Fréttablaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 4
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F i sk i slóð 39
„ Vel er vandað til verka í heildstæðri
frásögn af þessari skelfilegu nótt,
aðdraganda hamfaranna og eftirmálum.
Þrátt fyrir yfirveguð skrif er bókin afar
átakanleg á köflum, eðlilega.“
guðríður haraldsdóttir / vikan
Heilbrigðismál Undirskriftum íbúa
í Rangárþingi eystra er nú safnað til
að skora á Þóri Kolbeinsson, lækni á
Hellu, að halda áfram störfum við Heil-
brigðisstofnun Suðurlands og skorað
er á stjórn HSU að gera það sem í henn-
ar valdi stendur til að halda í starfs-
krafta hans. Skila á undirskriftum til
forstjóra HSU í lok vikunnar. Á meðan
komum á heilsugæsluna á Hvolsvelli
hefur fjölgað í takt við fjölgun ferða-
manna á svæðinu hefur lækninum,
Þóri Kolbeinssyni, verið neitað um
fulla stöðu við heilsugæsluna og íhugar
hann því að flytjast búferlum. Síðan í
hruninu hefur Þórir verið í 75 prósent
stöðu sem læknir. Þórir hefur um ára-
bil reynst svæðinu vel og því finnst
íbúum sárt að sjá á eftir honum.
Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri
Rangárþings eystra, segir Þóri hafa
verið öflugan lækni og fjöldi íbúa vilji
ólmir halda honum áfram á svæðinu.
„Þórir hefur verið kjölfesta í sam-
félaginu og þess vegna er þessi undir-
skriftasöfnun orðin að veruleika. Íbúar
á svæðinu hafa þurft að taka á honum
stóra sínum vegna skorts á þjónustu
HSU hér á Hvolsvelli síðustu misseri,“
segir Ísólfur Gylfi. Hann vill þó árétta
að undirskriftasöfnunin er ekki á
vegum sveitarfélagsins heldur sprottin
upp hjá hjá grasrót íbúa á svæðinu sem
vilji halda Þóri.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins hefur andað köldu í samskiptum
manna á milli innan HSU. Ekki er
langt síðan sveitarstjórn krafðist þess
að HSU færi eftir samningi við sveitar-
félagið þegar HSU ætlaði að loka starfs-
stöð sinni á Hvolsvelli. – sa
Íbúar skora á vinsælan lækni sem fær ekki fulla stöðu á Hvolsvelli
Þórir Kolbeinsson fær ekki fulla læknisstöðu og sættir sig ekki við aðeins 75 pró-
sent starf á Hvolsvelli. Fréttablaðið/VilHelm
Ísólfur Gylfi
Pálmason
skólamál Grunnlaun grunnskóla-
kennara með tíu ára starfsreynslu
eru nú ríflega 440 þúsund krónur
en laun grunnskólakennara hafa
hækkað um 86,7 prósent á tíu ára
tímabili. Launin hafa því hækkað
minna en sem nemur launavísitölu
sem nemur 92,7 prósentum. Samn-
inganefndir kennara og sveitar-
félaga funduðu í gær og munu hitt-
ast á ný á morgun.
Grunnskólakennarar eru samn-
ingslausir síðan í sumar og hafa
tvívegis fellt samninga síðan þá. Í
dag, þriðjudag, hafa grunnskóla-
kennarar verið hvattir til að ganga
úr vinnu klukkan 14.30 og mæta á
kröfufund kennara í Háskólabíói.
Þá verða sambærilegir fundir
í Hafnarfirði og Reykjanesbæ og
kennarar ætla að fjölmenna á
áhorfendapalla á fundi borgar-
stjórnar til að krefjast hærri launa.
„Ég á ekki von á því að þetta
muni hafa áhrif á kennslu enda
henni að mestu lokið á þessum
tíma,“ segir Ragnar Þór Pétursson,
kennari og einn skipuleggjenda
fundarins.
