Fréttablaðið - 21.11.2016, Side 41
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
FANTASTIC BEASTS 3D 6, 9
FLÖSKUSKEYTI FRÁ P 8, 10.25
HACKSAW RIDGE 8, 10.45
TRÖLL 2D ÍSL.TAL 6
BRIDGET JONES’S BABY 5.30
Miðasala og nánari upplýsingar
ÁLFABAKKA
FANTASTIC BEASTS 3D KL. 5 - 8 - 10:45
FANTASTIC BEASTS 2D KL. 5 - 7 - 10
FANTASTIC BEASTS 2D VIP KL. 5 - 8 - 10:45
THE ACCOUNTANT KL. 8 - 10:40
SJÖUNDI DVERGURINN ÍSLTAL KL. 6
DOCTOR STRANGE 2D KL. 5:30 - 8 - 10:45
JACK REACHER 2 KL. 10:45
THE GIRL ON THE TRAIN KL. 8
STORKAR ÍSLTAL KL. 5
KEFLAVÍK
FANTASTIC BEASTS 3D KL. 8 - 10:45
THE LIGHT BETWEEN OCEANS KL. 8
THE ACCOUNTANT KL. 10:45
AKUREYRI
FANTASTIC BEASTS 3D KL. 5:15 - 8 - 10:45
THE LIGHT BETWEEN OCEANS KL. 8
THE ACCOUNTANT KL. 10:45
DOCTOR STRANGE 2D KL. 5:30
FANTASTIC BEASTS 3D KL. 5 - 6 - 8 - 9 - 10:45
THE LIGHT BETWEEN OCEANS KL. 5:20 - 8 - 10:40
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
EGILSHÖLL
FANTASTIC BEASTS 3D KL. 8 - 10
FANTASTIC BEASTS 2D KL. 5:10 - 7 - 10:40
THE LIGHT BETWEEN OCEANS KL. 5:10
THE ACCOUNTANT KL. 8 - 10:40
DOCTOR STRANGE 2D KL. 5:30 - 8 - 10:30
Byggð á samnefndri metsölubók
ENTERTAINMENT WEEKLY
OBSERVER
RACHEL
WEISZ
MICHAEL
FASSBENDER
ALICIA
VIKANDER
ENTERTAINMENT WEEKLY
THE WRAP
“FLAT OUT COOL”
EMPIRE
TILDA
SWINTON
BENEDICT
CUMBERBATCH
CHIWETEL
EJIOFOR
LOS ANGELES TIMES
CHICAGO SUN TIMES
THE GUARDIAN
HOLLYWOOD REPORTER
Stórkostleg og töfrandi fjölskylduskemmtun.
Frá J.K. Rowling, höfundi Harry Potter.
8.3
88%
Sýningartímar
og miðasala á
smarabio.is
Upplýsingar
um kvikmyndir
og sýningartíma
eru á smarabio.is
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-19
Slack Bay 17:30, 22:15
Baskavígin 18:00
Captain Fantastic 17:45
Gimme Danger 20:00
The Girl With All The Gifts 20:00
Innsæi / The Sea Within 20:00
Child Eater 22:30
Eiðurinn ENG SUB 22:00
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Mánudagur
hvar@frettabladid.is
21. nóvember 2016
Viðburðir
Hvað? Fyrirlestur: Söngvar kirkjunnar
fyrr og nú í aðdraganda aðventu og jóla
Hvenær? 11.40
Hvar? Aðalbygging Háskóla Íslands,
stofu 229
Margrét Bóasdóttir heldur fyrir-
lestur í boði Guðfræðistofnunar.
Enginn tími kirkjuársins er eins
ríkulega tengdur tónlist og jól og
aðventa. Tónlistinni sem er aðeins
flutt á einum mánuði árlega.
