Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 44
TónlisTarnördið Tónlistarnördið elskar alla tónlist og er gjörsamlega að missa sig úr spennu fyrir Airwaves-hátíðinni og þá sérstaklega off-venue tónleikum sem nördið þvælist um eftir vel skipulagðri dagskrá. Tónlistarnördið er sérstaklega hrifið af grasrótinni og útlenskum böndum – sérstaklega hljómsveitum sem enginn hefur heyrt um áður. Nördið verður tíður gestur í Lucky Records en plötubúðin er með gríðarlega öfluga dagskrá sem byrjar mjög snemma í ár. En það er ýmislegt spennandi á öðrum stöðum í bænum. Það er spennandi dagskrá í boði Stelpur rokka! á Lofti á miðvikudaginn þar sem ungar og efnilegar stelpur koma fram ásamt vönum böndum eins og t.d. RuGl og Kælunni miklu. Á Kex hosteli verður KEXP útvarpsstöðin á svæðinu og hellingur af algjörri snilld, til að mynda verður Digable Planets með ókeypis tónleika þar ásamt alls konar forvitnilegu. Um helgina er rosalega þétt dagskrá fyrir Tónlistarnördið og það þarf að hlaupa á milli staða eða hreinlega klóna sig. Loft er með þétta dagskrá frá breska plötufyrirtækinu Cannibal Hymns og hinu þýska Shameless/Limitless á laugardaginn. Dillon býður upp á stóra og mikla grasrótar-dagskrá þar sem þungarokk er tæklað nokkuð vel, mikið um upprennandi bönd og laugar- dagurinn sérstaklega vel skipaður erlendum böndum. Bryggjan verður einnig með mikið af rjómanum í íslenskri tónlist. KÍTÓN verður með viðamikla dag- skrá í Hannesarholti og svo framvegis. Nóg að gerast fyrir nördið. HÚS-KOFI-KAMAR- HÖLL Málþing Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi um mikilvægi mannsæmandi og öruggs íbúðahúsnæðis. Haldið í Turninum í Kópavogi 3. nóvember 2016 kl. 13:00 - 16:00. 13.00-13.10 Ávarp Unnur V. Ingólfsdóttir formaður Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi og framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar. 13.10-13.30 Nýtt landslag-aukin velferð fyrir alla? Ellý Alda Þorsteinsdóttir skrifstofustjóri skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. 13.30-14.00 Sveitarfélögin- hornsteinar húsnæðisstefnu Halldór Halldórsson formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. 14.00-14.30 Að hanna lífsgæði Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands 14.30-15.00 Kaffi 15.00-15.30 Hagkvæmar húsnæðislausnir á Íslandi – stutt yfirlit Pétur Ármannsson arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands 15.30-16.00 Vandamál hjónanna Gunnars og Hallgerðar á Hlíðarenda Óttar Guðmundsson geðlæknir 16.00-16.10 Lokaorð Aðalsteinn Sigfússon sviðsstjóri velferðarsviðs Kópavogsbæjar Fundarstjóri: Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar Markmið málþingsins er að fjalla um mikilvægi mannsæmandi og öruggs íbúðarhúsnæðis.  Hvað er mannsæmandi og hvað er öryggi í húsnæðismálum?  Stuðlar ný húsnæðislöggjöf að: o auknum möguleikum tekjulágra og utangarðsfólks til mannsæmandi búsetu? o vexti langtímaleigumarkaðar? o vexti leigumarkaðar fyrir ferðamenn og auðfengins gróða leigusala? Þátttökugjald er 7.000 krónur Vinsamlegast skráið þátttöku með upplýsingum um nafn þátttakanda og kennitölu greiðanda á netfangið rebekkath@kopavogur.is Off-venu e dagskrá L ífsins airwave s-hátíðin er dottin í gang en hátíðinn i fylgir viðamiki l off-venu e dagskrá þar sem allir hels tu tón- listarmen n landsin s spila fy rir alla se m vilja he yra og sjá. Lífið tók sama n léttar le iðbeining ar um da gskrána. 