íslandi er orðin að heilsársatvinnugrein.
Dagskrá
— Björn Óli Hauksson,
forstjóri Isavia ávarpar fundinn
FA R Þ E G A S PÁ 2 0 1 7
— Hlynur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar
FJ Á R F E S T I N G A R O G F R A M K VÆ M D I R
Á K E F L AV Í K U R F L U G V E L L I 2 0 1 7
— Guðmundur Daði Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Tækni og eignasviðs Keflavíkurflugvallar
F Y R I R S P U R N I R Ú R S A L
Í M I K L U M M E Ð B Y R G E T U R V E R I Ð Ó K Y R R Ð
— Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
LOKAORÐ
— Björn Óli Hauksson
Boðið verður upp á kaffi og létta morgunhressingu.
S K R Á N I N G Á F U N D I N N F E R F R A M Á :
I S AV I A . I S/ M O R G U N F U N D U R
M O R G U N F U N D U R I S A V I A
— F E R Ð A Þ J Ó N U S T A N Á R I Ð U M K R I N G
F A R Þ E G A S P Á
K E F L A V Í K U R -
F L U G V A L L A R 2 0 1 7
1
6
-3
3
8
3
-
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Landbúnaður Ólafur Stephensen,
formaður Félags atvinnurekenda,
gagnrýnir harðlega skipun Gunnars
Braga Sveinssonar landbúnaðarráð-
herra í samráðshóp um endurskoðun
búvörusamninga. Bændasamtök
Íslands eiga þrjá fulltrúa og atvinnu-
vegaráðuneytið fimm af tólf full-
trúum í nefndinni.
„Þetta er glötuð stjórnsýsla. Við
atkvæðagreiðslu í þinginu kom fram
vilji þingsins að efna til þjóðarsam-
tals um stefnu í landbúnaðarmálum
með því að kalla til breiðan hóp hags-
munaaðila til að móta stefnuna upp á
nýtt í breiðri sátt,“ segir Ólafur „Fyrir
það fyrsta klúðrar ráðherra form-
legu hliðinni með að vera mánuði of
seinn að skipa hópinn. Þegar hann
hefur svo skipað í nefndina kemur í
ljós að hann hefur hunsað mikilvæga
hagsmunaaðila, til að mynda Félag
atvinnurekenda sem hefur haft sig
hvað mest í frammi í þessari umræðu
um landbúnaðarmál.“
Í tilkynningu frá atvinnuvegaráðu-
neytinu þann 21. október síðastliðinn
segir að kveðið sé á um í lögunum að
tryggja skuli aðkomu afurðastöðva,
atvinnulífs, bænda, launþega og neyt-
enda að endurskoðuninni. Afurða-
stöðvar eiga hins vegar engan fulltrúa
í nefndinni.
„Þegar ráðherra samþykkir að veita
launþegahreyfingunni tvo fulltrúa
fjölgar hann í nefndinni úr sjö í tólf.
Samt sem áður er ekki pláss í nefnd-
inni fyrir talsmenn innflytjenda land-
búnaðarafurða. Atvinnulífið situr
eftir með aðeins einn fulltrúa,“ segir
Ólafur. – sa
Segir nefndarskipun ráðherra dæmi um glataða stjórnsýslu
Fulltrúar bænda eiga þrjá fulltrúa í nefndinni. Fréttablaðið/GVa
Tækni Færri prófa ný snjallforrit
fyrir síma (e. app) og neytendur
halda sig við að nota þau forrit sem
þeir eru nú þegar með. Þetta eru
niðurstöður sem greiningardeild
hugbúnaðarfyrirtækisins Adobe
hefur birt.
Á meðal helstu niðurstaðna sem
greiningardeildin komst að er að
tuttugu prósent fleiri snjallforrit
voru gefin út á öðrum ársfjórðungi
þessa árs en á sama tímabili árið
2015. Hins vegar fjölgaði sóttum
forritum einungis um sex prósent.
Þá segir í niðurstöðunum að
fimm af hverjum tíu snjallforritum
séu opnuð að meðaltali sjaldnar en
tíu sinnum eftir að neytandi hefur
halað þau niður í síma sinn. Þar af
eru tvö af hverjum fimm einungis
opnuð einu sinni.
Niðurstöðurnar byggja á 290
milljörðum heimsókna á yfir sextán
þúsund vefsíður og á niðurhalstöl-
um 85 milljarða snjallforrita. – þea
Sífellt færri
prófa ný
snjallforrit
Facebook og Whatsapp eru vinsæl
snjallforrit. Nordicphotos/aFp
EðLisfræðingurinn Stephen Hawk-
ing lítur ekki björtum augum á mögu-
leika okkar jarðarbúa til lengri tíma.
Að því er segir á vef danska dagblaðs-
ins Politiken sagði Hawking í fyrir-
lestri í Oxfordháskóla, þar sem hann
er prófessor, að jörðin verði óbyggileg
eftir eitt þúsund ár.
Mun Hawking hafa spáð því að
loftslagsbreytingar, stríð, mengun,
vírusar og önnur óáran af manna-
völdum nauðbeygi mannkynið til
að leggja undir sig aðra hnetti – ef
Homo sapiens eigi að lifa af sem
tegund. Reyndar hafa vísindamenn
þegar augastað á plánetunni Proxima
b sem er á braut um stjörnuna Alpha
Centauri.
Hawking segir að jörðin gæti enst
okkur meira en áðurnefnd eitt þús-
und ár, jafnvel tíu þúsund ár en að
útkoman sé nánast óumflýjanleg. – gar
Jörðin ónýt
eftir þúsund ár
Ólafur stephensen,
framkvæmdastjóri
Félags atvinnu-
rekenda
stephen hawking. Nordicphotos/aFp
f r é T T i r ∙ f r é T T a b L a ð i ð 9M Á n u d a g u r 2 1 . n ó v E M b E r 2 0 1 6
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
5
C
-3
7
0
C
1
B
5
C
-3
5
D
0
1
B
5
C
-3
4
9
4
1
B
5
C
-3
3
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K