Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 5 8 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 1 . n ó v e M b e r 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag Vertu laus við LIÐVERKINA! Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 1 1 0 7 2 stJórnMál Leiðtogar allra flokka sem sæti eiga á Alþingi gengu á fund forseta Íslands á Bessastöðum í gær. Á fundunum var rædd sú staða sem upp er komin í stjórnmálum hér á landi en í fyrsta sinn í þrjátíu ár er ekki hægt að mynda tveggja flokka stjórn. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið mjög afdráttarlaus frá kosningum um að flokkurinn eigi að leiða stjórnar- myndun. Sjálfstæðisflokkurinn er tæplega tvöfalt stærri en næststærsti flokkur landsins, Vinstri græn, undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur. Katrín gekk á fund forseta og lýsti því yfir að sitt fyrsta val við myndun nýrrar ríkis- stjórnar væri fimm flokka ríkisstjórn Vinstri grænna, Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Viðreisnar. Mynd- un slíkrar stjórnar er vandkvæðum bundin því Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, hefur sagt að ekki sé vilji til þess að ganga til liðs við Píratabandalagið svokallaða. Píratar áttu óvæntasta útspil dagsins og sögðust vera tilbúnir að verja minnihlutastjórn Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar og Við- reisnar falli. Samfylking yrði líka að koma að vörn slíkrar minnihluta- stjórnar og hefur lýst sig reiðubúna til þess. Formaður Vinstri grænna brást við þessu og sagði meirihluta- stjórn vænlegri kost. Benedikt Jóhannesson útilokar ekki minni- hlutasamstarf. Björt framtíð, næstminnsti flokk- ur landsins, átti einnig óvænt útspil að loknum fundi með forsetanum þegar Óttarr Proppé, formaður flokksins, segist hafa óskað eftir því að Viðreisn leiddi stjórnarmyndun. Benedikt sjálfur lagði einnig til að Viðreisn leiddi stjórnarmyndun en flokkurinn er nýr á þingi með sjö þingmenn. Þá vill Benedikt að samhliða stjórnarmyndunarviðræðum verði sett á fót samstarf allra flokka til að ræða vinnubrögð á Alþingi. Formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, segir flokkinn tilbúinn í samstarf við hvern sem er. Forseti fundar aftur með for- mönnum í dag. - snæ / sjá síður 4 og 8 Spilaborg Bjarni Benediktsson fer fram á stjórnarmyndunarumboðið. Katrín Jakobsdóttir vill mynda fimm flokka stjórn. Benedikt Jóhannesson vill að hans flokkur, Viðreisn, leiði stjórnarmyndun og formaður Bjartrar framtíðar styður þá kröfu. Píratar vilja styðja minnihluta- stjórn Viðreisnar, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar en Samfylkingin fer ekki í ríkisstjórn. Formannsskipti og umræður um að leggja flokkinn niður Oddný Harðardóttir sagði af sér formennsku í Samfylkingunni í gær eftir fund með forseta Íslands á Bessastöðum. Stjórnina eftirlét hún Loga Einarssyni, nýkjörnum vara- formanni flokksins, sem jafnframt er eini kjördæmakjörni þingmaður hans eftir útreiðina í alþingis- kosningum á laugardag. Heimildir Fréttablaðsins herma að almennir flokks- menn ræði nú lausn á vand- ræðum flokksins. Viðraðar hafi verið hugmyndir um að sameinast Bjartri framtíð eða koma til framkvæmda þeirri hugmynd sem lögð var fram í aðdraganda formannskjörs að leggja flokkinn niður og byrja upp á nýtt. hluti af ÞÚ ÞARFT í hádeginu KJaraMál Kjararáð hittist á kjör- dag og hækkaði laun þingmanna, ráðherra og forseta Íslands. Hækk- unin tók gildi 30. október og tekur því einnig til biðlauna ráðherra og þing- manna sem hætta í kjölfar kosninga. Þingfararkaup hækkar um 44% og er nú rúm 1,1 milljón á mánuði. Ráðherrar fá 35,5 prósenta hækkun og verða með 1,8 milljónir í laun eftir hækkun. Forsætisráðherra fær 200 þúsund krónum meira. Laun forseta hækka um fimmtung og verða rétt tæpar þrjár milljónir. Hækkunin kemur ofan á almenna 7,15 prósenta hækk- un frá í júní. Í úrskurðinum, sem birtist á vef Kjararáðs í gær, segir að mikilvægt sé að þjóðkjörnir fulltrúar séu fjárhags- lega sjálfstæðir. Störf þeirra eigi sér ekki hliðstæðu á vinnumarkaði. – jóe / sjá síðu 8 Þingfararkaup tvöfaldast plús 2 sérblöð l FólK l  bÍlar *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 sKoðun Gylfi Arnbjörnsson skrifar um félagslegan stöðug- leika 14 sport Stigahæsti Íslendingurinn elskar að spila vörn. 16 tÍMaMót Guð- rún Ingólfs- dóttir bók- mennta- fræðingur hefur rann- sakað skriftaiðju kvenna. 18 lÍFið Pólskt súpermódel í myndbandi með Úlfur Úlfur. 30 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 F -A 1 2 0 1 B 1 F -9 F E 4 1 B 1 F -9 E A 8 1 B 1 F -9 D 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.