Fréttablaðið - 21.11.2016, Blaðsíða 14
2 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m Á n U D A G U r14 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Það er greinilega aldrei of seint að segja sorrí
Eftir sápuóperu síðustu mánaða var Yaya Touré mættur aftur í byrjunarlið Manchester City gegn Crystal Palace í fyrradag. Fílabeinsstrendingurinn minnti heldur betur á
sig og tryggði Man City sigurinn með tveimur mörkum. Virkilega sæt endurkoma hjá miðjumanninum eftir allt fjaðrafokið undanfarnar vikur.
FótboLti Margir ráku upp stór augu
þegar byrjunarlið Manchester City
birtist um klukkutíma fyrir leikinn
gegn Crystal Palace á laugardaginn.
Tíu af ellefu nöfnum á blaði komu
lítið á óvart. En athygli vakti að
Yaya Touré var óvænt mættur aftur
í byrjunarlið Man City í fyrsta sinn
í deildarleik síðan 23. apríl á þessu
ári og í fyrsta sinn undir stjórn Peps
Guardiola. Og Touré þakkaði traust-
ið og skoraði bæði mörkin í 1-2 sigri
Man City.
Mikið rifrildi
Fátt benti til þess Touré ætti aftur-
kvæmt í lið Man. City eftir atburði
síðustu mánaða. Mikið hefur gengið
á að tjaldabaki á Etihad en ásakanir
hafa gengið á víxl á milli Guardiola
og Touré, eða öllu heldur umboðs-
manns Fílabeinsstrendingsins,
Dimitri Seluk. Það er sami maður og
kvartaði sáran í fjölmiðlum eftir að
Touré fékk ekki köku frá Man City á
31 árs afmælinu sínu.
Rússneski umboðsmaðurinn fór
mikinn eftir að Guardiola valdi
Touré ekki í Meistaradeildarhóp
Man. City og kvartaði sáran yfir
illri meðferð Spánverjans á skjól-
stæðingi sínum.
Reiður umboðsmaður
„Ef hann [Guardiola] vinnur
Meistaradeildina þetta tímabilið
mun ég fara til Englands og segja
í sjónvarpi að Pep Guardiola sé
besti knattspyrnustjóri í heimi,“
sagði Seluk. „En ef City mistekst að
vinna Meistaradeildina vona ég að
Guardiola hafi kjark til að segja að
Leikmaður helgarinnar
Victor Anichebe skoraði tvívegis þegar Sunderland vann 3-0
sigur á Hull City á Leikvangi ljóssins. Þetta var annar sigur
Sunder land í röð en lærisveinar Davids Moyes eru komnir
upp úr botnsætinu og eru aðeins þremur
stigum frá öruggu sæti. Staðan er því örlítið
bjartari en fyrir tveimur vikum þegar Sunder-
land virtist dæmt til að falla.
Hinn 28 ára gamli Anichebe spilaði undir stjórn
Moyes hjá Everton og Skotinn náði í sinn gamla
lærisvein í byrjun september. Anichebe er ekki
beint þekktur markaskorari en í 186 deildarleikjum
fyrir Everton og West Brom skoraði hann aðeins 24
mörk. Þessi stóri og sterki framherji virðist hins vegar
finna sig vel hjá Sunderland og hefur skorað þrjú mörk í
síðustu tveimur leikjum liðsins sem hafa báðir unnist.
Þessi mörk frá Anichebe eru vel þegin en þau létta álaginu
af hinum 34 ára gamla Jermain Defoe sem hefur nánast
einn síns liðs haldið Sunderland uppi undanfarin tvö
tímabil. Gamli maðurinn tekur þessari aðstoð við
markaskorun eflaust fegins hendi.
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Eftir fjögur jafntefli í
röð vann Tottenham
loks sigur, og það á
dramatískan hátt í
Lundúnaslag gegn West
Ham. Hamrarnir voru 1-2 yfir þegar
mínúta var til leiksloka en tvö
mörk á þremur mínútum frá Harry
Kane tryggðu Spurs stigin þrjú.
Kane er búinn að skora þrjú mörk
í tveimur leikjum síðan hann sneri
aftur á völlinn eftir meiðsli.
Hvað kom á óvart?
Markahæsta liði
deildarinnar, Liver-
pool, tókst ekki að
skora gegn Southamp-
ton. Í síðustu tveimur leikjum á
undan skoraði Liverpool samtals
tíu mörk. Liverpool var sterkari
aðilinn á St. Mary’s og átti miklu
fleiri marktilraunir en inn vildi
boltinn ekki. Liverpool hélt samt
hreinu í þriðja sinn í
deildinni í vetur.
Mestu vonbrigðin
Jöfnunarmark
Seamus Coleman
mínútu fyrir leikslok bjargaði Ever-
ton frá tapi gegn fallkandídötum
Swansea. Eftir frábæra byrjun á
tímabilinu hefur Everton fatast
flugið og liðið hefur aðeins unnið
einn af síðustu sjö leikjum sínum.
það hafi verið rangt af honum að
niðurlægja frábæran leikmann eins
og Yaya.“
Guardiola hafði lítinn húmor fyrir
þessari gagnrýni Seluks og sagði að
Touré myndi ekki spila aftur fyrir
Man City fyrr en hann og umboðs-
maðurinn bæðust afsökunar.
