Fréttablaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 5
„Við Íslendingar stöndum framarlega í baráttunni
gegn krabbameini. Nú gefst okkur tækifæri til að
leggja lið mikilvægum rannsóknum með því að taka
þátt í þjóðarátaki gegn mergæxlum. Árangur þessarar
umfangsmiklu rannsóknar er undir því kominn að
þátttaka verði almenn svo unnt verði að byggja á
henni til framtíðar.
Sem verndari þessa átaks höfða ég til landsmanna
allra að ganga til liðs við færustu vísindamenn okkar,
sem vinna að þessu verkefni í þágu okkar allra.“
VERNDARI VERKEFNISINS
Vigdís Finnbogadóttir
Forseti Íslands 1980 –1996
ÞJÓÐARÁTAK GEGN MERGÆXLUM
Á næstu dögum fer í hönd ein umfangsmesta blóðskimunar-
rannsókn sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Öllum einstaklingum
eldri en 40 ára (fæddum 1975 eða fyrr) búsettum á Íslandi,
verður boðin þátttaka.
Tilgangur rannsóknarinnar er að meta mögulegan ávinning
af því að skima fyrir forstigi mergæxlis. Metið verður hvort
skimunin sé hagkvæm, hvaða áhrif vitneskja um forstig
krabbameina hefur á lífsgæði einstaklinga og hvort unnt sé að
lækna mergæxli með því að meðhöndla það fyrr en nú er gert
um allan heim. Talið er að 4% fólks yfir fertugu sé með forstigið
og að árlega þrói 1% þeirra með sér mergæxli.
ÞAÐ ER EINFALT AÐ TAKA ÞÁTT
Til að taka þátt þarftu einungis að veita samþykki. Næst þegar
þú ferð í blóðprufu af einhverjum ástæðum munum við fá hluta
af blóðsýninu til að skima fyrir forstigi mergæxlis. Þú þarft ekki
að fara í sérstaka blóðprufu vegna rannsóknarinnar.
Á www.blodskimun.is finnur þú allar frekari upplýsingar um
rannsóknina, auk þess sem hún er vandlega útskýrð í bæklingi
sem fylgir þátttökubeiðninni.
Ein viðamesta vísindarannsókn Íslandssögunnar
LEGGÐU OKKUR LIÐ
Blóðskimun
til bjargar
Þjóðarátak gegn
mergæxlum
1
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
4
9
-D
5
9
C
1
B
4
9
-D
4
6
0
1
B
4
9
-D
3
2
4
1
B
4
9
-D
1
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K