Fréttablaðið - 15.11.2016, Síða 8
ig að það sé þá einhver staður sem
þeir geta farið á, að þeim sé ekki
bara hent út á götu.“
Þegar horft er til þessara mála
sem tilkynnt voru til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu árið 2015 sést
að flest voru tilkynnt í desember
eða 62. Fæst voru þau í apríl eða
39. Kristín segir ekki hafa verið
skoðað sérstaklega hvers vegna
þessi munur er milli mánaða.
„Við höfum ekkert þannig séð
rannsakað það en það má leiða
líkur að því að það sé meira drukk-
ið í desember og það er fylgni
milli drykkju og ofbeldis. Þetta er
kannski skýring sem blasir við,“
segir Kristín.
Fjöldi mála í Reykjavík dreifist
nokkuð jafnt yfir vikuna, en greina
má aukinn fjölda í kringum helgar.
Málafjöldinn nær svo hámarki á
sunnudögum.
thorgeirh@frettabladid.is
jonhakon@frettabladid.is
Félagsmál „Það er athyglisvert hvað
þetta er stórt vandamál og svo er
umhugsunarvert hvað lítil áhersla
er lögð á að ná til gerenda,“ segir
Kristín I. Pálsdóttir hjá Rannsóknar-
stofnun í jafnréttisfræðum.
Stofnunin hefur gert úttekt á verk-
efninu Saman gegn ofbeldi. Það er
samstarfsverkefni lögreglunnar,
borgarinnar og fleiri til að sporna
við heimilisofbeldi í Reykjavík.
Í úttektinni kemur fram að mikil
fjölgun varð 2015 á heimilisofbeldis-
málum sem komu til kasta lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls
sinnti lögreglan 391 máli árið 2015,
borið saman við 200 mál árið 2014.
Samstarfshópurinn rekur þessa
skyndilegu aukningu að einhverju
leyti til breyttrar skráningar lögreglu
en einnig til aukinnar umfjöllunar
um heimilisofbeldi í fjölmiðlum.
Vitundarvakning í samfélaginu hafi
getað orðið til þess að lögregla er
frekar kölluð á vettvang.
Samkvæmt skýrslunni eru brota-
þolar málanna um 80 prósent konur
og árásaraðilar um 81 prósent karlar.
Kristín segir að skýrslan varpi ljósi
á það að gera þurfi ráðstafanir til að
hafa áhrif á ofbeldið með meðferð
og öðrum inngripum fyrir gerendur.
Kristín segir þó ýmislegt hafa
breyst til hins betra. „Það eru fleiri
nálgunarbönn og fleiri ofbeldis-
menn teknir af heimilum. Hér áður
fyrr var það yfirleitt þolandinn sem
þurfti að flýja,“ segir hún. En gera
þurfi meira. „Það þarf úrræði þann-
Heimilisofbeldismál
algengust í desember
Það vantar úrræði fyrir þá sem beita ofbeldi inni á heimilum. Ofbeldismálum
fjölgaði verulega í fyrra. Vitundarvakning gæti hafa orðið til þess að lögreglan
er frekar kvödd á vettvang. Flest málin koma upp í desember samkvæmt úttekt.
Það má leiða líkur
að því að það sé
meira drukkið í
desember.
Kristín I Pálsdóttir,
hjá Rannsóknar-
stofnun í jafnréttis-
fræðum
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og
glæsileik
i
endalaus
t úrval af
hágæða
flísum
Finndu okkur
á facebook
70
60
50
40
30
20
10
✿ Fjöldi mála á höfuðborgarsvæðinu eftir mánuðum
Ja
nú
ar
ma
rs
Fe
br
úa
r
ap
ríl ma
í
Jú
ní Jú
lí
ág
ús
t
se
pte
mb
er
Ok
tób
er
Nó
ve
mb
er
De
se
mb
er
VOPNaFJÖRÐUR Héraðsdómur
Austurlands vísaði á dögunum
kröfu Vopnafjarðarhrepps á hend-
ur eiganda Fremri-Nýps og Ung-
mennafélaginu Einherja frá dómi.