Um tveggja mánaða störukeppni
lauk loks fyrr í mánuðinum þegar
Touré baðst afsökunar á framferði
sínu og umboðsmannsins.
Guardiola tók afsökunarbeiðnina
greinilega góða og gilda og valdi
Touré í byrjunarliðið fyrir leikinn
gegn Palace. Og miðjumaðurinn
minnti hressilega á sig. Þegar sex
mínútur voru til hálfleiks sendi
Touré boltann á Nolito, fékk hann
aftur og skoraði með skoti sem hafði
viðkomu í varnarmanni Palace.
City-menn voru ekki upp á sitt
besta á Selhurst Park og Conor
Wickham jafnaði metin fyrir
Palace á 66. mínútu. En lærisveinar
Guardiola héldu áfram og sjö mín-
útum fyrir leikslok skoraði Touré
sigurmarkið af stuttu færi eftir horn-
spyrnu Kevins De Bruyne. City fékk
stigin þrjú, þökk sé manninum sem
virtist ekki eiga sér neina framtíð
hjá félaginu fyrir nokkrum vikum.
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 12. umferðar 2016-17
Man. Utd. - Arsenal 1-1
1-0 Juan Mata (68.), 1-1 Olivier Giroud (89.).
Stoke - Bournemouth 0-1
0-1 Nathan Ake (26.)
Southampt. - Liverpool 0-0
C. Palace - Man. City 1-2
0-1 Yaya Toure (39.), 1-1 Connor Wickham
(66.), 1-2 Yaya Toure (83.).
Watford - Leicester 2-1
1-0 Etienne Capoue (1.), 2-0 Roberto Per-
eyra (12.), 2-1 Riyad Mahrez, víti (15.).
Sunderland - Hull 3-0
1-0 Jermain Defoe (34.), 2-0 Victor Ani-
chebe (62.), 3-0 Victor Anichebe (84.).
Everton - Swansea 1-1
0-1 Gylfi Þór Sigurðsson, víti (41.), 1-1 Seam-
us Coleman (89.)
Tottenham - West Ham 3-2
0-1 Michail Antonio (24.), 1-1 Harry Winks
(51.), 1-2 Manuel Lanzini, víti (68.), 2-2 Harry
Kane (89.), 3-2 Harry Kane, víti (91.).
Middlesbrough - Chelsea 0-1
0-1 Diego Costa (41.).
West Brom - Burnley
Lokaleikur umferðarinnar fer fram klukkan
20.00 í kvöld og verður í beinni útsendingu
á Stöð 2 Sport.
FÉLAG L U J T MÖRK S
Chelsea 12 9 1 2 27-9 28
Liverpool 12 8 3 1 30-14 27
Man. City 12 8 3 1 27-11 27
Arsenal 12 7 4 1 25-12 25
Tottenham 12 6 6 0 18-8 24
Man. Utd. 12 5 4 3 17-14 19
Everton 12 5 4 3 16-14 19
Watford 12 5 3 4 17-20 18
B’mouth 12 4 3 5 14-16 15
S’ton 12 3 5 4 12-12 14
Burnley 11 4 2 5 11-15 14
WBA 11 3 4 4 12-15 13
Stoke 12 3 4 5 13-19 13
Leicester 12 3 3 6 14-20 12
M’brough 12 2 5 5 10-13 11
Crystal P. 12 3 2 7 17-21 11
West Ham 12 3 2 7 13-23 11
Hull 12 3 1 8 10-27 10
Sunderland 12 2 2 8 12-21 8
Swansea 12 1 3 8 11-22 6
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Swansea City
Gylfi Þór Sigurðsson
Skoraði úr vítaspyrnu í
1-1 jafntefli við Everton. Á
sama tíma vann Sunderland og því
er Swansea komið í botnsætið. Gylfi
fiskaði vítið sjálfur. Þetta var þriðja
mark hans á tímabilinu.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Lék allan tímann í 3-2
heimasigri á Huddersfield.
Cardiff er í 21. sæti, tveimur stigum
frá fallsæti.
Wolverhampton Wanderers
Jón Daði Böðvarsson
Lék sem fremsti maður í
markalausu jafntefli við
Preston. Wolves hefur ekki unnið
leik í tæpa tvo mánuði.
Fulham
Ragnar Sigurðsson
Stóð vaktina í vörn Fulham
sem gerði 1-1 jafntefli við
Sheff. Wed á heimavelli. Jöfnunar-
mark Fulham kom í uppbótartíma.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Spilaði allan tímann í
hjarta varnarinnar þegar
Bristol tapaði 1-0 fyrir Birmingham.
Þriðja tap Bristol í fimm leikjum.
Yaya Touré átti magnaðan leik fyrir Man. City og svaraði á réttan hátt eftir allt fjaðrafokið. Hér fagnar hann um helgina og mátti svo sannarlega við því að fagna miðað við frammistöðuna sem hann bauð upp á. FRÉTTABLAðið/GETTY
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
C
-2
D
2
C
1
B
5
C
-2
B
F
0
1
B
5
C
-2
A
B
4
1
B
5
C
-2
9
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K