Fréttablaðið - 15.11.2016, Page 30
Fyrirtækið Arctic Exclusive á líklega flottasta fólksflutningabíl landsins og í honum er ekkert til sparað til að gera vel við farþega. Þessum bíl
er enda ætlað að þjóna þeim hluta
ferðamanna hérlendis sem hafa
hvað mest á milli handanna. Bíllinn
er af Mercedes Benz Sprinter gerð,
en honum hefur sannarlega verið
breytt mikið þótt það sjáist ekki utan
á honum. Arctic Exclusive hannaði
bílinn sjálft en lét þýskt breytinga
fyrirtæki sérsmíða bílinn að innan.
Sérsmíðaður af Diewert
Bílinn keypti Arctic Exclusive af
Öskju og þá sem tóman sendibíl,
hann var svo fluttur innan Þýska
lands til lítils bæjar að nafni Minden,
þar er lítið fjölskyldufyrirtæki, Die
wert. Diewert sérhæfir sig í smíði á
lúxusbílum og þá aðallega af gerðinni
Mercedes Benz Sprinter og VClass.
Smíðin hjá Diewert tók tólf vikur og
er allt sérsmíðað fyrir hvern bíl enda
engir tveir eins. Þessi gerð af bílum
er kölluð „Jet Van“ í Bandaríkjunum
og er þá verið að vitna til líkindanna
milli þeirra bíla og einkaþotna. Geta
má þess að breytingin á bílnum kost
aði mun meira en bíllinn sjálfur.
Mikill lúxus og troðinn búnaði
Dæmi um búnað í bílnum er tvö
32 tommu Samsung smart TV, auk
Apple TV. Tvöföld WiFitenging
er í bílnum, önnur fyrir sjónvörp
og hin fyrir farþega til einkanota.
Fjögur uppdraganleg fartölvuborð
eru í bílnum, „sky light“ ljós í toppi
og RGB LEDljós á ýmsum stöðum.
Í bílnum eru sjö stórglæsileg leður
sæti með leðri frá Mercedes (sama
og í S class Benz), viðarpanell með
brúnni rót frá Benz, fjölmargir lok
aðir skápar, rafknúnar gardínur og
hægt er að loka á milli farþega og
bílstjórarýmis. Kampavínskælir er
náttúrulega á sínum stað og fjöldi
glasa í upplýstum skáp í hliðunum.
Í stuttu máli var ekkert til sparað í
þennan bíl og hann algjört augna
konfekt. Bílinn fékk Arctic Exclusive
til landsins í vor og hann hefur verið
notaður í sumar og haust við akstur
á ferðamönnum sem vilja aðeins
það besta þegar kemur að lúxus og
þægindum og nóg er að gera.
Ferðast um í lúxus
hjá Arctic Exclusive
Breytt af Diewert í Þýskalandi og er nú jafn glæsilegur að innan og
flottustu einkaþotur. Tvö risasjónvörp, 4 tölvuborð og WiFi tenging.
Mercedes Benz Sprinter bíll Arctic Exclusive.
Stórglæsileg sætin eru úr sams konar leðri og notað er í Mercedes Benz S-Class.
Uppdraganleg og mjög flott borð eru í bílnum.
100.000 Nissan Leaf
seldir í Bandaríkjunum
Nissan náði þeim áfanga að selja hundrað þúsundasta Leaf bíl sinn í Bandaríkj
unum í septembermánuði. Mán
uðurinn var einnig góður hvað sölu
bílsins áhrærir því 14 prósentum
fleiri slíkir seldust en í sama mánuði
í fyrra. Engu að síður er heildarsala
Nissan Leaf 28 prósentum undir
sölunni í fyrra á fyrstu 9 mánuðum
ársins og hafa alls selst 10.650 bílar
í ár. Bandaríkin eru langstærsti
markaður heims fyrir Nissan Leaf
bíla, en Nissan hefur frá upphafi
framleitt 239.000 Leaf bíla, svo 42
prósent þeirra hafa selst í Banda
ríkjunum. Í heimalandinu Japan
hafa selst 70.000 bílar og 63.000 í
Evrópu. Chevrolet Volt hefur frá
upphafi verið aðal samkeppnis
bíll Nissan Leaf en Chevrolet náði
því takmarki að selja 100.000 Volt
bíla nú í júlí og hefur nú alls selt ríf
lega 107.000 bíla. Nissan Leaf mun
á næstunni fá stærri 60 kWh raf
hlöður og ná þá 320 km drægi. Ef til
vill mun salan á Leaf taka kipp við
markaðssetningu hans.
Nissan Leaf er vinsæll um allan heim en mest seldur í Bandaríkjunum.
General
Motors segir
upp 2.000
manns
Um leið og bílakaupendur vestanhafs velja helst jepplinga og jeppa hrynur sala
fólksbíla, ekki síst minni fólksbíla.
Við þessu þurfa bílaframleiðendur
að bregðast og það hefur General
Motors þurft að gera á sársauka
fullan hátt og hefur nú sagt upp
2.000 starfsmanna sinna í verk
smiðjum sem framleiða fólks
bíla GM. Eru þessar uppsagnir
í verksmiðjum GM í Lansing í
Michigan og Lordstown í Ohio.
Þar eru meðal annars framleiddir
bílarnir Chevrolet Cruze, Cadillac
ATS og CTS og Chevrolet Camaro.
Sala Cruze hefur fallið um 20 pró
sent á árinu og sala Camaro um 9
prósent. Í báðum verksmiðjunum
verður þriðju vaktinni hætt og
aðeins unnið á tveimur vöktum.
Taka uppsagnirnar gildi frá og með
janúar á næsta ári.
Um leið og GM tilkynnti þessar
uppsagnir greindi fyrirtækið frá
því að það hygðist fjárfesta fyrir
900 milljónir dollara í öðrum verk
smiðjum fyrirtækisins sem fram
leiða jepplinga og jeppa, en ekki
kemur fram hvort þessi fjárfesting
kallar á ráðningar starfsfólks.
Gullöld bílsins – Glæsi-
vagnar risanna þriggja
Út er komin hjá Forlaginu bókin
Gullöld bílsins eftir Örn Sigurðs-
son, en hann er höfundur bókanna
Íslenska bílaöldin og Króm og
hvítir hringir. Á fimmta og sjötta
áratug síðustu aldar voru risarnir
þrír, General Motors, Ford og
Chrysler, nær allsráðandi á bíla-
markaði heimsins. Á sama tíma
átti sér stað mesta bylting í tækni
og hönnun sem sést hefur og
glæsilegustu bílar sögunnar litu
dagsins ljós. Í Gullöld bílsins er
þetta minnisstæða tímabil rifj-
að upp með yfir 400 myndum af
flottustu bílunum og auglýsing-
unum sem notaðar voru til að kynna þá.
Greint er frá því helsta sem gerðist á þessum árum og stiklað á stóru í
sögu framleiðendanna. Gullöld bílsins er 152 bls. að lengd og ómissandi
fyrir alla bílaáhugamenn.
Í bókinni eru yfir 400 myndir af fegurstu bílum gullaldaráranna vestanhafs.
1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r26 F r É T T A b L A Ð I Ð
Bílar
1
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
4
9
-B
7
F
C
1
B
4
9
-B
6
C
0
1
B
4
9
-B
5
8
4
1
B
4
9
-B
4
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K