Fréttablaðið - 21.11.2016, Side 36
2 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m Á n U D A G U r16 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Þau
helgina
áttu
Rosenborg
Íslendingarnir tvöfaldir
meistarar
Norska liðið Rosen-
borg varð í gær norskur
bikarmeistari eftir 4-0
sigur á Kongsvinger
í úrslitaleik.
Rosenborg er
því tvöfaldur
meistari annað
árið í röð en það
hefur ekkert lið
nokkru sinn afrekað.
Hólmar Örn Eyjólfsson,
Guðmundur Þórarins-
son og Matthías Vil-
hjálmsson leika allir
með liðinu. Hólmar var
í liðinu í gær, Matthías
kom af bekknum en
Guðmundur spilaði
ekki.
Máni og Katrín
Íslandsmeistarar í
kumite
Nýir Íslandsmeistarar
voru krýndir í opnum
flokki í kumite um
helgina. Máni Karl
Guðmundsson
vann opna
flokkinn í fyrsta
skipti og 67 kg
flokkinn. Katrín
Inga Björnsdóttir
vann opna flokkinn hjá
konunum eftir sigur á
Telmu Rut Frímanns-
dóttur sem hafði unnið
opna flokkinn sex ár í
röð. Fylkir vann keppni
liða og Þórshamar varð
í öðru sæti.
Lexi og Gaui
Handboltamenn hjá
Rhein-Neckar Löwen
Alexander Petersson og
Guðjón Valur Sigurðs-
son fóru báðir á kost-
um í liði Löwen sem
lagði Füchse Berlin,
30-25, í þýska bolt-
anum í gær. Alexander
var markahæstur allra
á vellinum með tíu
mörk og Guðjón
Valur Sigurðsson
skoraði átta. Þetta
var sjöundi sigur
Löwen í röð en
liðið er nú í þriðja
sæti þýsku úrvals-
deildarinnar.
krAFtLyFtinGAr Hinn ógnarsterki
Júlían J. K. Jóhannsson keppti um
helgina á sínu fyrsta heimsmeistara-
móti í fullorðinsflokki og stóð sig
heldur betur vel. Hann varð heims-
meistari í réttstöðulyftu og í fimmta
sæti í samanlögðu í +120 kg flokki.
Réttstöðulyftan er besta grein
Júlíans og þar lyfti hann 380 kílóum
sem dugði til heimsmeistaratitils.
Þessi lyfta var jafnframt Evrópumet
unglinga. Hann átti góða tilraun við
390 kíló en það gekk ekki að þessu
sinni.
Júlían reyndi að bæta sinn besta
persónulega árangur í hnébeygju og
bekkpressu en það gekk ekki upp
hjá honum að þessu sinni.
Hann lyfti aðeins byrjunarþyngd í
hnébeygju sem var 385 kíló. Hann á
best 400 kíló þar. Í bekkpressu lyfti
hann 305 kílóum og átti líka ágætis
tilraun við 315 kíló. Samanlagt
lyfti Júlían 1.070 kílóum en heims-
meistarinn í samanlögðu, Blaine
Sumner frá Bandaríkjunum, lyfti
1.200 kílóum.
Þessi árangur Júlíans er auðvitað
frábær og ljóst að hann mun láta að
sér kveða á næstu árum.
Viktor Hólmgeirsson tók einn-
ig þátt á mótinu en hann tók þátt í
-120 kg flokki. Þar lyfti Viktor sléttu
tonni sem skilaði honum í sjötta
sætið. Hann var að keppa á sínu
fyrsta heimsmeistaramóti rétt eins
og Júlían.
Viktor lyfti 375 kílóum í hné-
beygju og bætti Íslandsmet Auðuns
Jónssonar um 10 kíló.
Hann lyfti 307,5 kílóum í bekk-
pressu og í réttstöðulyftunni lyfti
hann 317,5 kílóum og jafnaði þar
með sinn besta árangur í saman-
lögðu. – hbg
Júlían heimsmeistari í réttstöðulyftu
Umhverfisvernd er hluti af samfélagslegri ábyrgð.
Berðu saman plastpoka og fjölnota poka.
Eftir það berðu bara fjölnota poka.
FJÖLNOTA
KOSTAR MINNA
– LÍKA FYRIR UMHVERFIÐ!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
SVARTUR
sterkur og
notadrjúgur120 KR. 150 KR. GRÁR með hólfum fyrir flöskurRAUÐUR léttur og passar í veski180 KR.
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
5
C
-2
8
3
C
1
B
5
C
-2
7
0
0
1
B
5
C
-2
5
C
4
1
B
5
C
-2
4
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K