Fréttablaðið - 01.11.2016, Síða 2

Fréttablaðið - 01.11.2016, Síða 2
Veður Víða hægir vindar og léttskýjað í dag. Hiti 1 til 6 stig að deginum. sjá síðu 22  Hrekkjavökuhátíðin festir sig í sessi Hrekkjavökuhátíðin er farin að festa sig í sessi hér á landi. Á meðal þekktra hefða á hátíðinni er að ganga hús úr húsi og þiggja sælgæti, að sækja hrekkjavökupartí og skera út grasker. Þessi börn voru á ferð í Vesturbænum í Reykjavík síðdegis í gær og þáðu sælgæti. Fréttablaðið/Ernir mynd sem þú mátt ekki missa af - v a r i e t y- E n t e r t a i n m e n t w e e k l y “emily blunt gives rachel multiple dimensions” “superb job” “emily blunt is perfect” “solid thriller” “the girl on the train is sexy and brutal” “vivid performances from the cast” stjórnmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Fram- sóknarflokks, er að einangra sig frá öðrum þingmönnum flokksins og hugnast ekki að vinna með Sigurði Inga og öðrum þingmönnum í sátt. Þetta segja heimildarmenn Frétta- blaðsins innan Framsóknarflokks- ins. Þá er einnig sagt að stefni í að hann verði einangraður á þinginu almennt, þar muni hann fáa banda- menn eiga. Fréttablað- ið greindi frá því í gær að S i g m u n d u r Davíð héldi því fram að u n d i r h a n s forystu hefði f l o k k - urinn getað náð allt að 19 prósenta fylgi í nýafstöðnum kosningum í stað þeirra 11,5 prósenta sem flokkurinn uppskar. Hann hafi verið búinn að leggja drög að öflugri kosningabaráttu en innbyrðis átök hafi skemmt fyrir. Sigmundur Davíð tapaði hins vegar formannsslag við Sigurð Inga Jóhannsson fyrr í haust. Ekki náðist í Sigurð Inga við vinnslu fréttarinnar en þegar hann mætti á Bessastaði í gær til að ræða stjórnarmyndun við Guðna Th. Jóhannesson forseta sagði hann: „Það er alltaf hægt að velta fyrir sér hvað og ef en ég ætla ekki að vera í því.“ Sömu heimildarmenn eru ein- róma á því að vangaveltur Sig- mundar Davíðs um hugsanlega niðurstöðu séu „út í hött“. Það sjá- ist einna best á því að flokkurinn hafi fengið 20 prósent atkvæða í Norðaustur- kjördæmi, sem Sig- mundur Davíð leiddi, samanborið við 34,6 prósenta fylgi árið 2013. Ö n n u r v í s - bending er útstrik- anir, en fréttastofa greindi frá því í gær að áberandi meira hefði verið um útstrikanir í kjördæminu en vanalega, þá helst á lista Framsókn- ar. Í samtali við fréttastofu sagði Gestur Jónsson, formaður yfir- k j ö r s t j ó r n a r , að einn maður Sigmundur Davíð er sagður einangra sig Heimildarmenn innan Framsóknar segja Sigmund Davíð einangra sig frá flokknum. Formaðurinn fyrrverandi sagðist geta sótt meira fylgi en Sigurður Ingi. Niðurstaðan í Norðausturkjördæmi er sögð sýna fram á annað. hefði verið strikaður meira út en aðrir. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins má leiða líkur að því að sá maður sé Sigmundur Davíð. Þá herma heimildir Fréttablaðs- ins einnig að Gunnar Bragi muni hugsanlega einangra sig með Sig- mundi Davíð og verða hans helsti, og mögulega eini, bandamaður. Gunnar bragi studdi Sigmund Davíð í formannskosningunum og sagði framboð Sigurðar Inga ekki til eftirbreytni. Það bryti gegn hefðum flokksins. Andrúmsloftið og stemningin innan þingflokks Framsóknar á komandi kjörtímabili er sagt verða eitrað vegna viðmóts Sigmundar Davíðs. Jafnframt er það sagt gera flokkinn óstjórntækan þar sem hann muni ekki þykja nægilega stöðugur. Ekki náðist í Sigmund Davíð við vinnslu fréttarinnar. thorgnyr@frettabladid.is Fjölmiðlar Útgáfufélagið Birtíngur sagði í gær upp níu starfsmönnum. Karl Óskar Steinarsson fram- kvæmdastjóri segir að fólk í ólíkum störfum hafi misst vinnuna „Við erum að bregðast við erf- iðum rekstrarskilyrðum fjölmiðla- fyrirtækja. Til dæmis miklum launa- hækkunum, með því að einfalda reksturinn og hagræða. Því miður þurfti að segja upp fólki og það er sársaukafullt en óhjákvæmilegt,“ segir hann. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er horft til enn frekari hag- ræðingaraðgerða. Meðal annars hafi verið rætt að selja út úr fyrirtækinu tímaritin Séð og heyrt, Nýtt Líf, Söguna alla og Júlíu. Karl Óskar vill ekkert staðfesta. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það í fyrir- tækinu,“ segir hann. Auk fyrrgreindra fjölmiðla á Birt- íngur Gestgjafann, Hús og híbýli og Vikuna. – jhh Níu sagt upp störfum Þingaldur VG hæstur stjórnmál Þingflokkur Vinstri grænna hefur hæsta meðaltals- þingaldurinn en þingmenn flokksins hafa að meðaltali setið níu þing. Framsóknarflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn fylgja í kjölfarið en þingmenn flokkanna hafa að meðaltali setið rúmlega 6,2 þing. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er eini þingmaður Viðreisnar sem áður hefur setið á þingi. Sé þingaldri hennar dreift niður á flokkinn hafa þingmenn setið 2,5 þing að meðal- tali. Hinir sex þingmenn Viðreisnar hafa aldrei setið á Alþingi Þingflokkar Bjartrar framtíðar og Pírata hafa lægstan þingaldur en hann er tvö þing hjá hvorum flokki um sig. Sjö þingmenn Pírata setjast á þing í fyrsta sinn. – jóe Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður VG Mark Carney bankastjóri Eng- landsbanka 11,5% var fylgi Framsóknar í kosningunum. 20% var fylgi flokksins í Norðausturkjördæmi. Bretland Mark Carney, banka- stjóri Englandsbanka, ætlar að stýra bankanum þangað til í júní 2019. Það þýðir að hann verður einu ári lengur yfir bankanum en hann hafði ætlað sér. Carney hafði ákveðið að vera í fimm ár. Hann verður hins vegar tveimur árum skemur en banka- stjórar Englandsbanka eru yfirleitt. Theresa May, forsætisráðherra Breta, segir að ákvörðun Carneys um að vera áfram stuðli að stöðug- leika á þeim tíma þegar Bretar eru að semja um útgöngu úr ESB. Bretar ákváðu hinn 23. júní síðastliðinn að ganga út. – jhh Verður einu ári lengur 1 . n ó v e m B e r 2 0 1 6 Þ r i ð j u d a G u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 F -A 6 1 0 1 B 1 F -A 4 D 4 1 B 1 F -A 3 9 8 1 B 1 F -A 2 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.