Fréttablaðið - 21.11.2016, Blaðsíða 15
fólk
kynningarblað 2 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m Á n U D A G U r
Hönnunarfyrirtækið unga, Happie
Furniture, er hugmynd hjónanna
Hafsteins Helga Halldórssonar og
Guðrúnar Öglu Egilsdóttur. Í sam-
einingu hanna þau borð af ýmsum
stærðum og gerðum, yfirleitt sam-
kvæmt óskum hvers viðskiptavin-
ar, auk þess að smíða ýmis önnur
húsgögn og innanstokksmuni. Guð-
rún Agla lýsir tilurð fyrirtækisins
sem hálfgerðri tilviljun. „Ég var
í Listaháskólanum að læra arki-
tektúr og Hafsteinn hefur verið að
smíða síðan hann var lítill strákur.
Við smíðuðum saman eldhúsborð
og sófaborð fyrir heimili okkar
og gestir okkar byrjuðu strax að
spyrja hvort við gætum gert eins
borð fyrir þau. Þannig fór boltinn að
rúlla. Við vinnum vel saman, ég ber
gott skynbragð á fegurð í hönnun og
Hafsteinn þarf alltaf krefjandi og
spennandi verkefni sem leysa þarf
með aðstoð sköpunargáfunnar.“
Árið er búið að vera mjög anna-
samt að sögn Hafsteins en á sama
tíma mjög skemmtilegt. „Við vorum
að klára risastórt stækkanlegt borð
sem gert er úr einum hnotudrumbi
en börkurinn er enn á jöðrum þess.
Meðal annarra nýlegra verkefna má
nefna 28 ný borð fyrir veitingastað-
inn Sólon. Það var ótrúlega gaman
að smíða þau en borðin eru mjög
hlýleg og skemmtileg þar inni. Einn-
ig höfum við verið að vinna fyrir
yndislegu hjónin sem eiga Karl-
menn herrafataverslun sem er að
flytja ofar á Laugarveginum. Þau
opna bráðum og hlökkum við til
að sjá verslunina fullkláraða. Um
helgina vorum við á Akureyri að
leggja lokahönd á nýtt Axelsbakarí.
Það er einnig búið að vera ótrúlega
skemmtilegt verkefni sem sækir
bæði innblástur til eldri tíma og nú-
tímans, allt frá stólum að afgreiðslu-
borðinu. Við erum gífurlega spennt
að sjá endanlega útkomu.“
Allt handgert
Borð er kannski ekki lífsnauðsyn-
legur hlutur að þeirra sögn en þó
fara helstu samverustundir fjöl-
skyldunnar yfirleitt fram við borð.
„Því er hægt að gera þann tíma enn
ánægjulegri með fallegu borði enda
í eðli okkar að hafa hreiðrið fallegt.
Við sjáum á viðskiptavinum okkar
hvað þeir eru ánægðir með að geta
ráðið útliti borðsins og stærðinni
upp á millimetra en slík þjónusta
býðst svo sannarlega ekki hvar sem
er. Einnig er þetta líka allt handgert
á Íslandi svo margir í samfélaginu fá
að njóta góðs af.“
Það eru næg verkefni fram undan
í vetur sem þau hlakka mikið til að
takast á við. „Um þessar mundir
erum við að klára verkefnið með
Axels bakaríi og svo eru fleiri verk-
efni í vændum á Akureyri sem við
ætlum að huga að í lok vetrar. Á
verkstæðinu erum við að vinna
að stöndum fyrir dýrindis súkku-
laði sem Nói Siríus er að fara með
á stærstu súkkulaðisýningu í heimi.
Einnig erum við að gera færanleg-
an bar fyrir íslenskt fyrirtæki sem
ætlar að byrja á að flytja hann með
sér til Barcelona.“
Aðspurð um helstu áhrifavalda
segja þau helstu hugsunina vera
að sameina manninn og náttúruna.
„Okkur þykir mikilvægt að náttúr-
an fái að minna á sig og teljum við
okkur geta gert það með borðunum
okkur. Að vera með borð frá okkur á
heimili er því svolítið eins og að vera
með náttúruna inni á heimilinu.“
Skoða má hönnun Happie Furni
ture á facebook og Instagram
(happiefurniture)
NáttúrAN miNNir á sig
Eftir að Hafsteinn Helgi og Guðrún Agla höfðu smíðað eldhúsborð og sófaborð fyrir heimili sitt vildu vinir þeirra eignast
eins borð. Því stofnuðu þau saman fyrirtækið Happie Furniture og verkefnin eru næg framundan.
Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík
S: 58 58 900-
www.jarngler.is
Fyrirtæki - Húsfélög
—————————
Við bjóðum upp á
sjálfvirkan hurða-
opnunarbúnað ásamt
uppsetningu og
viðhaldi
Auðveldar aðgengi, hentar vel fyrir
aðgengi fatlaðra.
Áratuga reynsla af búnaði
tryggir gæðin.
Lesa bara FBL
68%
Lesa bæði
FBL OG MBL
21%
Lesa bara MBL
11%
89%
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild : Prentmiðlamæling Gallup júl.-sep. 2016
„Við sjáum á viðskiptavinum okkar hvað þeir eru ánægðir með að geta ráðið útliti borðsins og stærðinni upp á millimetra,“
segja Hafsteinn Helgi og Guðrún Agla hjá Happie Furniture. MYNDIR/ERNIR
Xlaga fætur bjóða upp á mikið fótapláss og eru fallegir
fyrir augað. Borðplatan er unnin úr einum og sama hnotu
drumbnum.
Undirbúningur fyrir súkkulaðisýningu í Köln í fullum gangi.
Stækkun á hnotu. Borðið í límingu.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Happiehillan nýtur mikilla vinsælda.
Hægt er að fá hana í hvaða stærð sem er.
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
5
C
-3
B
F
C
1
B
5
C
-3
A
C
0
1
B
5
C
-3
9
8
4
1
B
5
C
-3
8
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K