Fréttablaðið - 01.11.2016, Qupperneq 44
TónlisTarnördið
Tónlistarnördið elskar alla tónlist og er gjörsamlega að missa sig úr spennu
fyrir Airwaves-hátíðinni og þá sérstaklega off-venue tónleikum sem nördið
þvælist um eftir vel skipulagðri dagskrá. Tónlistarnördið er sérstaklega hrifið
af grasrótinni og útlenskum böndum – sérstaklega hljómsveitum sem enginn
hefur heyrt um áður.
Nördið verður tíður gestur í Lucky Records en plötubúðin er með gríðarlega
öfluga dagskrá sem byrjar mjög snemma í ár. En það er ýmislegt spennandi
á öðrum stöðum í bænum. Það er spennandi dagskrá í boði Stelpur rokka! á
Lofti á miðvikudaginn þar sem ungar og efnilegar stelpur koma fram ásamt
vönum böndum eins og t.d. RuGl og Kælunni miklu. Á Kex hosteli verður KEXP
útvarpsstöðin á svæðinu og hellingur af algjörri snilld, til að mynda verður
Digable Planets með ókeypis tónleika þar ásamt alls konar forvitnilegu.
Um helgina er rosalega þétt dagskrá fyrir Tónlistarnördið og það þarf að
hlaupa á milli staða eða hreinlega klóna sig. Loft er með þétta dagskrá frá
breska plötufyrirtækinu Cannibal Hymns og hinu þýska Shameless/Limitless
á laugardaginn. Dillon býður upp á stóra og mikla grasrótar-dagskrá þar sem
þungarokk er tæklað nokkuð vel, mikið um upprennandi bönd og laugar-
dagurinn sérstaklega vel skipaður erlendum böndum. Bryggjan verður einnig
með mikið af rjómanum í íslenskri tónlist. KÍTÓN verður með viðamikla dag-
skrá í Hannesarholti og svo framvegis. Nóg að gerast fyrir nördið.
HÚS-KOFI-KAMAR- HÖLL
Málþing Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi um
mikilvægi mannsæmandi og öruggs íbúðahúsnæðis.
Haldið í Turninum í Kópavogi 3. nóvember 2016 kl. 13:00 - 16:00.
13.00-13.10 Ávarp Unnur V. Ingólfsdóttir formaður Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi og
framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar.
13.10-13.30 Nýtt landslag-aukin velferð fyrir alla?
Ellý Alda Þorsteinsdóttir skrifstofustjóri skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
13.30-14.00 Sveitarfélögin- hornsteinar húsnæðisstefnu
Halldór Halldórsson formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
14.00-14.30 Að hanna lífsgæði
Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands
14.30-15.00 Kaffi
15.00-15.30 Hagkvæmar húsnæðislausnir á Íslandi – stutt yfirlit
Pétur Ármannsson arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands
15.30-16.00 Vandamál hjónanna Gunnars og Hallgerðar á Hlíðarenda
Óttar Guðmundsson geðlæknir
16.00-16.10 Lokaorð Aðalsteinn Sigfússon sviðsstjóri velferðarsviðs Kópavogsbæjar
Fundarstjóri: Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar
Markmið málþingsins er að fjalla um mikilvægi mannsæmandi og öruggs íbúðarhúsnæðis.
Hvað er mannsæmandi og hvað er öryggi í húsnæðismálum?
Stuðlar ný húsnæðislöggjöf að:
o auknum möguleikum tekjulágra og utangarðsfólks til mannsæmandi búsetu?
o vexti langtímaleigumarkaðar?
o vexti leigumarkaðar fyrir ferðamenn og auðfengins gróða leigusala?
Þátttökugjald er 7.000 krónur
Vinsamlegast skráið þátttöku með upplýsingum um nafn þátttakanda og kennitölu greiðanda á
netfangið rebekkath@kopavogur.is
Off-venu
e
dagskrá L
ífsins
airwave
s-hátíðin
er dottin
í gang en
hátíðinn
i fylgir
viðamiki
l off-venu
e dagskrá
þar sem
allir hels
tu tón-
listarmen
n landsin
s spila fy
rir alla se
m vilja he
yra og
sjá. Lífið
tók sama
n léttar le
iðbeining
ar um da
gskrána.