Hvaða tónlist er það sem túlkar
jólaboðskapinn í hinum mis-
munandi löndum? Hvað syngja
þjóðirnar á jólum og hvaða stóru
tónverk færa okkur fagnaðar-
boðskapinn? Fjallað verður um
sálma og tónverk jólatímans með
tóndæmum og jafnvel verður
æft fyrir jólamessuna með við-
stöddum! Margrét Bóasdóttir er
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og
stundakennari við guðfræði- og
trúarbragðadeild Háskóla Íslands
á haustönn. Hún er menntuð söng-
kona, kórstjóri og tónlistarkennari
og kirkjutónlistin hefur verið
hennar vettvangur í söng og tón-
listarfræðslu. Sálmar eru hennar
sérstaka áhugamál og sálmasöngur
með því skemmtilegasta sem hún
veit.
Hvað? NATO – nýjar áskoranir í Norður-
Evrópu
Hvenær? 12.00
Hvar? Norræna húsið, Sturlugötu
Petr Pavel, hershöfðingi, formaður
hermálanefndar NATO, flytur
fyrirlestur á hádegisfundi Varð-
bergs. Undanfarin misseri hefur sú
breyting orðið á stöðu öryggismála
í Evrópu að meiri athygli en áður
beinist að jaðarsvæðunum í suðri
og norðri. Spenna hefur vaxið á
Eystrasalti og fjögur herfylki undir
merkjum NATO verða á næsta ári
flutt til Eistlands, Lettlands, Lit-
háens og Póllands. Á Varðbergs-
fundinum gefst einstakt tækifæri
til að kynnast viðhorfi formanns
hermálanefndar NATO til nýrra
áskorana bandalagsins í Norður-
Evrópu. Tékkneski hershöfðinginn
Petr Pavel hefur verið formaður
hermálanefndar NATO síðan
26. júní 2015. Hann var yfirmaður
herafla Tékklands frá júlí 2012 til
maí 2015.
Hvað? Mítlar og mítilbornar sýkingar í
Norður-Evrópu
Hvenær? 12.20
Hvar? Keldur við Vesturlandsveg
Sigurður Skarphéðinsson, yfir-
læknir á smitsjúkdómadeild
Odense Universitetshospital
(OUH) í Danmörku og forstjóri
Clinical Center for Emerging and
Vector-borne Infections, OUH
heldur fyrirlesturinn þar sem hann
fjallar mítla og mítilbornar sýk-
ingar. Á seinni árum hefur mikil-
vægi mítilborinna smitsjúkdóma
í Evrópu aukist. Orsaka þessa má
leita í breyttu loftslagi, breyttum
landbúnaðarháttum og mann-
legu atferli. Rannsóknir á mítlum
hafa samtímis leitt í ljós að þeir
bera mun fleiri sjúkdómsvalda
en áður var talið. Fram að þessu
hafa mítilbornar sýkingar ekki
verið vandamál á Íslandi en með
aukinni skógrækt og breyttu lofts-
lagi opnast möguleikar á auknu
landnámi mítla. Farið verður yfir
nokkra þætti um mítla og mítil-
bornar sýkingar i norður Evrópu.
Hvað? Björk Digital
Hvenær? 13.00
Hvar? Harpa
Stafrænn heimur Bjarkar eða Björk
Digital er nýstárlegt sýndarveru-
leikaverkefni sem sameinar tónlist
Bjarkar og nýjustu tölvutækni.
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa
gengst fyrir komu verkefnisins til
Íslands í samvinnu við tónlistarhá-
tíðina Iceland Airwaves. Sýningin
var opnuð í byrjun nóvember,
samhliða opnun Iceland Airwaves,
en Björk var með tvenna tónleika
í Hörpu á sama tíma. Gestir sýn-
ingarinnar fá að kynnast tónheimi
Bjarkar á alveg nýjan hátt með
því að njóta verka sem hún hefur
gert í samvinnu við nokkra fram-
sæknustu leikstjóra og forritara á
sviði sýndarveruleika. Nýverið hélt
Björk tónleika í Royal Albert Hall
við meðleik strengjasveitar sem
hlutu mikið lof gagnrýnenda sem
og áheyrenda. Sem listamaður leit-
ar Björk stöðugt nýrra tjáningar-
forma og hefur beitt nýjustu tækni
við myndgervingu verka sinna.