Sé tekið mið af launareiknivél á
vef Félags grunnskólakennara sést
að grunnskólakennari sem er að
hefja störf og hefur eins árs starfs-
reynslu er með 397.555 krónur í
grunnlaun. Þess utan fá kennarar
svokallaða annaruppbót tvisvar
á ári, í desember og júní, 76.500
krónur í hvort skipti. Samtals 153
þúsund krónur í uppbót árlega.
Kjarasamningur grunnskóla-
kennara frá 2014 gerði meðal ann-
ars ráð fyrir því að afsal áunninna
réttinda um að kenna færri tíma á
Laun grunnskólakennara hafa
hækkað minna en launavísitala
Laun kennara hafa hækkað um 86,7 prósent á síðustu tíu árum en þó ekki jafn mikið og launavísitala.
Boðað hefur verið til samstöðufundar í dag og kennarar hvattir til að leggja niður störf klukkan hálf þrjú.
Fulltrúar grunnskólakennara mættu til fundar við viðsemjendur sína frá sveitarfélögunum hjá ríkissáttasemjara í gær.
mynd/JóHann K.
viku eftir því sem liði á starfsævina
gæti falið í sér kjarabætur. Níutíu
prósent kennara afsöluðu sér þeim
réttindum.
Ragnar segir að semjist ekki á
næstu tveimur vikum megi gera ráð
fyrir því að kennarar fái endanlega
nóg, segi upp og leiti í önnur störf.
„Við höfum fellt sama kjara-
samninginn tvisvar. Það virðist vera
þjóðarsátt um það að kennarar séu
láglaunastétt. Þeir ná ekki meðal-
launum og eru talsvert langt frá
því. Þegar stefnt var að stöðugleika
var áfram miðað við að við værum
láglaunastétt og við sættum okkur
ekki við það.“ snaeros@frettabladid.is
johannoli@frettabladid.is
sVÍÞJóð Jimmie Åkesson, formaður
Svíþjóðardemókrata, er sá flokks-
leiðtogi sem flestir telja að skilji
aðstæður „venjulegra kjósenda“.
Þetta eru niðurstöður nýrrar skoð-
anakönnunar á vegum Nordic PA
Research.
Alls telja 48 prósent að Åkesson
sé skilningsríkastur en 31 prósent
telur að leiðtogi Vinstri flokksins,
Jonas Sjöstedt, skilji venjulega
kjósendur. Tæpur þriðjungur, eða
29 prósent, telja að Stefan Löfven
forsætisráðherra skilji aðstæður
kjósenda. Samsvarandi tala fyrir
leiðtoga hægri manna, Önnu Kin-
berg Batra, er 13 prósent. – ibs
Telja Åkesson
skilningsríkastan
Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðar-
demókrata. nordicPHotoS/aFP
Það virðist vera
þjóðarsátt
um það að
kennarar séu
láglaunastétt.
Ragnar Þór Pét-
ursson kennari
austurland Ellefu nautgripir dráp-
ust í stórbruna á bænum Fögruhlíð í
Jökuls árhlíð í gær.
Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri hjá
Brunavörnum á Austurlandi, sagði í
samtali við Vísi í gær að altjón hefði
orðið á 540 kinda fjárhúsi og gripa-
húsi. Ekkert fé var í fjárhúsinu.
„Kindurnar voru allar úti,“
sagði Baldur sem kvað slökkviliðið
mundu verða á vettvangi þar til búið
væri að ganga úr skugga um að slökkt
væri í öllum glæðum. Er rætt var við
hann í gærkvöld bjóst hann við að
slökkvistarfið stæði fram á nótt.
Baldur sagði íbúa ekki hafa verið
heima er eldurinn kom upp og að upp-
tök eldsins væru enn óljós. – sks
Ellefu nautgripir
drápust í bruna
1 5 . n ó V e m b e r 2 0 1 6 Þ r i ð J u d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
4
9
-C
6
C
C
1
B
4
9
-C
5
9
0
1
B
4
9
-C
4
5
4
1
B
4
9
-C
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K