Fréttablaðið - 21.11.2016, Side 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og
glæsileik
i
endalaus
t úrval af
hágæða
flísum
Finndu okkur
á facebook
Kirkjunnar fólk á Íslandi hefur væntingar til RÚV. Það æskir þess að útvarp allra landsmanna sé vettvang-ur miðlunar frá helgum og stórhátíðum kristninnar.
Ekki er langt síðan útvarpsstjóri og dagskrárstjóri Rásar
eitt brugðust vel við þessu ákalli og ákváðu að halda á dag-
skrá rótgrónum dagskrárliðum Rásar eitt, morgunbæn og
helgihaldi sunnudagsins. Til viðbótar við morgunbænina
er nú tvinnuð útlegging á orði dagsins, sem áður var að
kvöldi. Biskupsstofa hefur að beiðni stjórnenda RÚV tekið
að sér að skipuleggja þessa dagskrárliði í samstarfi við dag-
skrárstjóra. Í því samstarfi höfum við unnið að því að bæta
útvarpsefnið og gera það aðgengilegra. Biskupsstofa er í
góðum tengslum við söfnuði kirkjunnar, innan þjóðkirkju
og utan, við að sinna þessu mikilvæga verkefni. Helgihald
sunnudagsins skartar gjarnan fjölbreyttri tónlist, framúr-
skarandi kórum, organistum og hljóðfæraleikurum og
útleggingu á kærleiksboðskap kristninnar sem á erindi við
hverja manneskju.
Þjóðkirkjan ber þær skyldur umfram aðra kristna
söfnuði á Íslandi að tryggja þjónustu um land allt.
Kirkjunni ber að þjóna fólki jafnt í miðborg Reykjavíkur
sem í hinum dreifðu byggðum landsins og þær skyldur
axlar hún. Það er fólkið í hverri sókn sem ber uppi starf
kirkjunnar. Því má segja að kristin kirkja sé ein stærsta
sjálfboðaliðahreyfingin á Íslandi. Kirkjunnar fólk er stöð-
ugt að eflast að fagmennsku og fjölbreytileika. Sem dæmi
um það má líta til framtaks Hjálparstarfs kirkjunnar sem
hefur að leiðarljósi í öllu sínu starfi, innanlands og utan,
að styðja fólk til sjálfshjálpar. Fram undan er jólasöfnun
Hjálparstarfs kirkjunnar sem hefst með guðsþjónustu í
Hallgrímskirkju í upphafi kirkjuársins, á fyrsta sunnu-
degi í aðventu, 27. nóvember nk. kl. 11. Frá því helgihaldi
verður útvarpað í RÚV allra landsmanna, á Rás eitt.
Fólkið í kirkjunni sækist m.a. eftir þeirri andlegu nær-
ingu sem kirkjan hefur upp á að bjóða. Sú næring veitir
frið í órótt hjarta, von þar sem vonleysi blasir við, trú
þegar tilgangur lífsins virðist vandséður og kærleika þegar
napurt er. Starfið eflir félagsauðinn og gerir samfélagið
betra í sveit og borg. Samstarf kirkju og RÚV er dýrmætt í
þessu ljósi og þakkarvert að RÚV skuli vera farvegur hins
góða boðskapar. Það er eins með helgihaldið og aðra góða
dagskrárliði RÚV að unnt er að nálgast þá í hlaðvarpinu.
Helgihaldið í RÚV
Þorvaldur
Víðisson
biskupsritari
Helgihald
sunnudags-
ins skartar
gjarnan
fjölbreyttri
tónlist,
framúrskar-
andi kórum,
organistum
og hljóðfæra-
leikurum.
Það þarf að
leita leiða til
þess að vinna
með einstakl-
inga fremur
en vandamál
og byggja fólk
upp til lengri
tíma fremur
en að fleyta
því yfir versta
hjallann
hverju sinni.
Dáið er allt án drauma / og dapur heim-urinn“, segir í Barni náttúrunnar eftir Halldór Laxness. Það er bók uppfull af sannindum og speki eins og títt er með góðar bækur sem bera með sér aflið til þess að gera okkur að betri mann-
eskjum. Vonandi vilja allir verða betri manneskjur.
Það er gott og göfugt markmið í lífinu.
Í síðasta helgarblaði Fréttablaðsins var viðtal Krist-
jönu Guðbrandsdóttur blaðakonu við konu sem er án
efa góð manneskja. Hún heitir Vilborg Oddsdóttir,
félagsráðgjafi og þroskaþjálfi, starfar hjá Hjálpar-
stofnun kirkjunnar en er af mörgum kölluð „naglinn“
vegna þess að hún er stöðugt að brjóta sér nýjar leiðir
til þess að aðstoða fólk við að losa sig úr fátæktargildr-
unni. Í kjallara við Grensásveginn tekur hún á móti
fólki sem er við það að missa vonina um betra líf og
byggir það upp til að sigrast á erfiðleikum sínum og
rjúfa vítahring fátæktargildrunnar.
