Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Bakþankar
Erlu Bjargar
Gunnarsdóttur
Kvennalistinn var stofnaður fyrir 33 árum með það að markmiði að fjölga konum
á þingi enda voru eingöngu þrjár
konur þar fyrir. Þær urðu svo níu
eftir tilkomu listans eða fimmtán
prósent þingmanna. Nú munu
þrjátíu konur taka sæti á Alþingi og
verða konur 48 prósent þingmanna.
Alveg svakalega mikið, næstum því
helmingur.
Púkinn í mér hugsaði að þar með
hlyti starf þingmanna að falla í virð-
ingarstiganum og innan skamms
muni launaþróunin standa í stað. Að
lokum verði þingmenn að enn einni
kvennastéttinni og skrifi greinar um
álagið, ófjölskylduvænan vinnutíma
og vanmetið starf. Og enginn muni
nenna að hlusta á vælið og segja
þeim að þeir hafi sjálfir sóst eftir
starfinu. En það var bara púkinn. Ég
horfi að sjálfsögðu bjarteyg og keik
fram á veginn.
Það er nefnilega von um að
Alþingi verði betri vinnustaður.
Fyrrverandi þingmenn hafa viður-
kennt að stemningin geti verið ansi
erfið í matsalnum og svona. Og
sálfræðingar hafa sagt samskiptin
oft einkennast af reiði og heift með
tilheyrandi álagi.
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt
fram á að vinnustaðir með jöfnu
kynjahlutfalli séu bestir. Í karlahópi
séu pissukeppnir gjarnan upp um
alla veggi og baknagið blómstri á
kvennavinnustöðum. En með jöfnu
kynjahlutfalli séu meiri líkur á að
jafnvægi komist á samskiptin auk
þess sem fjölbreyttari leiðir séu
notaðar til að nálgast verkefnin og
úrlausnir.
Og ekki veitir nú af góðum sam-
skiptum á Alþingi með sjö flokka
á þingi. Fyrir utan að það er ljóst
að sama hvernig ríkisstjórn verður
mynduð á næstu dögum, þá muni
samstarf, málamiðlun og hlustun
vera mikilvægir þættir til að eitthvað
komi út úr næsta kjörtímabili.
Alþingi í
jafnvægi
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40
0
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
F
-A
1
2
0
1
B
1
F
-9
F
E
4
1
B
1
F
-9
E
A
8
1
B
1
F
-9
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K