Fréttablaðið - 01.11.2016, Qupperneq 28
suzuki s-cross
Finnur Thorlacius reynsluekur
F
orveri Suzuki S-Cross
bílsins sem hefur feng-
ist hér á landi í nokkur
ár var Suzuki SX4, en
árið 2013 var skipt um
nafn og bíllinn stækk-
aði umtalsvert og fór
farangursrýmið til að mynda úr
270 lítrum í 430 lítra. Bílar Suz-
uki eru almennt smáir og bíla-
framleiðendinn þekktur fyrir
það, sem og gott fjórhjóladrif
sem er í þeim flestum. Því má ef
til vill segja að S-Cross sé frem-
ur stór á meðal Suzuki-bíla og
sannar lega góður ferðabíll með
18 cm undir lægsta punkt, gott
farþega- og flutningsrými og
fjórhjóladrif til að komast um á
erfiðari leiðum. Bíllinn hækk-
aði um 1 cm undir lægsta punkt
við andlitslyftinguna og eru það
góðar fréttir fyrir íslenska kaup-
endur. Það er líka einhver góð
ástæða fyrir því að margar bíla-
leigur landsins hafa valið Su-
zuki-bíla í sína þjónustu, þar
fara bílar sem henta íslensk-
um vegum, leigutakar komast
leiðar sinnar á þeim og þar sem
þeir ferðast oftast um í pörum
og sjaldnar í stórum fjölskyld-
um eru Suzuki-bílar nógu stór-
ir til starfans. Auk þess eru þeir
áreiðanlegir og kosta ekki mikið
og því ekki eins dýrir í leigu og
stærri fjórhjóladrifsbílar. Þetta
vita margir Íslendingar og því
eru bílar Suzuki vinsælir á meðal
þeirra líka.
Lagleg andlitslyfting
Núverandi kynslóð S-Cross er
orðin þriggja ára og því komið að
andlitslyftingu á bílnum og þessi
snaggaralegi bíll er orðinn fríðari
og með mun grimmari framenda.
Oft er talað um það að S-Cross
sé einn helsti keppinautur Niss-
an Qashqai, sem er mest seldi
jepplingur Evrópu og reyndar
heimsins alls. Það fer heldur ekki
hjá því að bílarnir séu líkir og
það á við einn samkeppnisbílinn
enn, þ.e. Kia Sportage. Þeir eru
ekki bara svipaðir í útliti, heldur
stærð einnig, þó svo Kia Sportage
hafi vinninginn hvað farangurs-
rými varðar. Flestir eru þó á því
að Suzuki S-Cross hafi vinning-
inn þegar kemur að skemmtana-
gildi í akstri og hæfni til að glíma
við erfiðari aðstæður. Það kom
í ljós í reynsluakstri á S-Cross.
Hann er einstaklega lipur í akstri
og meðfærilegur bíll. Honum var
ekið talsvert utanbæjar og fékk
að glíma við bæði malbik og mal-
arvegi og í mölinni og í smá ófær-
um fór hann á kostum og minnti á
að þar fer einn af hæfum Suzuki-
bílum með mikla getu.
sprækar Boosterjet-vélar
Fá má S-Cross með tveimur gerð-
um bensínvéla hér á landi, 1,0 og
1,4 lítra Boosterjet-vélum sem
báðar eru með forþjöppu. Þær
eru 112 og 140 hestafla og duga
þessum 1,2 tonna og létta bíl
ágætlega. Reynsluakstursbíllinn
var með stærri vélinni og er hann
ári sprækur með henni og skort-
ir aldrei afl. Í borgarakstri er
S-Cross fimur bíll sem skemmti-
legt er að henda fyrir hornin og
hliðarhallinn alveg innan marka
fyrir jeppling. Veggrip er mikið
og Allgrip-fjórhjóladrifið, sem er
reyndar stillanlegt, sannar sig
fljótt. Fá má S-Cross með báðum
vélum beinskipta eða sjálfskipta,
en reyndur var sjálfskipti bíllinn
og virkaði sjálfskiptingin prýðis-
vel. Fjöðrun bílsins er fremur í
harðari kantinum og fer það eftir
óskum ökumanns hvort það telst
til kosta eður ei. Þeir sem kjósa
góða aksturseiginleika umfram
mjúk þægindi fagna henni en þeir
sem velja mýktina umfram hæfni
í akstri telja það ókost.
Mikill staðalbúnaður
Hvað innréttingu bílsins varð-
ar þá má helst setja út á fátæk-
legri efnisnotkun en finna má til
dæmis í samkeppnisbílnum Niss-
an Qashqai. Þessi staðreynd á
við flesta Suzuki-bíla, en á móti
kemur að allt er ávallt vel smíð-
að og bilar lítið. Svo sem eins og
í Toyota-bílum. Jafnvel ódýrustu
gerðir S-Cross eru vel útbúnar
staðalbúnaði. Þeir eru með hita-
stilltri miðstöð, skriðstilli, USB-
tengi, sætishiturum, 12 volta
tengjum fram í og aftur í, leð-
urklæddu stýri, bakkmyndavél,
lykil lausri ræsingu og hurðar-
opnun, 7 hátalara hljóðkerfi og
þeir koma allir á 17 tommu ál-
felgum. Ódýrasta útgáfa S-Cross
kostar 4.230.000 kr. og er hann
þá beinskiptur og með minni vél-
inni. Reynsluakstursbíllinn með
stærri vélinni kostar 4.880.000
kr. og í dýrustu GLX-útgáfunni
kostar hann 5.380.000 kr. Nissan
Qashqai kostar frá 3.790.000 kr.
og Kia Sportage frá 4.690.77 kr.
LagLegri og hærri S-CroSS
Komin er ný andlitslyft gerð Suzuki S-Cross. Hefur hækkað frá vegi og er því enn hæfari til að glíma við
íslenskar aðstæður með sitt góða Allgrip-fjórhjóladrif. Er með skemmtilega stífa fjöðrun og lipur í akstri.
1,4 l bensínvél
140 hestöfl
fjórhjóladrif
Eyðsla 5,2 l/100 km í bl. akstri
Mengun 128 g/km CO2
Hröðun 10,5 sek.
Hámarkshraði 200 km/klst.
Verð 4.230.000 kr.
umboð suzuki á íslandi
l Aksturseiginleikar
l stíf og sportleg fjöðrun
l hæð frá vegi
l efnisnotkun í innréttingu
l verð á dýrustu útgáfu
suzuki s-cross
mynd/eyþór
BíLar
Fréttablaðið
10 1. nóvember 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
F
-C
3
B
0
1
B
1
F
-C
2
7
4
1
B
1
F
-C
1
3
8
1
B
1
F
-B
F
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K