Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 22
Audi sýndi árið 2014 TT Quattro Sport Concept tilraunabíl og var hann með hreint ótrúlegt afl miðað við lítið sprengirými vél­ arinnar í bílnum. Þessi vél er fjögurra strokka og með 2,0 lítra sprengirými, en samt sem áður kreisti Audi 420 hestöfl úr henni. Meiningin var að nota þessa vél í nokkra bíla innan stóru Volks­ wagen­bílafjölskyldunnar, en nú hefur Audi tekið þá ákvörðun að hætta við framleiðslu þessarar vélar. Það var Friedrich Eichler, fyrrverandi vélarhönnuður hjá AMG­sportbíladeild Mercedes Benz sem þróaði þessa vél, sem og EA888 2,5 lítra og 400 hestafla vélina frá Audi. Til stóð að fram­ leiða báðar þessar vélar í aflmikl­ ar útgáfur Audi­bíla, en dísilvéla­ svindl Volkswagen hefur gert það að verkum að hætt hefur verið við þróun þeirra bíla og véla sem ekki teljast nauðsynleg fyrir Volkswagen­bílasamstæðuna. Hin öfluga fjögurra strokka 2,0 lítra vél sem nú hefur orðið fyrir niðurskurðarhnífnum dugði til að koma Audi TT RS í 100 km hraða á litlum 3,7 sekúndum. Hámarks­ tog hennar náðist milli 2.400 og 6.300 snúninga og mesta afl við 6.700 snúninga. Ókosturinn við þessa vél er hins vegar sá að hún er dýr í framleiðslu og því fór sem fór. Líklegt er talið að ný 2,9 lítra V6 vél sem hönnuð er sam­ eiginlega af Porsche og Audi og skilar 440 hestöflum verði ofan á í bílum Volkswagen­bílafjöl­ skyldunnar sem krefjast mikils afls. Litla fjögurra strokka vélin hefði þó verið miklu léttari, en með hátt í sama afl og fyrir vikið hefðu aksturseiginleikar líklega orðið betri með henni. Audi hættir við 420 hestafla 2,0 lítra vélina  Audi TT RS. Þennan sérútbúna Nissan Nav­ ara björgunarbíl kynnti Nissan á bílasýningunni í Hannover ný­ lega og virðist hér um afar hæfan bíl að ræða til björgunarstarfa. Hann hefur verið hækkaður um 5 cm frá grunngerð bílsins og er á breiðum og stórum dekkjum til að tryggja það að hann kom­ ist um talsverðar ófærur. Auk þess er hann með loftinntak við þak bílsins og er því með mikla vaðdýpt. Í bílnum er gríðarlega mikill búnaður sem gagnast til björgunarstarfa og hluta hans má draga fram á skúffum úr kol­ trefjum sem renna á brautum á palli bílsins. Þar má meðal ann­ ars finna súrefniskúta, björg­ unar vesti, endurlífgunarbúnað og exi. Bílnum fylgir DJI Phant­ om dróni af vönduðustu gerð og er honum ætlað að sjá yfir björg­ unarsvæði og auðvelda að finna fólk og bjarga því. Tvær mjög stórar rafhlöður eru á palli bíls­ ins og eiga þær að sjá ýmsum rafdrifnum björgunarbúnaði fyrir orku, meðal annars klippi­ töngum, tjökkum, ljósum og hita­ blásurum. Þak björgunarbíls­ ins er 13,6 cm hærra en í hefð­ bundnum Navara. Bíllinn er búinn gríðarsterkum kösturum sem lýsa má með allan hringinn kringum bílinn. Nissan Navara björgunarbíll  Nissan Navara sem björgunarbíll. Opel sýndi „nýjan“ bíl á bílasýn­ ingunni í París í síðasta mán­ uði og þekkja flestir þennan bíl sem hinn nýja rafmagnsbíl Chevrolet Bolt. Ástæðan er nátt­ úrulega sú að General Motors á bæði Chevrolet­ og Opel­merk­ in og með þessu er ljóst að bíllinn verður markaðssettur í Evrópu undir merkjum Opel. Þar mun hann heita Ampera­e og vitnar þar í fyrri bíl Opel, Ampera, sem er rafmagnsbíll með brunavél er framleiðir rafmagn þegar það rafmagn sem bíllinn hefur verið hlaðinn af þrýtur. Engar aðrar breytingar verða á Bolt­bíln­ um frá Chevrolet en að hann fær Opel­merkið. Sprækur rafmagnsbíll Opel Ampera­e er með 200 hest­ afla rafmótora með 360 Nm togi og er eins sprækur og OPC­gerð­ ir Opel­bíla og því ári snarp­ ur bíll. Reyndar á þessi bíll að vera sýnu sprækari en Opel In­ signia OPC, Opel Astra TCR, Opel Adam R2 og Opel Corsa OPC. Opel Ampera­e er aðeins 3,2 sekúndur í 50 km hraða og 4,5 sekúndur frá 80 til 120 km hraða, en hámarkshraði hans er þó aðeins 150 km/klst. Bíllinn er með 60 kWh lithium rafhlöðum og drægið er 322 km, sem verð­ ur að teljast gott fyrir svo lít­ inn bíl. Opel Ampera­e verður ekki framleiddur af Opel heldur í verksmiðju Chevrolet í Detroit, við hlið Bolt­bílsins. Opel mun svo kynna nýja kynslóð Ampera­ bílsins á næsta ári og er hann líkt og Ampera­e alveg eins og kynbróðir hans, en í þessu til­ viki Volt. Opel-merkið á Bolt fyrir Evrópu  Opel Ampera-e. Fjölbreyttar leiðir í bílafjármögnun Landsbankinn býður góð kjör, fjölbreyttar leiðir og allt að 80% fjármögnun við kaup á nýjum og notuðum bílum. Kynntu þér allt um bílalán á landsbankinn.is/bilalan. Lánshlutfall allt að 80% Allt að 7 ára lánstími Betri kjör fyrir viðskiptavini landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Bílar Fréttablaðið 4 1. nóvember 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 F -B E C 0 1 B 1 F -B D 8 4 1 B 1 F -B C 4 8 1 B 1 F -B B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.