Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 10
Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is 4,8% Fjöldi koma á allar bráðamóttökur 5,0% Komur á göngudeildir 12,3% komur á dagdeildir 5,4% Fjöldi lega 2,6% Fjöldi legudaga 17,6% Skurðaðgerðir -3,5% Fæðingar 22,9% Rannsóknir á rannsóknasviði ✿ Lykiltölur – aukning milli ára á Landspítala* *Tímabil frá janúar til ágúst – áhrifa verkfalla 2015 kann að gæta heiLbrigðismáL Það er niðurstaða framkvæmdastjórnar Landspítalans að viðbótarfjárþörf spítalans miðað við síðustu fjárlög og fimm ára fjár- málaáætlun fráfarandi ríkisstjórnar séu rúmlega 66 milljarðar króna. Strax á næsta ári þarf spítalinn 11,7 milljarða króna umfram það sem honum er ætlað samkvæmt fjár- málaáætluninni. Þetta sýnir samantekt Land- spítalans sem var kynnt odd- vitum þeirra framboða sem náðu kjöri í alþingiskosningum á laugardaginn. Landspítalinn fær samkvæmt fjárlögum ársins 2016 rúmlega 51 milljarð króna, en sértekjur spítalans til viðbótar eru vel rúm- lega fjórir milljarðar króna. Því er viðbótarfjárþörf spítalans á næstu fimm árum svipuð upphæð og allt rekstrarfé hans á heilu ári og ellefu milljörðum betur. Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans, segir að það komi skýrt fram í nýrri greiningu McKinsey & Company, sem stjórnvöld stóðu að, að spítalinn hafi lyft grettistaki síðustu ár með því að mæta aukinni eftirspurn án samsvarandi hækkun á rekstrarfé. „Það er löngu mál að linni enda eru allar fjárhagslegar forsendur hins opinbera til staðar til að aðlaga fjárframlög til þjóðar- sjúkrahússins og gera okkur kleift að sinna okkar lögbundnu skyldum með viðunandi hætti,“ segir Páll og bætir við að greining á þörf spítal- ans nái einfaldlega til þess sem þarf að gera svo hægt sé að sinna nauð- synlegustu verkefnum og spítalinn verði áfram í fremstu röð. Ekkert umfram það. Páll bætir því við að þolmörkum spítalans hafi verið náð fyrir mörg- um árum, og útilokað sé að herða ólina frekar. Heildarframlög til heilbrigðis- mála á Íslandi árið 2014 námu 8,8% af vergri landsframleiðslu sem er nálægt meðaltali OECD en lægra en annars staðar á Norðurlöndunum, að Finnlandi undanskildu. Greining Landspítalans nær til tæplega 20 liða. Sá sem vegur þyngst á tímabilinu lýtur einfaldlega að því að mæta aukinni eftirspurn vegna mannfjöldaþróunar hér á landi og vegna álags sem hlýst af sífellt fleiri ferðamönnum sem hingað sækja. Á næstu fimm árum mun það kosta tæplega nítján milljarða, en komum á Landspítalann fjölgar að meðaltali um 1,7 prósent á ári vegna mann- fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar. Til að vinna niður biðlista þarf 3,2 milljarða á næstu fimm árum og lágmarksþörf vegna viðhalds á eldri húsum spítalans krefst 5,6 milljarða aukaframlags. Tækjakaup útheimta aðra 2,5 milljarða þrátt fyrir átak í tækjakaupum síðastliðin ár, sem hefur gjörbreytt stöðu spítalans í þessu tilliti. Eins vantar að fjár- magna launahækkun lækna vegna kjarasamninga upp á 400 milljónir á ári og rekstur jáeindaskannans sem verið er að setja upp þessa dagana – en rekstur hans útheimtir 300 millj- ónir á ári. Taka skal fram að inni í þessum tölum eru tæki og búnaður vegna nýja Landspítalans og breytingar á eldra húsnæði vegna hans, en þessi kostnaður fellur ekki til fyrr en árin 2020 og 2021 – samtals rúmir tólf milljarðar. Árið 2015 ákvað fráfarandi ríkis- stjórn að láta vinna greiningu á rekstrarhagkvæmni og stöðu