Umrædd krafa snýr að viðurkenn-
ingu á eignarrétti hreppsins á land-
svæði umhverfis Selárlaug.
Sundlaugin var byggð árið 1948 af
Einherja í landi Fremri-Nýps. Þá var
jörðin í eigu hreppsins en var seld
árið 1963. Sundlaugin og „nauðsyn-
legt athafnasvæði“ voru undanskilin
kaupunum og skyldu mæld út og
afmörkuð nánar síðar meir. Það var
aldrei gert og þaðan er ágreiningur-
inn sprottinn.
Líkt og áður segir var málinu
vísað frá dómi. Það var gert á þeirri
forsendu að efnisdómur um málið
fæli í sér stofnun á sjálfstæðri fast-
eign. Slíkt er háð lögbundnum skil-
yrðum og eftir atvikum samþykki
stjórnvalda. Taldi dómari málsins
að með því færi hann inn á verksvið
stjórnvalda.
„Við höfum kært úrskurðinn
áfram til Hæstaréttar,“ segir Ólaf-
ur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri
Vopnafjarðarhrepps. Annað mál
frá hreppnum er sem stendur fyrir
sama dómstól en áður en hægt er
að fá botn í það þarf að skera úr um
eignarhald á landsvæðinu.
Árið 2011 óskaði Veiðifélag Selár
þess að fá umframvatn úr borholum
á jörðinni til að kynda veiðihúsið.
Var það samþykkt með þeim fyrir-
vara að vatn í laugina hefði forgang
yfir veiðihúsið. Hreppurinn hefur
krafið Veiðifélagið um fjórar millj-
ónir króna fyrir heita vatnið sem
félagið hafnar að greiða meðal ann-
ars á þeim forsendum að holurnar
séu í þeirra eigu. Ljóst er að niður-
staða mun ekki fást í síðara málið
fyrr en skorið hefur verið úr um
eignarhald á landspildunni. – jóe
Umhverfi Selárlaugar bitbein Vopnafjarðarhrepps og Fremri-Nýps
Selárlaug var löngum opin allan sólarhringinn en opnunartími var styttur sökum
slæmrar umgengni. MYND/MAGNÚS MÁR
Aðventan og jólin eiga sínar skuggahliðar vegna álagsins sem fylgir hátíðarhaldinu. NoRDicphotoS/GettY
Málstofa í HR 16. nóvember, kl. 12 -13
DONALD TRUMP
– af hverju og hvað svo?
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík efnir til
málstofu um efnahagslegar og samfélagslegar
ástæður og afleiðingar af kjöri Donald Trump
sem forseta Bandaríkjanna.
DAGSKRÁ
Brugðust skoðanakannanir í Bandaríkjunum?
Þorlákur Karlsson, dósent við sálfræðisvið HR.
Skyggnst í sálarlíf Trump kjósandans
Hulda Þórisdóttir, dósent við stjórnmála- og sálfræðideildir HÍ.
Tilfinningalausir markaðir
Már Wolfgang Mixa, lektor við viðskiptadeild HR.
Trump og efnahagsmálin - „Trumponomics“
Friðrik Már Baldursson, prófessor við viðskiptadeild HR.
Fundarstjóri: Hrefna Sigríður Briem, forstöðumaður BSc-náms í
viðskiptafræði og hagfræði við HR.
Aðgangur er ókeypis og málstofan er öllum opin.
2014 2015
Við höfum kært
úrskurðinn áfram
til Hæstaréttar.
Ólafur Áki Ragnars-
son, sveitarstjóri
Vopnafjarðar-
hrepps
1 5 . N ó V e m b e R 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D a g U R8 F R é t t I R ∙ F R é t t a b l a Ð I Ð
1
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
4
9
-D
5
9
C
1
B
4
9
-D
4
6
0
1
B
4
9
-D
3
2
4
1
B
4
9
-D
1
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K