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r28 L í f I Ð ∙ f r É T T A b L A Ð I Ð PoPParinn Popparinn vill bara sjá öll heitustu böndin og því algjör plús að gera það ókeypis. Off-venue dagskráin er gjörsamlega stöppuð af öllum vinsælustu hljómsveitum og tónlistarmönnum landsins og því úr nógu að velja. Popparinn má ekki missa af Auði sem var að koma frá Red Bull Music Aca- demy í Montréal. Hann verður til dæmis á Prikinu og Slippbarnum á miðviku- dag og fimmtudag. Hildur og Karó gera báðar afar vandað popp, Hildur hefur verið spiluð í döðlur og Karó verður það bráðlega. Glowie verður rosalega dugleg að spila off-venue og hún verður til dæmis með litla „VIP“ tónleika í boði Nordic Playlist á fimmtudaginn. Úlfur Úlfur, Emmsjé Gauti, Aron Can, Sturla Atlas, Cyber og fleiri stór nöfn í íslensku rappi verða hér og þar alla vikuna og Popparinn getur ekki annað en mætt á öll þessi bönd til að standa undir nafni – enda er íslenska rappsenan löngu búin að taka við kyndlinum sem vinsælasta tónlistarstefnan á landinu. Digable Planets á Kexi er eitthvað sem Popparinn getur ekki misst af, en sveitin verður þar klukkan hálf fjögur á föstudaginn og líklega stærsta erlenda nafnið sem ætlar að spila off-venue. ParTíljónið Partíljónið byrjar á Lofti á þriðjudeginum og keyrir partíið strax í gang. Prikið er mjög heppilegur staður fyrir Partíljónið enda er öll dagskráin þar í seinna laginu – Partíljónið er yfirleitt pínu lengi í gang þessa vikuna enda tekur hún á. Þar munu líka allir helstu plötusnúðar bæjarins taka saman höndum við að byrja partíið svo að það er ákaflega hentugt. Bryggjan býður upp á Airwaves-bjórinn og hann er sérstaklega gerður fyrir dagdrykkju – eða drykkju eins og Partíljónið kallar það. Þar verða einnig sérstakir kokteilar í boði sem koma ljóninu í næsta gír. sælkerinn Sælkerinn planar off-venue dagskrána sína með mag- anum og nýtir sér það að margir þeir staðir sem bjóða upp á slíka dagskrá bjóða einnig upp á mat. Árið í ár er sérstaklega gott fyrir Sælkerann því að mikil gróska í matsölustöðum og míkróbjórum hefur skapað kjörumhverfi fyrir sambland af veislu fyrir bæði eyru og bragðlauka. Sælkerinn byrjar miðvikudaginn í snemmbúnum kvöldverði á Bryggjunni brugghúsi þar sem Airwaves- matseðill verður í gangi og IPA sérbruggaður fyrir hátíðina. Sælkerinn nýtur matarins á sama tíma og Úlfur Úlfur spilar, en þeir byrja klukkan fimm og Hjaltalín tekur við eftir það. Á fimmtudeginum byrjar Airwaves-dagurinn hjá Sælkeranum í hádegisverði á Bazaar Oddsson þar sem hljómsveitirnar Birth Ctrl og Var troða upp og á föstudeginum eru það Hildur og Cyber á sama tíma. Laugardagur og sunnudagur hefjast báðir á bröns, en þar er um ýmislegt að velja. Bryggjan væri góður valkostur á laugardeginum en AmabAdamA, Hildur og Emmsjé Gauti sjá um tónlistina á þeim tíma. Sunnudagurinn er solid bröns á Bazaar Oddsson en asdfhg og Glow RVK sjá um tónana meðan Sælkerinn matast. Ef Sælkerinn er seinn á fætur er það Vörubíll á Prikinu sem startar sunnudeginum. Lífið 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K _ N Y .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 F -C 8 A 0 1 B 1 F -C 7 6 4 1 B 1 F -C 6 2 8 1 B 1 F -C 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.