Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 28
suzuki s-cross Finnur Thorlacius reynsluekur F orveri Suzuki S-Cross bílsins sem hefur feng- ist hér á landi í nokkur ár var Suzuki SX4, en árið 2013 var skipt um nafn og bíllinn stækk- aði umtalsvert og fór farangursrýmið til að mynda úr 270 lítrum í 430 lítra. Bílar Suz- uki eru almennt smáir og bíla- framleiðendinn þekktur fyrir það, sem og gott fjórhjóladrif sem er í þeim flestum. Því má ef til vill segja að S-Cross sé frem- ur stór á meðal Suzuki-bíla og sannar lega góður ferðabíll með 18 cm undir lægsta punkt, gott farþega- og flutningsrými og fjórhjóladrif til að komast um á erfiðari leiðum. Bíllinn hækk- aði um 1 cm undir lægsta punkt við andlitslyftinguna og eru það góðar fréttir fyrir íslenska kaup- endur. Það er líka einhver góð ástæða fyrir því að margar bíla- leigur landsins hafa valið Su- zuki-bíla í sína þjónustu, þar fara bílar sem henta íslensk- um vegum, leigutakar komast leiðar sinnar á þeim og þar sem þeir ferðast oftast um í pörum og sjaldnar í stórum fjölskyld- um eru Suzuki-bílar nógu stór- ir til starfans. Auk þess eru þeir áreiðanlegir og kosta ekki mikið og því ekki eins dýrir í leigu og stærri fjórhjóladrifsbílar. Þetta vita margir Íslendingar og því eru bílar Suzuki vinsælir á meðal þeirra líka. Lagleg andlitslyfting Núverandi kynslóð S-Cross er orðin þriggja ára og því komið að andlitslyftingu á bílnum og þessi snaggaralegi bíll er orðinn fríðari og með mun grimmari framenda. Oft er talað um það að S-Cross sé einn helsti keppinautur Niss- an Qashqai, sem er mest seldi jepplingur Evrópu og reyndar heimsins alls. Það fer heldur ekki hjá því að bílarnir séu líkir og það á við einn samkeppnisbílinn enn, þ.e. Kia Sportage. Þeir eru ekki bara svipaðir í útliti, heldur stærð einnig, þó svo Kia Sportage hafi vinninginn hvað farangurs- rými varðar. Flestir eru þó á því að Suzuki S-Cross hafi vinning- inn þegar kemur að skemmtana- gildi í akstri og hæfni til að glíma við erfiðari aðstæður. Það kom í ljós í reynsluakstri á S-Cross. Hann er einstaklega lipur í akstri og meðfærilegur bíll. Honum var ekið talsvert utanbæjar og fékk að glíma við bæði malbik og mal- arvegi og í mölinni og í smá ófær- um fór hann á kostum og minnti á að þar fer einn af hæfum Suzuki- bílum með mikla getu. sprækar Boosterjet-vélar Fá má S-Cross með tveimur gerð- um bensínvéla hér á landi, 1,0 og 1,4 lítra Boosterjet-vélum sem báðar eru með forþjöppu. Þær eru 112 og 140 hestafla og duga þessum 1,2 tonna og létta bíl ágætlega. Reynsluakstursbíllinn var með stærri vélinni og er hann ári sprækur með henni og skort- ir aldrei afl. Í borgarakstri er S-Cross fimur bíll sem skemmti- legt er að henda fyrir hornin og hliðarhallinn alveg innan marka fyrir jeppling. Veggrip er mikið og Allgrip-fjórhjóladrifið, sem er reyndar stillanlegt, sannar sig fljótt. Fá má S-Cross með báðum vélum beinskipta eða sjálfskipta, en reyndur var sjálfskipti bíllinn og virkaði sjálfskiptingin prýðis- vel. Fjöðrun bílsins er fremur í harðari kantinum og fer það eftir óskum ökumanns hvort það telst til kosta eður ei. Þeir sem kjósa góða aksturseiginleika umfram mjúk þægindi fagna henni en þeir sem velja mýktina umfram hæfni í akstri telja það ókost. Mikill staðalbúnaður Hvað innréttingu bílsins varð- ar þá má helst setja út á fátæk- legri efnisnotkun en finna má til dæmis í samkeppnisbílnum Niss- an Qashqai. Þessi staðreynd á við flesta Suzuki-bíla, en á móti kemur að allt er ávallt vel smíð- að og bilar lítið. Svo sem eins og í Toyota-bílum. Jafnvel ódýrustu gerðir S-Cross eru vel útbúnar staðalbúnaði. Þeir eru með hita- stilltri miðstöð, skriðstilli, USB- tengi, sætishiturum, 12 volta tengjum fram í og aftur í, leð- urklæddu stýri, bakkmyndavél, lykil lausri ræsingu og hurðar- opnun, 7 hátalara hljóðkerfi og þeir koma allir á 17 tommu ál- felgum. Ódýrasta útgáfa S-Cross kostar 4.230.000 kr. og er hann þá beinskiptur og með minni vél- inni. Reynsluakstursbíllinn með stærri vélinni kostar 4.880.000 kr. og í dýrustu GLX-útgáfunni kostar hann 5.380.000 kr. Nissan Qashqai kostar frá 3.790.000 kr. og Kia Sportage frá 4.690.77 kr. LagLegri og hærri S-CroSS Komin er ný andlitslyft gerð Suzuki S-Cross. Hefur hækkað frá vegi og er því enn hæfari til að glíma við íslenskar aðstæður með sitt góða Allgrip-fjórhjóladrif. Er með skemmtilega stífa fjöðrun og lipur í akstri. 1,4 l bensínvél 140 hestöfl fjórhjóladrif Eyðsla 5,2 l/100 km í bl. akstri Mengun 128 g/km CO2 Hröðun 10,5 sek. Hámarkshraði 200 km/klst. Verð 4.230.000 kr. umboð suzuki á íslandi l Aksturseiginleikar l stíf og sportleg fjöðrun l hæð frá vegi l efnisnotkun í innréttingu l verð á dýrustu útgáfu suzuki s-cross mynd/eyþór BíLar Fréttablaðið 10 1. nóvember 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 F -C 3 B 0 1 B 1 F -C 2 7 4 1 B 1 F -C 1 3 8 1 B 1 F -B F F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.