Fréttablaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Bakþankar Erlu Bjargar Gunnarsdóttur OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA Trump verður forseti eftir að helmingur Bandaríkja-manna viðurkennir að hafa aldrei fundið sína rödd í kór réttlætisins og hafnar elítustjórn- málum. Hinn helmingurinn fyllist skelfingu yfir hávaðanum í þögninni. Bretar hafna Brexit eftir að helmingur þjóðarinnar viður- kennir ótta sinn. Hinn helming- urinn fær köfnunartilfinningu. Á Íslandi rekur kjararáð fleyg á milli alþýðu og elítu. Og helm- ingur landans virðist vilja IKEA- geitina í ljósum logum, hinn vill hana með rauðum borðum. Skýrsla um fátækt í Breiðholti styður enn frekar þá tilfinningu að flekarnir, sem halda landinu saman, fjarlægist hvor annan óðfluga. Með tilheyrandi nuddi og brestum sem geta eingöngu endað með heilmiklum skjálfta. Og hvað gerir maður í skjálfta? Reynir að bjarga lífi sínu og sinna nánustu. Hleypur í skjól. Kannski skattaskjól. Eða grúfir sig með hausinn ofan í sandinn í einangruðu og bólstruðu skjóli. Breiðir út faðminn og setur mjólk, slátur og fjölskylduna í fangið. Enginn kemst inn og enginn kemst út. Og þegar maður er rétt við það að missa trúna á umburðarlyndi. Á það að ólíkir hópar samfélags- ins geti einn daginn sameinast með hagsmuni heildarinnar fyrir brjósti. Þegar maður sér fram á að til lengri tíma verði alþýða og elíta stríðandi fylkingar með full- komnu skilningsleysi og vand- lætingu. Að lífið verði svart og hvítt. Gott og vont. Já og nei. Akkúrat þá í miðri örvænt- ingunni mætir forseti Íslands í vinnuna með buff. Nú er hvítt buff með nafni Alzheimer-sam- takanna í fjólubláum stöfum mitt vonarljós. Helvítisgjáin MIÐVIKUDAGA KL. 19:50 1 5 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 4 9 -A E 1 C 1 B 4 9 -A C E 0 1 B 4 9 -A B A 4 1 B 4 9 -A A 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.