Fréttablaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 7 0 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 1 5 . n ó v e M b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
sKOðun Lilja Margrét Olsen
skrifar um íbúðarsparnað milli-
stéttaraula. 14
spOrt Leikmenn sem hafa
staðið fyrir utan byrjunarlið
íslenska landsliðsins fá tækifæri
gegn Möltu í kvöld. 16
tÍMaMót Svarta gengið er um
bónda sem heiðrar sínar svörtu
kindur. 18
lÍfið Guðjón Davíð
Karlsson eða Gói
eins og hann er oft
kallaður er hægt
og rólega að færa
sig yfir í
skrifin. 34
frÍtt
saMfélag „Það er rosalega mikil
spenna sem fylgir jólunum,“ segir
Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslu-
biskup á Hólum.
Í samantekt Rannsóknarstofnunar í
jafnréttisfræðum á verkefninu Saman
gegn ofbeldi kemur fram að fleiri til-
kynningar um heimilisofbeldi berast
lögreglu í desember en í öðrum mán-
uðum.
Kristín I. Pálsdóttir, einn skýrslu-
höfunda, telur eina skýringuna geta
verið að meira áfengi sé haft um hönd
í desember en öðrum mánuðum.
Solveig Lára telur skýringarnar fleiri.
Spennan um jól geti tengst peningum.
„Oft verður mismunandi forgangs-
röðun peninga að ágreiningsefni milli
hjóna,“ segir hún. Þá geti væntingar
um hið fullkomna jólahald valdið
spennu.
„Öll blöðin sýna þessi fullkomnu
heimili þar sem allt á að vera tipp
topp og svo er þetta ekki svona hjá
þér. Allt þetta skapar spennu,“ segir
hún.
Solveig Lára segir presta kirkj-
unnar, sem veita sálusorgun, tala um
jólakvíða. Þar sem ofbeldi er fyrir á
heimilum geti jólakvíðinn ýtt undir
ofbeldi í desember. Oftast sé þó spurt
eftir sálgæslu strax eftir jólin.
„Fólk er alltaf að tipla á tánum í
desember að reyna að halda frið-
inn. Ef það fer úr böndunum eru það
frekar Kvennaathvarfið eða lögreglan
sem verða vör við það,“ segir hún.
Prestar sjá þetta frekar í janúar þegar
daglegt líf taki við. – jhh / sjá síðu 8
Ofbeldi vex í desember
Vígslubiskup segir jólakvíða ýta undir ofbeldi. Fleiri leiti eftir sálusorgun á nýju
ári en um jól. Meira er um heimilisofbeldi í desember en öðrum mánuðum.
plús sérblað l fólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Fólk er alltaf að
tipla á tánum í
desember að reyna að halda
friðinn. Ef það fer úr bönd-
unum eru það frekar
Kvennaathvarfið eða lög-
reglan sem
verða vör við
það.
Solveig Lára Guð-
mundsdóttir, vígslu-
biskup á Hólum.
stJórnMál Fulltrúar Bjartrar framtíð-
ar, Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar
funduðu áfram í gær um myndun ríkis-
stjórnar.
„Þetta mjakast hægt áfram,“ sagði
Benedikt Jóhannesson, formaður Við-
reisnar, skömmu áður en Fréttablaðið
fór í prentun. Hann gerði ráð fyrir að
unnið yrði fram á nótt til að reyna að
ná samkomulagi og kvaðst hóflega
bjartsýnn á að niðurstaða næðist.
Sjálfstæðismenn sem rætt var við
vísuðu á formanninn, Bjarna Bene-
diktsson, sem svaraði ekki. Sama gildir
um fulltrúa Bjartrar framtíðar. Er form-
legar stjórnarmynd-
unarviðræður hóf-
ust var miðað við
að taka stöðuna í
upphafi vikunnar.
Fáist ekki niður-
staða fyrripartinn
í dag er talið að
viðræðurnar hafi
strandað. – jóe
Mjakast áfram
Í sigurvímu Hagaskóli stóð uppi sem sigurvegari í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanemenda í Reykjavík, í gærkvöldi annað árið í röð og í áttunda sinn alls. Þar af komu sex titlar á
tíu árum, frá 1993-2002. Átta skólar tóku þátt á úrslitakvöldinu í ár sem fór fram í Borgarleikhúsinu. Ölduselsskóli lenti í öðru sæti og Árbæjarskóli í því þriðja. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
4
9
-A
E
1
C
1
B
4
9
-A
C
E
0
1
B
4
9
-A
B
A
4
1
B
4
9
-A
A
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K