Fréttablaðið - 21.11.2016, Side 35
s p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ð 15M Á N U D A G U r 2 1 . N ó v e M B e r 2 0 1 6
MArGir Á Leið Á HM
vöLtUðU yFir NorsArANA
stærstA tApið í 26 Ár
sUND Íslandsmeistaramótið í
sundi í 25 metra laug fór fram í
Ásvallalaug um helgina. Góður
árangur náðist á mótinu og sér-
staklega var ánægjulegt að sjá
hversu margir sundmenn náðu
lágmörkum fyrir HM. Heimsmeist-
aramótið í 25 metra laug fer fram í
Windsor í Kanada í næsta mánuði.
Íþróttamaður ársins, Eygló Ósk
Gústafsdóttir, var mætt til leiks
og vann sínar greinar eins og
búast mátti við. Hún synti undir
HM-lágmarki í 50 metra baksundi
sem hún vann á tímanum 28,13
sekúndum.
Fleiri syntu undir HM-lágmörkum
um helgina.
Kolbeinn Hrafnkelsson náði lág-
marki í 50 metra baksundi er hann
synti á 25,27 sekúndum. Lág-
markið var 25,85 sekúndur.
Jóhann Gerða Gústafsdóttir náði
lágmarkinu í 100 metra fjórsundi
sem hún synti á 1:03,48 mínútum
en hún var um einni og hálfri sek-
úndu undir lágmarkinu. Áður hafði
Jóhanna Gerða náð lágmarkinu í
200 metra fjórsundi.
Kristinn Þórarinsson náði lág-
mörkum í 200 metra fjórsundi og
baksundi um helgina. Áður hafði
hann náð lágmörkum fyrir HM í 50
og 100 metra baksundi.
Kristófer Þórarinsson var svo
síðastur til að ná HM-lágmarki en
það gerði hann í 100 metra skrið-
sundi. Hann synti metrana 100 á
sléttum 50 sekúndum en lágmarkið
er einmitt sléttar 50 sekúndur.
HANDBoLti Valsmenn eru í mjög
góðum málum í 32-liða úrslitum í
Áskorendakeppni Evrópu eftir stór-
sigur, 31-24, á norska liðinu Haslum
um helgina. Þetta var fyrri leikur lið-
anna. Yfirburðir Valsmanna í leiknum
voru miklir og þeir hefðu alveg getað
unnið enn stærri sigur gegn norska
liðinu sem var slakt. Valur var fimm
mörkum yfir í hálfleik, 17-12, og um
tíma leiddu þeir með tíu marka mun
í síðari hálfleik.
„Ég er virkilega ánægður með
sigurinn en eins og leikurinn
spilaðist hefði ég viljað vinna hann
stærra,“ sagði Guðlaugur Arnarsson,
annar þjálfara Vals, við íþrótta-
deild eftir leikinn. „Markvörðurinn
[Trond Tjemsland] var mjög góður
og svo skutum við líka fram hjá og í
stangirnar úr dauðafærum þar sem
við tættum vörnina þeirra í sundur.
Það er mjög jákvætt að vinna sjö
marka sigur en við hefðum getað
unnið þetta stærra. Þetta er bara fyrri
hálfleikur,“ sagði Guðlaugur en seinni
leikurinn fer fram í Noregi eftir viku.
Guðlaugur segir að norska liðið hafi
ekki komið sér á óvart í leiknum
í dag, nema þegar þeir skiptu yfir
í framliggjandi vörn á lokamínút-
unum.
„Við vorum búnir að horfa á þá og
greina vel. Það var lítið sem kom
okkur á óvart. Hann var sterkari
en við reiknuðum með, þessi stóri
vinstra megin [Eirik Köpp],“ sagði
Guðlaugur. – iþs
körFUBoLti Íslenska kvennalandsliðið fékk skell er liðið sótti Slóvakíu
heim um helgina í undankeppni EM.
Slóvakía vann stórsigur, 86-40, en þetta er versta tap liðsins í heil 26 ár.
Síðast tapaði liðið svona illa í október árið 1990 en þá valtaði Danmörk yfir
íslenska liðið með 62 stiga mun.
Þetta var fyrsti leikur íslenska liðsins án Helenu
Sverrisdóttur í tólf ár og hennar var heldur betur
sárt saknað. Alls tapaði íslenska liðið 33 boltum í
leiknum og skoraði aðeins 40 stig eins og áður segir.
