Fréttablaðið - 21.11.2016, Side 16
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
marý ólafsdóttir rekur eigið hönnunarstúdíó í stokkhólmi undir heitinu marý. mynd/mary
„Þetta hefur bæði bein og óbein
áhrif þar sem þeir sem kannski
þekkja vöruna fá hvatningu til að
nálgast hana og svo auðvitað kynn-
ir þetta vöruna fyrir gríðarlega
stórum markhópi í gegnum Zara-
síðuna. Svona birting hefur mikið
að segja og það hefur strax sýnt sig,
bæði ýtt undir sölu hjá mér og svo
fæ ég fréttir frá vinum og vanda-
mönnum hér og þar í heiminum
sem hafa tekið eftir þessu, sem er
skemmtilegt,“ segir Marý Ólafsdótt-
ir, vöruhönnuður en vara eftir hana,
Ský, prýðir auglýsingar á barna-
fatalínu tískurisans Zara.
Hollenska stílfyrirtækið April
And May sá um hönnun kynningar-
efnisins á barnafatalínu Zara og
hafði samband við Marý.
„April And May er eitt af mínum
uppáhalds Instagram-fyrirtækj-
um. Þau voru svo hrifin af vörunum
mínum og vildu endilega nota skýið
í þessa herferð. Þetta er ótrúlega
skemmtilegt tækifæri.“
Marý er búsett í Stokkhólmi og
hefur rekið eigið hönnunarfyrirtæki
undir nafninu Marý frá árinu 2007.
Hún segir nóg að gera og finnst best
að hafa mörg járn í eldinum í einu.
„Það er oftast mikið í gangi hjá
mér í einu og þannig vil ég hafa það.
Ég er að vinna í veitingastað sem
verður opnaður hvað úr hverju hér
í Stokkhólmi og stefni einnig á að
taka þátt í HönnunarMars á Íslandi
í vor með nýja hliðarverkefnið mitt.
Ég deili vinnustofu með fjölbreytt-
um hópi af skapandi fólki, teikn-
urum, textílhönnuðum, listamönn-
um og vöruhönnuðum. Nú erum við
að undirbúa jóla-popupmarkað og
jólapartí, sem verða um miðjan des-
ember. Ég hlakka mjög mikið til,“
segir Marý.
ertu þá komin í jólaskap? „Hér
í Stokkhólmi hefur reyndar allt
verið á kafi í jólasnjó. Snjórinn er
farinn núna en það var mjög nota-
legt. Annars hef ég lítinn tíma haft
til að hugsa um jólin ennþá og vil
oftast leyfa desember að ganga í
garð áður en ég fer í jólagírinn.
Við fjölskyldan komum til Íslands
um miðjan desember og ég hlakka
mikið til að eiga notalegar stundir
með fjölskyldu og vinum á heimili
okkar í miðbæ Reykjavíkur.“
Hvaða verkefni eru annars teikni-
borðinu hjá þér? „Ég er að vinna
að mjög spennandi verkefni sem
byggir á einfaldleika og „slow de-
sign“, allar vörur eru unnar úr
náttúrulegum efnum og alger-
lega eiturefnalausar. Ég hef allt-
af hugsað um að virða náttúruna
okkar og eftir að hafa búið í Sví-
þjóð í mörg ár, með viðkomu í Los
Angeles, er ég enn meira meðvit-
uð um umhverfi mitt. Mig langar
til að stuðla að hreinni náttúru og
hanna vörur sem fólk getur notið
í áratugi og ganga jafnvel í erfðir
milli kynslóða.“
Nánar má forvitnast um hönnun
Marý á www.mary.is
Undir kids winter collection á
síðunni www.zara.com má svo sjá
Skýið í auglýsingaherferð Zara.
Skýið eFtir Marý í
auglýSingu Zara
Íslensk hönnun rataði inn í auglýsingaherferð tískurisans Zara, Ský eftir
Marý Ólafsdóttur. Hún segir athyglina sem fylgi í kjölfarið hafa mikið
að segja og hafa strax skilað sér. Birtingin sé skemmtilegt tækifæri.
ragnheiður
tryggvadóttir
heida@365.is
„Ég er að vinna að mjög spennandi verkefni sem byggir á einfaldleika og „slow
design“, allar vörur eru unnar úr náttúrulegum efnum og algerlega eiturefnalausar.“
„april and may er eitt af mínum
uppáhalds instagram-fyrirtækjum.
Þau voru svo hrifin af vörunum mínum
og vildu endilega nota skýið í þessa
herferð. Þetta er ótrúlega skemmtilegt
tækifæri.“
2 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m Á n U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X X
Sunnudjass alla sunnudaga kl 20.00
Heimsklassa Djass með frábærum tónlistarmönnum í bruggsalnum okkar.
Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir
Hraðréttur dagsins í hádeginu alla
virka daga 1.690.- kr
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
C
-4
0
E
C
1
B
5
C
-3
F
B
0
1
B
5
C
-3
E
7
4
1
B
5
C
-3
D
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K