Fréttablaðið - 21.11.2016, Qupperneq 13
s p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ð
sport
Sigurvegari Valgerður er hér brosmild enda verið að tilkynna henni um sigur í fyrsta bardaga hennar á ferlinum mynd/árni torfason
Ég gat ekki hætt að brosa
Valgerður Guðsteinsdóttir varð um helgina fyrsta íslenska konan til þess að keppa sem atvinnumaður í
hnefaleikum. Atvinnumannsferill hennar fer vel af stað því hún var með mikla yfirburði í bardaganum.
Hún ætlar sér stóra hluti eða sjálfan heimsmeistaratitilinn. Valgerður hefur æft hnefaleika í rúm sex ár.
hneFALeikAr „Mér líður rosalega
vel. Mjög sátt eftir góða uppskeru,“
segir Valgerður Guðsteinsdóttir
himinlifandi er íþróttadeild heyrði
í henni frá Svíþjóð í gær. Hún var þá
enn í sjöunda himni eftir frábæra
byrjun á atvinnumannsferli sínum.
Hún mætti þá hinni sænsku
Angelique Hernandez sem var að
keppa sinn þriðja atvinnumanns
bardaga. Hún hafði unnið einn bar
daga og tapað einum. Annað tapið
kom í Stokkhólmi á laugardag því
hún átti aldrei möguleika gegn val
kyrjunni frá Íslandi.
mikill andlegur undirbúningur
Það var ekki að sjá neitt stress á
okkar konu sem tók strax völdin í
bardaganum og kýldi Hernandez
niður í fyrstu lotu. Yfirburðir Val
gerðar héldu áfram út bardagann og
hún vann yfirburðasigur á stigum.
„Það er búinn að vera langur and
legur undirbúningur og stífar æfing
ar síðustu vikur. Þetta er ákveðinn
léttir og mér líður vel að hafa upp
skorið nákvæmlega eins og ég vildi,“
segir Valgerður en það var ekkert
stress í henni í Stokkhólmi.
„Mér leið mjög vel er ég labbaði
inn í hringinn. Ég var ótrúlega glöð
og gat ekki hætt að brosa. Ég var svo
ánægð yfir því að þetta væri loksins
að gerast. Það var smá jákvætt stress
sem vann með mér,“ segir Valgerður
og skellir upp úr er hún rifjar upp
þessa eftirminnilega stund.
„Allar loturnar gengu mjög vel og
ég er yfir mig ánægð að hafa sýnt
svona góða frammistöðu. Ég kýldi
hana tvisvar niður. Það skipti mig
engu máli hvort ég kláraði hana á
stigum eða rothöggi. Það sem mér
fannst skipta máli var að sýna góða
frammistöðu.“
Eins og gefur að skilja var mikið
spennufall eftir bardagann en
hvernig hélt hún upp á sigurinn?
„Við fórum út að borða. Ég fékk
mér góða nautasteik og sósu. Það
hefur verið lítið um sósur síðustu
vikur. Svo var bara slakað á áður en
ég sofnaði vel. Það var mjög gott.“
Elskar áskoranir
Valgerður er 31 árs gömul og er
búin að æfa hnefaleika síðan í lok
ársins 2009. „Ég sá að þetta var
íþrótt sem myndi henta mér vel.
Þetta er spennandi og krefjandi
íþrótt. Allt sem fær mig til að vaxa
finnst mér heillandi. Ég reyni að
taka áskorunum,“ segir Valgerður
en hún spilaði fótbolta sem barn
en svo ekkert þar til hún fór í hnefa
leikana.
Hún þreytti ellefu áhugamannabar
daga á sex árum og það gekk vel hjá
henni. Valgerður sá þá að hún hefði
erindi í að fara lengra í íþróttinni.
„Ég er búinn að hugsa alvarlega
um þetta í tvö ár. Það krefst mikils
undirbúnings ef maður vill gera
þetta vel og þá er betra að bíða
aðeins og vanda til verka. Ég er að
æfa mjög mikið. Tvisvar og stundum
þrisvar á dag. Ég reyni samt að æfa
skipulega og skynsamlega. Ég er líka
í tveimur störfum þannig að þetta
tekur allan minn aukatíma,“ segir
Valgerður sem er gift en barnlaus.
Þau hjónin eru með hund sem Val
gerður segist ætla að sinna vel er
hún kemur heim. Eiginmaðurinn
var með henni úti er hún keppti.
„Hann er spenntur þegar ég keppi
en hann veit alveg hvað ég get. Hann
hefur því ekki miklar áhyggjur af
mér í hringnum.“
Valgerður á sér stóra drauma og
fer ekkert leynt með það. „Ég er
búin að sýna mig og sanna og held
að ég eigi að fá góðan bardaga næst.
Ég ætla mér alla leið í þessu og það
er heimsmeistaratitill. Ég á alveg
góðan möguleika á því. Ég hef mikla
trú á mér.“ henry@frettabladid.is
hneFALeikAr Þungavigtarkappinn
Kolbeinn Kristinsson er enn ósigr
aður í átta bardögum.
Kolbeinn mætti að þessu sinni
Archil Gigolashvili og Georgíu
maðurinn hafði ekkert að gera í
hringinn gegn Garðbæingnum.
Kolbeinn mun stærri og með lengri
faðm. Kolbeinn nýtti sér stunguna
vel til að halda Georgíumanninum
frá sér og í annarri lotu kom Kol
beinn þungu skrokkhöggi á Gigol
ashvili sem felldi hann. Hann komst
ekki á fætur fyrr en dómarinn hafði
blásið bardagann af. Kolbeinn vann
því á tæknilegu rothöggi.
„Ég og þjálfararnir mínir vorum
búnir að leggja upp það plan að
vinna með vinstri stunguna og nýta
hana til að stilla upp fyrir skrokk
högg. Sú áætlun gekk óaðfinnanlega
upp því strax í fyrsta skrokkhögginu
fór hann á hné og lét telja sig úr bar
daganum. Hann vildi greinilega ekki
meira,“ sagði Kolbeinn. – hbg
Enn og aftur
rothögg
Kolbeinn gengur inn í hringinn.
Valgerður æfir 2-3 á dag. mynd/snorri björnsson
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
5
C
-2
8
3
C
1
B
5
C
-2
7
0
0
1
B
5
C
-2
5
C
4
1
B
5
C
-2
4
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K