Fréttablaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 18
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Jan Anton Juncker Nielsen
Breiðvangi 10, Hafnarfirði,
lést á Líknardeild Landspítalans
í Kópavogi þann 11. nóvember sl.
Jarðsungið verður frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði fimmtudaginn 17. nóvember kl. 15.00.
Guðrún Elín Magnúsdóttir
Kim Magnús Juncker Nielsen Kristín Lilja Björnsdóttir
Ísbjörg Elín Nielsen
Ari Brynjólfur Nielsen
Jón Birnir Nielsen
Faðir minn, afi, sonur og bróðir,
Jón B. Sæmundsson
lést á heimili sínu
þriðjudaginn 8. nóvember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 17. nóvember kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilið á Akranesi.
Þórhildur M. Jónsdóttir
Andri Snær Tryggvason
Orri Freyr Tryggvason
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Sigríður S. Sæmundsdóttir Valgeir Sigurðsson
Halldóra Sæmundsdóttir Ragnar Viktor Karlsson
Guðrún Sæmundsdóttir
Helgi Sæmundsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Bjarndís Gunnarsdóttir
varð bráðkvödd á heimili sínu
mánudaginn 7. nóvember sl.
Útför hennar fer fram föstudaginn
18. nóvember kl. 13.00 frá Akraneskirkju.
Rannveig Björg Jónsdóttir
Jón Bjarni Jónsson Vilborg Viðarsdóttir
Helena Bjarndís Bjarnadóttir Júlíus Daníelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
systir, mágkona og amma,
Ingibjörg Haraldsdóttir
skáld,
sem lést þann 7. nóvember verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 17. nóvember kl. 15.
Hilmar Ramos Sigríður R. Kristjánsdóttir
Kristín Eiríksdóttir Ingi Rafn Sigurðsson
Rannveig Haraldsdóttir Júlíus K. Valdimarsson
Þröstur Haraldsson Steinunn Hjartardóttir
María Ramos Hilmarsdóttir, Ingibjörg Ramos
Hilmarsdóttir, Kolbjörn Ingason, Reginn Uni Ramsey,
Sölva Magdalena Ramsey
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Þórarinsdóttir,
Tjarnarlundi 12b, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 18. nóvember kl. 13.30.
Ari Halldórsson
Gyða Þ. Halldórsdóttir Jón Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, ömmu og
langömmu,
Völu Dóru Magnúsdóttur
Reynihvammi 24, Kópavogi.
Magnús Helgi Björgvinsson
Erla Dóra Magnúsdóttir Vilhjálmur Kristjánsson
Helga Lind Magnúsdóttir
Kristján Guðni Vilhjálmsson
Elskulegur bróðir okkar,
Sigtryggur Ingvarsson
frá Skipum,
Grænumörk 5, Selfossi,
lést á heimili sínu föstudaginn
11. nóvember sl.
Sigríður Ingvarsdóttir
Ásdís Ingvarsdóttir
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Páll Steingrímsson
kvikmyndagerðarmaður,
lést á Landspítalanum 11. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Gunnhildur Pálsdóttir Trausti Baldursson
Dufþakur Pálsson Hörn Gissurardóttir
Sylvía Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín,
Sigurbjörg Rannveig
Guðnadóttir
sem lést á dvalarheimilinu
Hraunbúðum 2. nóvember
síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 19. þ.m. klukkan 14.00.
Blóm afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Slysavarnadeildina Eykyndil.
Gylfi Guðnason og aðrir vandamenn.
Svarta gengið segir einstaka sögu Þorbjörns Péturssonar fjárbónda og einsetumanns á Ósi í Arnar-firði. Í kjölfar veikinda og slits
þurfti hann að bregða búi og var til-
neyddur til að fella allt sitt fé. Honum féll
það þungt. Meðal þess var hópur svartra
kinda sem hann hafði náð sterku tilfinn-
ingalegu sambandi við og kallaði Svarta
gengið.“ Þetta segir Kári G. Schram, kvik-
myndagerðarmaður og höfundur heim-
ildarmyndarinnar Svarta gengið sem
sýnd er í Bíói Paradís.
„Svarta féð hans Þorbjörns var komið
út af tinnusvartri gimbur sem var svo
smá í fyrstu að hún náði ekki upp í
spena móður sinnar og varð heimaln-
ingur. Þegar henni var slátrað var hún
grafin heima og svo stækkaði heimagraf-
reiturinn þegar fella þurfti fleiri úr svarta
genginu,“ lýsir Kári og heldur áfram:
„Hjá Þorbirni er allt í röð og reglu. Fljót-
lega fékk hann þá hugmynd að heiðra
minningu þessara svörtu, mállausu
vina sinna með minnisvarða. Hann lét
gera mön með legsteinum, grafskriftum,
nöfnum og ljóðum. Ekki nóg með það
heldur vill hann fá að hvíla þarna sjálfur
líka þegar þar að kemur og er að sækja
um leyfi til þess til yfirvalda – en það er
snúið.“
Bærinn Ós stendur gegnt Hrafnseyri
en vegurinn þangað lokast í fyrstu snjó-
um og er oft lokaður í fjóra til sex mán-
uði á ári, eftir tíðarfarinu, að sögn Kára.
„Þorbjörn hefur lifað einangraður yfir
veturinn en í sveitinni þekkja allir Bjössa
og öllum þykir vænt um hann. Heilsunn-
ar vegna getur hann þó ekki hafst þar við
lengur yfir harðasta veturinn svo hann
festi kaup á íbúð á Þingeyri. En húsin
þrengdu að honum og hann hafði ekki
óhefta fjarðarsýn, eins og hann hafði
alist upp við. Í myndinni kynnumst við
þessum hliðum öllum,“ segir Kári sem
undanfarin ár hefur verið með annan
fótinn í Arnarfirði, vegna uppbyggingar-
innar í Selárdal, stofnunar Skrímslaset-
ursins á Bíldudal og síðast töku myndar-
innar Svarta gengið.
„Það tók tíma að kynnast Þor-
birni en við erum orðnir miklir vinir
og erum eins og gömul hjón þegar
ég er hjá honum. Hann hefur svo fal-
legt hjartalag og væntumþykja hans til
kindanna snertir mann eins og Hrútar
sinnum tveir. Þetta er bara sanna sagan.“
gun@frettabladid.is
Þótti vænt um svarta féð
Myndin Svarta gengið sem sýnd er í Bíói Paradís segir frá Þorbirni Péturssyni bónda í
Arnarfirði og virðingunni sem hann sýnir eftirlætiskindunum með veglegum grafreit.
Þeir félagarnir Kári G. Schram og Þorbjörn Pétursson á frumsýningu myndarinnar Svarta gengið í Bíói Paradís.
Hann lét gera mön með
legsteinum, grafskrift-
um, nöfnum og ljóðum. Ekki
nóg með það heldur vill hann fá
að hvíla þarna sjálfur líka.
1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r18 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
1
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
4
9
-D
F
7
C
1
B
4
9
-D
E
4
0
1
B
4
9
-D
D
0
4
1
B
4
9
-D
B
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K