Hún telur að með nýrri sýndar-
veruleikatækni sé hægt að ná
tengslum við áheyrendur á annan
og nánari hátt en fæst með því að
hlusta á geisladisk eða hlýða á tón-
leika. Hér er á ferðinni ný tegund
af persónulegum listflutningi þar
sem áheyrendur upplifa tónlistina
í næði og beinu sambandi við
listamanninn. „Skilnaðarplötu“
Bjarkar, Vulnicura, má rekja til
þess afar persónulega viðburðar
sem sambandsslit eru. Platan varð
grunnurinn að sýndarveruleika-
sýningunni Björk Digital, þar sem
möguleikar sýndarveruleika og
tónlistar eru kannaðir. Á sýning-
unni geta gestir einnig upplifað
gagnvirka margmiðlunarverkið
Biophilia. Í verkinu renna náttúra,
tónlist og tækni saman í eitt. Lögin
í Biophiliu eru jafnframt forrit
sem notuð eru við kennslu víða á
Norður löndunum. Auk þess hafa
29 lög frá ferli Bjarkar verið endur-
hljóðblönduð fyrir 5.1 hljóðkerfi,
sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Hægt er að hlusta á þau í réttri
tímaröð í kvikmyndaherbergi
sýningarinnar. Að sögn Bjarkar er
hlutverk listamannsins m.a. „að
gæða tæknina sál“. Það gerist svo
sannarlega með þessari sýningu,
sem þegar hefur ferðast til Ástralíu
og Japans og er í októbermánuði í
Somerset House í London.
Hvað? Suss!
Hvenær? 20.30
Hvar? Tjarnarbíó, Tjarnargötu
SUSS! var frumsýnt 21. okt. og
hefur hlotið gríðarlega góð við-
brögð hjá áhorfendum. Nýtt leik-
verk eftir leikhópinn RaTaTam, í
leikstjórn Charlotte Bøving, byggt
á reynslusögum, þolenda, geranda
og aðstandenda, um heimilis-
ofbeldi.
Hvað? Námskeiði um örlagaríkustu
orrustur sögunnar
Hvenær? 20.00
Hvar? Breiðholtskirkja
Leiðbeinandi er sr. Þórhallur
Heimisson sem hefur sótt heim
alla þá staði sem fjallað er um
á námskeiðinu og skrifað bæði
bækur og tímaritsgreinar um
hernaðarsögu. Á námskeiðinu er
fjallað um eftirfarandi orustur: 1.
Heitu hverirnir – Sparta og Persar
480 f. kr. 2. Hattin – Krossfarar og
múslímar og endalok krossfara-
ríkisins í Ísrael 1187. 3. Umsátrið
um Möltu – Jóhannesarriddarar og
Tyrkir 1565. 4. Waterloo – Napó-
leon og Wellington 1815. 5. Inn-
rásin í Normandí 1944. Allir sem
taka þátt fá afhenta handbók um
orrusturnar að námskeiði loknu.
Skráning og nánari upplýsingar má
fá á thorhallur33@gmail.com.
Sr. Þórhallur Heimisson heldur nám-
skeið um orrustur í kvöld.
Fréttablaðið/VilHelm
Sýningin björk Digital er í fullum gangi í Hörpunni í dag.
M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 21M Á n U D A g U R 2 1 . n ó V e M B e R 2 0 1 6
2
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
C
-4
5
D
C
1
B
5
C
-4
4
A
0
1
B
5
C
-4
3
6
4
1
B
5
C
-4
2
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K