1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r28 L í f I Ð ∙ f r É T T A b L A Ð I Ð
PoPParinn
Popparinn vill bara sjá öll heitustu böndin og því algjör plús að gera það
ókeypis. Off-venue dagskráin er gjörsamlega stöppuð af öllum vinsælustu
hljómsveitum og tónlistarmönnum landsins og því úr nógu að velja.
Popparinn má ekki missa af Auði sem var að koma frá Red Bull Music Aca-
demy í Montréal. Hann verður til dæmis á Prikinu og Slippbarnum á miðviku-
dag og fimmtudag. Hildur og Karó gera báðar afar vandað popp, Hildur hefur
verið spiluð í döðlur og Karó verður það bráðlega. Glowie verður rosalega
dugleg að spila off-venue og hún verður til dæmis með litla „VIP“ tónleika í boði
Nordic Playlist á fimmtudaginn.
Úlfur Úlfur, Emmsjé Gauti, Aron Can, Sturla Atlas, Cyber og fleiri stór nöfn í
íslensku rappi verða hér og þar alla vikuna og Popparinn getur ekki annað en
mætt á öll þessi bönd til að standa undir nafni – enda er íslenska rappsenan
löngu búin að taka við kyndlinum sem vinsælasta tónlistarstefnan á landinu.
Digable Planets á Kexi er eitthvað sem Popparinn getur ekki misst af, en
sveitin verður þar klukkan hálf fjögur á föstudaginn og líklega stærsta erlenda
nafnið sem ætlar að spila off-venue.
ParTíljónið
Partíljónið byrjar á Lofti á þriðjudeginum og keyrir partíið strax í gang. Prikið er
mjög heppilegur staður fyrir Partíljónið enda er öll dagskráin þar í seinna laginu
– Partíljónið er yfirleitt pínu lengi í gang þessa vikuna enda tekur hún á. Þar
munu líka allir helstu plötusnúðar bæjarins taka saman höndum við að byrja
partíið svo að það er ákaflega hentugt.
Bryggjan býður upp á Airwaves-bjórinn og hann er sérstaklega gerður fyrir
dagdrykkju – eða drykkju eins og Partíljónið kallar það. Þar verða einnig sérstakir
kokteilar í boði sem koma ljóninu í næsta gír.
sælkerinn
Sælkerinn planar off-venue dagskrána sína með mag-
anum og nýtir sér það að margir þeir staðir sem bjóða
upp á slíka dagskrá bjóða einnig upp á mat. Árið í
ár er sérstaklega gott fyrir Sælkerann því að mikil
gróska í matsölustöðum og míkróbjórum hefur
skapað kjörumhverfi fyrir sambland af veislu fyrir
bæði eyru og bragðlauka.
Sælkerinn byrjar miðvikudaginn í snemmbúnum
kvöldverði á Bryggjunni brugghúsi þar sem Airwaves-
matseðill verður í gangi og IPA sérbruggaður fyrir hátíðina.
Sælkerinn nýtur matarins á sama tíma og Úlfur Úlfur spilar, en þeir byrja
klukkan fimm og Hjaltalín tekur við eftir það.
Á fimmtudeginum byrjar Airwaves-dagurinn hjá Sælkeranum í hádegisverði
á Bazaar Oddsson þar sem hljómsveitirnar Birth Ctrl og Var troða upp og á
föstudeginum eru það Hildur og Cyber á sama tíma.
Laugardagur og sunnudagur hefjast báðir á bröns, en þar er um ýmislegt að
velja. Bryggjan væri góður valkostur á laugardeginum en AmabAdamA, Hildur
og Emmsjé Gauti sjá um tónlistina á þeim tíma. Sunnudagurinn er solid bröns
á Bazaar Oddsson en asdfhg og Glow RVK sjá um tónana meðan Sælkerinn
matast. Ef Sælkerinn er seinn á fætur er það Vörubíll á Prikinu sem startar
sunnudeginum.
Lífið
0
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
F
-C
8
A
0
1
B
1
F
-C
7
6
4
1
B
1
F
-C
6
2
8
1
B
1
F
-C
4
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K