„Dáið er allt án drauma / og dapur heimurinn.“ Þessi
orð komu upp í hugann við það að lesa um nálgun Vil-
borgar fyrir skjólstæðinga sína. Hennar nálgun gengur
nefnilega út á að vera með einstaklingsmiðaða þjón-
ustu og hlusta eftir draumum þeirra sem leita til sam-
takanna eftir aðstoð. Blása lífi í drauma fólks og vonir,
byggja það upp til þess að gera því kleift að skapa sér
betra líf og rjúfa vítahring fátæktarinnar.
Þegar vel tekst til er ávinningurinn gríðarlegur og
ekki einvörðungu bundinn við þá manneskju sem
eignast betra líf, þó að slíkt sé auðvitað markmiðið, og
fullnægjandi áfangi í sjálfu sér. Árangurinn skilar sér
líka til samfélagsins í formi skattgreiðslna og að við-
komandi einstaklingur og mögulega fjölskyldur þeirra
eru ekki lengur háð hinu opinbera um framfærslu og
skammtímalausnir með umtalsverðum kostnaði.
„Hér er ég ekki bundin af kerfinu,“ segir Vilborg um
það að starfa fremur innan Hjálparstofnunar kirkj-
unnar en á vegum hins opinbera eða borgarinnar og
hún bætir við: „Ég get hjálpað fólki með víðtækari
úrræðum. Ég get gert meira.“ Þetta er umhugsunar-
efni fyrir okkur öll því þetta felur það í sér að innan
kerfisins getur hún ekki gert nóg. Það segir okkur að
við sem stöndum að baki því kerfi sem er svo stjórnað
af stjórnmála- og embættismönnum þurfum að gera
betur. Það þarf að leita leiða til þess að vinna með ein-
staklinga fremur en vandamál og byggja fólk upp til
lengri tíma fremur en að fleyta því yfir versta hjallann
hverju sinni.
Innan kerfisins starfar fjöldinn allur af góðum
manneskjum en því miður virðist staðan vera þannig
að þetta góða fólk er bundið af takmörkunum kerfis-
ins. Takmörkuðu fjármagni, takmörkuðum tíma og
takmörkunum reglugerða og skammtímahugsunar.
Því væri óskandi að samfélagið og stjórnmálin legðu
hlustir við því sem Vilborg hefur að segja, því það er
mikilvægt. Því þeim mun fleiri einstaklinga sem við
byggjum upp til betra lífs fyrir tilstilli drauma þeirra,
þeim mun betra samfélag munum við öll eiga og þá
verður vonandi ekki dapur heimurinn hjá nokkurri
manneskju í litlu en efnuðu landi.
Án drauma
Fyrsta prófið?
Þingflokkur Pírata ætlar að óska
eftir því að grasrót flokksins
breyti um stefnu til að hægt sé að
koma þessari ríkisstjórn á kopp-
inn. Það sem þeir hafa áður kallað
„ófrávíkjanlega kröfu“ mun nú
kallast skoðun sem hægt er að
eiga við. Píratar hafa viljað að ráð-
herrar segðu af sér þingmennsku
sinni til að efla þingræðið í
landinu. En nú á að breyta þessu.
Þeir kjósendur sem kusu Pírata
til að efla þingræðið í landinu
verða því að bíta í það súra epli
að flokkurinn ætli sér líklega að
skipta um stefnu, tæpum mánuði
eftir kosningar.
Völd og valdaleysi
Ríkisstjórnarflokkarnir
gömlu, Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðis flokkur, munu ef
þessi ríkisstjórnarmyndun ber
árangur, verða einir í minnihluta
á næsta kjörtímabili. Fylgismenn
þeirra auk núverandi og fyrr-
verandi þingmanna flokkanna
hafa keppst við að finna þessum
fimm flokkum allt til foráttu
síðustu daga. Er það nema von að
flokkum, sem hafa verið bróður-
partinn af síðasta aldarfjórðungi
saman í ríkisstjórn, sé í nöp við
þetta fyrirkomulag. Það gæti
orðið áhugavert að sjá flokk-
ana tvo reyna að vinna saman í
stjórnarandstöðu, þegar engin
völd eða stólar halda þeim sam-
stilltum. Ætli sami samhljómur
verði með þeim í minnihluta og í
meirihluta? sveinn@frettabladid.is
2 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m Á n U D A G U r12 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
C
-1
E
5
C
1
B
5
C
-1
D
2
0
1
B
5
C
-1
B
E
4
1
B
5
C
-1
A
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K