Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 24
Jeep Cherokee Finnur Thorlacius reynsluekur N ýjasta bílaumboð landsins, Ís-Band er umboðsaðili fyrir Jeep-bíla, en að auki öll önnur bíla- merki sem tilheyra Fiat-Chrysler bíla- samsteypunni. Þar má finna bíla frá Fiat, Dodge, Chrysler, Alfa Romeo, Ram og að sjálfsögðu Jeep, svo í tilviki Ís-Band er um að ræða eitt af þeim bílaumboð- um sem selja bíla frá fjöldamörg- um bílaframleiðendum. Velja má um margar gerðir Jeep-bíla hjá Ís-Band og einn þeirra er hinn vinsæli Cherokee, sem ekki má þó rugla saman við öllu stærri bróður hans Grand Cherokee. Jeep Cherokee er jeppi sem fell- ur í millistærðarflokk jeppa (Midsize Cross over SUV) og er ámóta að stærð og eldri gerð bíls- ins sem seldist einkar vel hér á landi og sjá má enn talsvert af á götunum. Jeep Cherokee kom fyrst fram á sjónar sviðið árið 1974, en er nú af fimmtu kynslóð sem kynnt var árið 2014 og hefur selst mjög vel. Svo vel reynd- ar að Fiat Chrysler hætti fram- leiðslu Dodge Dart og Chrysler 200 í verksmiðjum sínum í Ohio til að geta framleitt þar meira af Cherokee. Hann er þó einn- ig framleiddur í Mexíkó, Argent- ínu og Ástralíu. Árið 2014 seld- ust 180.000 Cherokee, en 295.000 í fyrra. kantaðar línur Jeep Mikið dálæti virðist vera á köntuðum línum í bandarísk- um bílum þessi dægrin og skera þeir sig nokkuð frá evrópskum og asískum bílaframleiðendum sem sveipa sína bíla mýkri og bognari línum. Þessar amerísku köntuðu línur leika svo sannar- lega um Cherokee, en til eru þó aðrar gerðir Jeep-bíla sem TrausTvekjandi kosTur Nú er loks komið íslenskt umboð fyrir Jeep og bílamerkin sem tilheyra Fiat-Chrysler. Jeep Cherokee er einn fjölmargra jeppa sem í boði eru og er endurkoma hans kærkomin viðbót. Jeep Cherokee. mynd/gva Gæðavottaðar álfelgur AXARHÖFÐA 16 5673322 Felgur.is LED Perur Flott ljós Bílar Fréttablaðið 6 1. nóvember 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 F -A B 0 0 1 B 1 F -A 9 C 4 1 B 1 F -A 8 8 8 1 B 1 F -A 7 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.