Land- spítalans. McKinsey & Company vann úttektina í nánu samstarfi við fulltrúa frá velferðarráðuneytinu, Embætti landlæknis og Landspítal- anum. Þar kemur meðal annars fram að eftir hrunið árið 2008 hafi heilbrigðisútgjöld hins opinbera verið lækkuð úr 153 milljörðum króna árið 2008 í 134 milljarða árið 2012 (miðað við fast verðlag 2014) til að bregðast við versnandi stöðu ríkisfjármála. Á síðustu árum hafa opinber fjárframlög til heilbrigðis- mála aukist á ný, eða úr 134 millj- örðum króna árið 2012 í 143 millj- arða árið 2015. svavar@frettabladid.is Stoppa þarf í 66 milljarða gat Fjárþörf Landspítalans á næstu fimm árum umfram fjárlög og fjármálaáætlun fráfarandi ríkisstjórnar jafn- gildir heilu rekstrarári spítalans. Stórir útgjaldaliðir eru að mæta fjölgun og öldrun þjóðarinnar. Það er löngu mál að linni enda eru allar fjárhagslegar forsendur hins opinbera til staðar til að aðlaga fjárframlög til þjóðar- sjúkrahússins og gera okkur kleift að sinna okkar lög- bundnu skyldum með viðun- andi hætti. Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans 106.861 einstaklingur leitaði til LSH árið 2015 – margir komu hins vegar oft. FRéTTabLaðið/ViLHeLm viðskipti Íslensk-sænska fyrirtækið SidekickHealth hefur gert samkomu- lag við bandarísku heilsuræktar- keðjuna Curves Jenny Craig (CJC) um verkefni þar sem skorað verður á þúsundir starfsmanna bandarískra fyrirtækja að taka þátt í hóp- og heilsueflingu. CJC er ein af stærstu heilsuræktarkeðjum heims og rekur yfir 700 heilsuræktarstöðvar vítt og breitt um heiminn. SidekickHealth hugbúnaðarlausn- in gerir CJC kleift að bjóða stórum bandarískum vinnustöðum upp á hóp- og heilsueflingu. Starfsfólki er skipt í lið sem keppa innbyrðis í þrjár vikur í heilsueflingu. Í gegnum hug- búnaðinn er um leið hægt að bjóða starfsfólki upp á skimun fyrir heilsu- farsvandamálum svo sem hættu á áunninni sykursýki og vísa áfram í frekari úrræði. SidekickHealth hefur í rúmt ár boðið upp á heilsu- og hópefli fyrir vinnustaði líkt því sem nú er verið að fara af stað með í Bandaríkjunum. Þús- undir starfsmanna fyrirtækja í Svíþjóð, Bretlandi og á Íslandi hafa notað hug- búnaðinn með góðum árangri undan- farið ár. Af viðskiptavinum hér á landi má nefna fyrirtæki svo sem IKEA, VÍS, Vörð, Festi, Össur, RB og Einkaleyfa- stofuna. „Meðalnotandinn dregur úr gos- neyslu um 65% og er 92% minna líklegur til að neyta sætinda dag- lega. Við vorum að ljúka við annan heilsueflingarviðburð okkar með VÍS í október og tóku 118 starfsmenn þátt. Á þremur vikum má áætla að sparast hafi sykurneysla sem nemur ríflega 80 kílóum eða þyngd eins fílsunga. Einnig gengu þau 4.762 kílómetra eða sem nemur fjarlægðinni frá Reykjavík til Minnesota í Bandaríkjunum. Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt að sjá hve sterk áhrif þetta hefur haft til að ýta undir bætta heilsuhegðun – en til þess var auðvitað leikurinn gerður,“ segir Tryggvi Þorgeirsson, læknir og framkvæmdastjóri SidekickHealth, í tilkynningu. – shá SidekickHealth gerir samning við risavaxna heilsuræktarkeðju meðalnotandinn dregur úr neyslu gosdrykkja um 65% og er 92% ólíklegri til að neyta sætinda daglega. FRéTTabLaðið/eRniR 700 heilsuræktarstöðvar eru í eigu CJC. 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r i ð J U D A g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 F -B 4 E 0 1 B 1 F -B 3 A 4 1 B 1 F -B 2 6 8 1 B 1 F -B 1 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.