Fréttablaðið - 15.11.2016, Page 19

Fréttablaðið - 15.11.2016, Page 19
fólk kynningarblað Vissir þú að inntaka á trefjum, bæði í duftformi og í hylkjum er líklegast öflugasta og ódýrasta leiðin til að grenna sig, viðhalda reglulegum hægðum og heilbrigðri þarmaflóru? TrefjaríkT maTaræði „Eitt af grundvallaratriðum góðr- ar heilsu er að hafa þarmaflóruna í lagi en ónæmiskerfi okkar er að mestu staðsett í meltingarvegin- um. Við hjálpum mikið til með því að taka inn góða mjólkursýrugerla og svo er auðvitað nauðsynlegt að borða hollan og næringarríkan mat. Maturinn okkar þarf að vera trefjaríkur til að viðhalda góðri meltingu og öflugri þarmastarf- semi en trefjar fáum við að stærst- um hluta úr grænmeti, ávöxtum, fræjum, baunum og grófu korni,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumarkþjálfi hjá Artasan. heilsufarsógn „Matarvenjur okkar hafa breyst gríðarlega síðastliðinn áratug. Við eldum sjaldnar úr óunnu hrá- efni og kaupum frekar unnar og forpakkaðar matvörur. Á þess- um tíma hefur heimsmarkaður forpakkaðra matvæla vaxið um 92% sem þýðir að við erum að borða mikið minna af trefjum en áður. Unnin matvæli innhalda líka oftar en ekki mikið af aukaefnum en þau ásamt viðbættum sykri eru nú orðin mikil heilsufarsógn. Þessi efni eru óvinveitt þarmflór- unni okkar og eru afleiðingarnar oftar en ekki tengdar meltingar- og hægðavandamálum sem hafa svo áhrif á allt okkar heilsufar.“ hvað eru Trefjar? Trefjar eða trefjaefni í matvæl- um eru kolvetni sem líkaminn getur ekki melt. Trefjaefnum er skipt í tvo meginflokka; leysanleg og óleysanleg, og er hvort tveggja gagnlegt fyrir heilsuna. „Óleysanleg trefjaefni leys- ast ekki upp í vatni. Sum geta örvað vöxt örvera í ristlinum á meðan önnur binda í sig vatn og gera hægðirnar meiri og mýkri og auðvelda þannig losun. Þar sem óleysan leg trefjaefni flýta för fæðu í gegnum meltingarveginn koma þau í veg fyrir harðlífi og hægða- tregðu. Vörur úr heilkorni, eins og gróf brauð, hýðishrísgrjón, belg- jurtir, gúrkur, gulrætur og hnetur eru góðar uppsprettur af óleysan- legum trefjaefnum,“ segir Hrönn. Hún segir leysanleg trefjaefni leysast upp í vatni og verða hlaup- kennd. „Þau örva vöxt æskilegra baktería í þörmunum en talið er að þessar bakteríur séu nauðsynleg- ar fyrir heilsu okkar og eru áhrif þeirra mikið rannsökuð um þessar mundir. Áhrifin geta meðal annars verið að lækka bæði blóðsykur og kólesteról í blóði. Vatnsleysanleg- ar trefjar er m.a. að finna í hafra- mjöli, hnetum, baunum, eplum og bláberjum.“ ódýr og öflug heilsubóT „Við vitum flest upp á hár hvaða mat við eigum að borða og hvað er hollt fyrir líkama okkar. Það er hins vegar annað mál hvort við förum eftir því. Meltingar- ónot, hægðatregða og vandamál tengd þessu eru líka allt of algeng en eins og áður sagði þá hefur það almennt slæm áhrif á heilsufar okkar. Trefjar í formi bætiefna eru lausn fyrir marga, hvort sem það er í hylkja- eða duftformi,“ segir Hrönn. glucoslim – grennandi áhrif og örvar melTingu „GlucoSlim er 100% náttúruleg afurð konjak-rótarinnar. Trefj- arnar fylla magann þannig að við borðum minna og verðum fyrr södd. Að sama skapi hægja þær á tæmingu magans og við verðum síður svöng en trefjarnar eru líka gríðarlega góðar fyrir þarmaflór- una og koma reglu á hægðir.“ inulin – auðveldar hægða- losun Inulin eru vatnsleysanlegar trefj- ar í duftformi sem er best að nota daglega til að koma reglu á hægð- ir og bæta almennt ástand melting- arfæranna. Inulin eflir fjölgun vin- veittra gerla í þörmunum og hefur jákvæð áhrif á (heildar) kólesteról og þríglýseríð í blóði. Einnig hjálpa þær til við niðurbrot á innri fitu, þessari sem umlykur meltingar- færin. „Allar vatnsleysanlegar trefjar eru fyllandi og draga þann- ig úr matar löngun. Vatns- leysan legar trefjar eins og eru í Gluco- Slim og Inulin eru ein af einföldustu, heilsusamleg- ustu og áhrifa- ríkustu leið- um sem hægt er að nota við þyngdar- stjórnun og meltingar- vandamál- um.“ mikilvægt er að drekka a.m.k. eitt fullt vatns- glas með inntöku á vatns- leysanlegum trefjum því þær þurfa vökva til að bólgna út. 1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r Flestir vita hvaða mat þeir eiga að borða og hvað er hollt. Það er hins vegar annað mál hvort farið er eftir því. Trefjar koma reglu á hægðir og í veg fyrir hægðaTregðu Artasan kynnir GlucoSlim inniheldur vatnsleysanlegar trefjar, unnar úr rótarhýði konjak-plöntunnar, sem fylla magann þannig að við borðum minna og verðum fyrr södd. Þær hægja á tæmingu magans og við verðum síður svöng. Inulin eru vatnsleysanlegar trefjar í duftformi sem er best að nota daglega til að koma reglu á hægðir og bæta almennt ástand meltingarfæranna. Trefjarnar eru góðar fyrir þarmaflóruna og koma reglu á hægðir. Sölustaðir: Flest apótek, heilsu- búðir og heilsu- hillur verslana. 1 5 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 4 9 -D 0 A C 1 B 4 9 -C F 7 0 1 B 4 9 -C E 3 4 1 B 4 9 -C C F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.