Fréttablaðið - 21.11.2016, Side 37
möndlur
bláber
trönuber
kotasæla
1
6
-0
2
5
0
-H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Nærandi millimál
… er létt mál
Gríptu með þér kotasælu eða gríska jógúrt
Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með
hreinum grunni og hollum og stökkum toppi.
Kotasæla með berjum og möndlum eða grísk
jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum.
Óneitanlega er ögn farið að fenna yfir minningar manns af bókum Enidar
Blyton – og þó. Voru þetta ekki
Finnur og Dísa og Jonni og Anna,
Georg og Gunnar lögregluþjónn,
Eyrnastór, Doddi og Kidda keila …
Og Kíkí og einhver hundur?
Fimm fræknu
Maður man ekkert hver var hvar
enda hétu þau meira og minna
sömu nöfnum. Man þó að minnsta
kosti að í Fimm-bókunum voru
fjórir krakkar og einn hundur; í
Dularfullu bókunum var Finnur
alltaf að fara í dulargervi og plata
Gunnar lögregluþjón; en yfir
Ævintýrabókunum grúfði einhver
illskilgreinanleg ógn. Í öllum
þessum bókum var mikið borðað
– samlokur með glóaldinmauki, ef
ég man rétt – maður varð gjarnan
mjög svangur af að lesa þetta og fór
fram í eldhús í leit að hinum lokk-
andi glóaldinmauki, en gallinn var
bara sá að maður vissi ekki alveg
hvað það var, enda marmelaði ekki
nándar nærri jafn girnilegt orð.
Sum sé – Fimm fræknu. Veit ekki
hvað við eigum að ganga langt með
líkinguna þegar við hugleiðum
núverandi stjórnarmyndunarvið-
ræður … hver væri Jonni og hver
Anna og umfram allt: hver tæki að
sér að vera hundurinn? Við skulum
ekki dvelja um of við það heldur
hafa hugann við hitt: þau leysa
málin – þau vinna saman – þau eru
ósigrandi. Hvert þeirra með sín
einkenni og sitt næmi á aðstæður,
öll njóta þau sín, enda gæta þau
þess að fá sér reglulega samloku
með glóaldinmauki að ógleymdu
hinu dularfulla fleski.
Litla samfélagið þeirra er
umsetið af bófum og ræningjum,
smyglurum og loddurum sem
villa á sér heimildir og færa verð-
mæti sem samfélaginu ber burt til
framandi eyja eins og Tortóla og
grafa þar í jörðu, en hin ráðsnjöllu
og fræknu fimm finna leiðir til að
fletta ofan af þessum skúrkum og
koma þeim undir manna hendur.
Ekkert þeirra myndi nokkru sinni
fara í ríkisstjórn með þeim.
Samhljómur
Eigum við kannski að hætta að
tala um rykfallnar barnabækur?
Tölum heldur um tónlist. Hún
endurspeglar lögmál tilverunnar.
Tvíund er ekki hreint tónbil og
hljómar ekki vel – tónarnir liggja
of mikið saman; þannig var með
Sjálfstæðisflokk og Framsókn:
þeir draga fram það versta hvor í
öðrum, og kannski má líka segja
hið sama um stjórn Samfylkingar
og Vg, sem varð smám saman eins
og símalínusuð.
Þríundin er sæt og fagurhljóm-
andi en átakalítil til lengdar, en
fimmund er hins vegar tilkomu-
mesta tónbilið, þar ríkir rétta
spennan – þegar vel tekst til þá
titrar allt þegar hún ómar um
glugga og þil en sé söngfólkið ekki
með allt sitt á hreinu – algjörlega
einbeitt – getur orðið til minnkuð
fimmund, sem er afar ómstríð,
getur vissulega verið skemmtileg,
en var af kirkjunni gefið nafnið
„diabolus in musica“ eða tón-
skratti.
Forlátið þessar langdregnu og
óljósu líkingar: þetta er sem sé allt
spurning um harmoníu, jafnvægi,
samhljóm; og við sem höfum
sungið í kór höfum lært að syngja
inn í hljóminn, afsala okkur eigin
prívatrödd til að verða hluti af
einhverju sem er miklu stærra en
maður sjálfur. Fimmundarstjórn-
in hefur alla burði til að svo megi
verða: Katrín óumdeildur leiðtogi
sem nýtur virðingar hvarvetna í
þjóðlífinu – og á að verða forsætis-
ráðherra, hvað sem líður meintum
ófrávíkjanlegum píratakröfum um
utanþingsráðherra, sem við lesum
um í miðlum Sjálfsóknarflokksins.
Kjósendur úr öllum flokkum vilja
Katrínu.
Eru þetta annars fimm
flokkar? Eru þetta kannski Vg og
splundruð Samfylking? Þetta er að
minnstra kosti allt hluti af einum
og sama þjóðlífsstraumnum. Það
verður fróðlegt að sjá hvað kemur
út úr samvinnu vinstri manna
við frjálslynda flóttamenn úr
Sjálfstæðisflokknum; frjálslyndi
er ein mikilsverð arfleifð vinstri
manna allt frá 19. öld. Samstarf
vinstri flokkanna við Framsókn
var oft ansi dýru verði keypt – heil
Orkuveita handa Alfreð að leika
sér með í R-lista og frjálst framsal
kvóta kom út úr síðustu fimm-
flokkastjórn vinstri manna og
Framsóknar (að ógleymdum Þórs-
hafnararmi Framsóknar sem fékk
heilan togara).
Hver étur nú upp eftir öðrum að
stjórnmál séu „list hins mögulega“.
Mikil ósköp. En það er einhver
lítilþægni í þessu máltæki, rétt eins
og í hinni ömurlegu speki um að
auðvelt sé að vera vitur eftirá.
List hins sögulega
Ríkisstjórnir verða að hugsa
um það sem þær fá áorkað þegar
þær leggja af stað í förina, hver
verður minnisvarðinn, fyrir hvað
þeirra verður minnst – hvernig
þær bættu líf landsmanna. Og
stundum verða stjórnmál ein-
mitt list hins ómögulega þegar
þarf að sigrast á margvíslegum
hindrunum og komast gegnum
hagsmunaþykknið á nýjar lendur
betra mannlífs. Þá getur eitthvað
stórkostlegt gerst. Stjórnmál eru
list hins sögulega.
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag
Fréttablaðið eykur þjónustu sína
við lesendur á landsbyggðinni.
Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á
eftirfarandi sölustöðum víðsvegar um landið:
Tvíund er ekki hreint tónbil
og hljómar ekki vel – tón-
arnir liggja of mikið saman;
þannig var með Sjálfstæðis-
flokk og Framsókn: þeir
draga fram það versta hvor í
öðrum, og kannski má líka
segja hið sama um stjórn
Samfylkingar og Vg, sem
varð smám saman eins og
símalínusuð.
Fulltrúar fimmflokksins funduðu áfram um stjórnarmyndun í Alþingishúsinu í gær.
FréttAblAðið/Eyþór
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17M Á n u d a g u R 2 1 . n ó v e M B e R 2 0 1 6
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
C
-1
E
5
C
1
B
5
C
-1
D
2
0
1
B
5
C
-1
B
E
4
1
B
5
C
-1
A
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K