Það var ljóst í hvað stefndi strax í fyrsta leik-
hluta er íslenska liðið var komið 20 stigum
undir, 26-6. Besti leikhluti íslenska liðsins var
annar leikhlutinn sem tapaðist með þremur
stigum, 15-12. Munurinn var því 23 stig í
hálfleik, 41-18, og róðurinn heldur betur
þungur eftir fyrstu tuttugu mínútur
leiksins.
Slóvakíska liðið gaf aftur í þeim seinni
og vann þriðja leikhlutann 25-12 og
fjórða leikhlutann 20-10. Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir var stigahæst í íslenska
liðinu með sjö stig en hún gaf einnig
þrjár stoðsendingar. – hbg
Það er greinilega aldrei of seint að segja sorrí
Eftir sápuóperu síðustu mánaða var Yaya Touré mættur aftur í byrjunarlið Manchester City gegn Crystal Palace í fyrradag. Fílabeinsstrendingurinn minnti heldur betur á
sig og tryggði Man City sigurinn með tveimur mörkum. Virkilega sæt endurkoma hjá miðjumanninum eftir allt fjaðrafokið undanfarnar vikur.
„Þetta var frábært því strákarnir
hafa alltaf veitt mér stuðning. Ég
hélt áfram að brosa og vera ein-
beittur,“ sagði Touré himinlifandi
að leik loknum. „Þetta var erfið
staða en ég er mjög glaður og þakk-
látur stjóranum fyrir að leyfa mér
að spila í dag.“
Hvað gerist næst?
Óvíst er hvað verður um hinn 33 ára
gamla Touré, hvort hann fer í janúar
eða næsta sumar, en af leiknum í
fyrradag að dæma hefur hann enn
ýmislegt fram að færa. Hann hefur
ekki sömu hlaupagetu og áður en
hann er ennþá góður í fótbolta og
kann að koma sér í færi og klára
þau. Og ef hann er einbeittur og
tilbúinn að leggja sig fram getur
hann nýst Man City í toppbarátt-
unni.
Guardiola leggur líf og sál í stjóra-
starfið og hann hefur engan tíma
fyrir leikmenn sem eru ekki á fullri
ferð. Það er ólíklegt að Touré komist
upp með að labba um völlinn eins
og hann gerði stundum á síðasta
tímabili. Útileikurinn gegn Arsenal
í desember í fyrra var lýsandi fyrir
síðasta tímabil hjá Touré; hann rölti
um völlinn megnið af leiktímanum
en skoraði samt glæsilegt mark.
Snilldin var enn til staðar en fram-
lagið ekki.
Frábær ferill
Touré hefur reynst Man City
ómetan legur síðan hann kom til
félagsins frá Barcelona sumarið
2010. Á sex árum hans á Etihad
hefur Man City unnið tvo Englands-
meistaratitla, enska bikarinn einu
sinni og deildabikarinn tvisvar.
Touré er einn af bestu leik-
mönnum í sögu Man City og það
stefnir í að vera hans hjá félaginu fái
ánægjulegri endi, hvenær sem hann
verður, en virtist fyrir nokkrum
vikum. ingvithor@365.is
Ég er svo ánægður
fyrir hans hönd.
Hann er indælis náungi.
Hann er núna í kjörþyngd
og það efast
enginn um
hæfileika
hans.
Pep Guardiola, stjóri
Man. City
Enginn miðjumaður
hefur skorað fleiri mörk (59)
í ensku úrvalsdeildinni en
Yaya Touré síðan hann kom
til Manchester City sumarið
2010.
Yaya Touré átti magnaðan leik fyrir Man. City og svaraði á réttan hátt eftir allt fjaðrafokið. Hér fagnar hann um helgina og mátti svo sannarlega við því að fagna miðað við frammistöðuna sem hann bauð upp á. FréTTablaðið/geTTY
eygló Ósk klár í lauginni í gær. FréTTablaðið/eYþÓr
anton rúnarsson
var sterkur í liði
Vals gegn Haslum.
Valur - Selfoss 29-26
Valur: Diana Satkauskaite 9, Díana Dögg
Magnúsdóttir 4, Morgan Marie McDonald 4,
Gerður Arinbjarnar 3, Kristine Vike 3, Kristín
Guðmundsdóttir 2, Sigurlaug Rúnarsdóttir
2, Eva Björk Hlöðversdóttir 1, Vigdís Birna
Þorsteinsdóttir 1.
Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 7,
Perla Ryth Albertsdóttir 7, Kristrún Stein-
þórsdóttir 4, Adian Maria Ghidoarca 4,
Carmen Palamariu 2, Hulda Dís Þrastar-
dóttir 1, Dijana Radojevic 1.
grótta - Stjarnan 20-21
grótta: Laufey Ásta Guðmundsdóttir 4,
Þórey Anna Ásgeirsdóttir 4, Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir 3, Lovísa Thompson 3,
Emma Sardarsdóttir 2, Sunna María Einars-
dóttir 2, Selma Jóhannsdóttir 1, Anna
Stefánsdóttir 1.
Stjarnan: Helena Rut Örvarsdóttir 9, Sol-
veig Lára Kjærnested 4, Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 3, Stefanía Theodórsdóttir 2,
Þorgerður Anna Atladóttir 1, Elena Birgis-
dóttir 1, Rakel Dögg Bragadóttir 1.
Fylkir - ÍbV 26-21
Fylkir: Thea Imani Sturludóttir 9, Christine
Rishaug 5, Hildur Karen Jóhannsdóttir 3,
Hildur Björnsdóttir 3, Þuríður Guðjóns-
dóttir 2, Þórunn Friðriksdóttir 2, Melkorka
Gunnarsdóttir 1, Vera Pálsdóttir 1.
ÍbV: Ester Óskarsdóttir 7, Karólína Bæhrenz
Lárudóttir 5, Ásta Björt Júlíusdóttir 3,
Telma Amado 2, Sandra Sigurðardóttir 2,
Þóra Arnarsdóttir 1, Greta Kavaliuskaite 1.
efri
Fram 19
Stjarnan 15
Haukar 12
Valur 12
Neðri
ÍBV 8
Grótta 6
Selfoss 4
Fylkir 4
Nýjast
Olís-deild kvenna
Áskorendakeppni evrópu
Valur - Haslum 31-24
Valur - Mörk (skot): Anton Rúnarsson 7
(10/1), Josip Juric 7/1 (11/1), Sveinn Aron
Sveinsson 7/2 (13/3), Vignir Stefánsson
4 (6), Ýmir Örn Gíslason 3 (3), Ólafur Ægir
Ólafsson 3 (4).
Varin skot: Hlynur Morthens 16 (40/1, 40%),
Hraðaupphlaup: 6 (Anton, Sveinn, Vignir
3, Ýmir)
Fiskuð víti: 5 (Ýmir, Alexander, Orri Freyr 3)
Utan vallar: 12 mínútur.
Haslum HK - Mörk (skot): Eirik Köpp 7 (10),
Sebastian Barthold 6/1 (9/1), Aksel Horgen
4 (4), Vegard Soerlie Tennfjord 2 (4), Anders
Roe 2 (5), Magnus Soendenaa 2 (7), Sander
Oeverjordet Andreassen 1 (3).
Varin skot: Trond Tjemsland 18/2 (49/5,
37%),
Hraðaupphlaup: 4 (Köpp, Barthold, Horgen
2)
Fiskuð víti: 1 (Roe 1)
Utan vallar: 12 mínútur.
Undankeppni eM
Slóvakía - Ísland 86-40
Ísland: Sigrún Ámundadóttir 7, Pálína
Gunnlaugsdóttir 6, Hallveig Jónsdóttir 4,
Guðbjörg Gunnarsdóttir 4, Ingunn Embla
Kristínardóttir 3, Sandra Þrastardóttir 3,
Ingibjörg Jakobsdóttir 3, Ragna Brynjars-
dóttir 3, Salbjörg Sævarsdóttir 2, Thelma
Ágústsdóttir 2, Berglind Gunnarsdóttir 2,
Emelía Gunnarsdóttir 1.
Í dag
Olís-deild karla
19.50 Wba - burnley Sport
22.00 Messan Sport
Valsmenn gerðu það gott í
Evrópukeppninni í dag.
Síðari leikurinn er veruleg
áskorun. Gaman að sjá
íslensk lið í þessari keppni.
Eina.
Guðjón Guðmundsson
@gaupinn
Sigrún Sjöfn
Ámunda-
dóttir.
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
C
-2
D
2
C
1
B
5
C
-2
B
F
0
1
B
5
C
-2
A
B
4
1
B
5
C
-2
9
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K