Fréttablaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 5

Fréttablaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 5
„Við Íslendingar stöndum framarlega í baráttunni gegn krabbameini. Nú gefst okkur tækifæri til að leggja lið mikilvægum rannsóknum með því að taka þátt í þjóðarátaki gegn mergæxlum. Árangur þessarar umfangsmiklu rannsóknar er undir því kominn að þátttaka verði almenn svo unnt verði að byggja á henni til framtíðar. Sem verndari þessa átaks höfða ég til landsmanna allra að ganga til liðs við færustu vísindamenn okkar, sem vinna að þessu verkefni í þágu okkar allra.“ VERNDARI VERKEFNISINS Vigdís Finnbogadóttir Forseti Íslands 1980 –1996 ÞJÓÐARÁTAK GEGN MERGÆXLUM Á næstu dögum fer í hönd ein umfangsmesta blóðskimunar- rannsókn sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Öllum einstaklingum eldri en 40 ára (fæddum 1975 eða fyrr) búsettum á Íslandi, verður boðin þátttaka. Tilgangur rannsóknarinnar er að meta mögulegan ávinning af því að skima fyrir forstigi mergæxlis. Metið verður hvort skimunin sé hagkvæm, hvaða áhrif vitneskja um forstig krabbameina hefur á lífsgæði einstaklinga og hvort unnt sé að lækna mergæxli með því að meðhöndla það fyrr en nú er gert um allan heim. Talið er að 4% fólks yfir fertugu sé með forstigið og að árlega þrói 1% þeirra með sér mergæxli. ÞAÐ ER EINFALT AÐ TAKA ÞÁTT Til að taka þátt þarftu einungis að veita samþykki. Næst þegar þú ferð í blóðprufu af einhverjum ástæðum munum við fá hluta af blóðsýninu til að skima fyrir forstigi mergæxlis. Þú þarft ekki að fara í sérstaka blóðprufu vegna rannsóknarinnar. Á www.blodskimun.is finnur þú allar frekari upplýsingar um rannsóknina, auk þess sem hún er vandlega útskýrð í bæklingi sem fylgir þátttökubeiðninni. Ein viðamesta vísindarannsókn Íslandssögunnar LEGGÐU OKKUR LIÐ Blóðskimun til bjargar Þjóðarátak gegn mergæxlum 1 5 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 4 9 -D 5 9 C 1 B 4 9 -D 4 6 0 1 B 4 9 -D 3 2 4 1 B 4 9 -D 1 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.