Fréttablaðið - 01.11.2016, Síða 6
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
Vel staðsett 269,8 fm. einbýlishús á tveimur hæðum að meðtöldum 47,4
fm. bílskúr. Tvennar svalir sem snúa annars vegar í suður og hins vegar til
suðausturs. Garðurinn er ræktaður og mætir óspilltu mosavöxnu og grónu
hrauninu til norðurs. Stórar stofur með arni. Þrjú rúmgóð herbergi. Sjón-
varpsrými. Tvö baðherbergi. Íbúð á neðri hæð með sér inngangi. Húsið er
mikið endurnýjað. Verð 77,9 millj.
Eignin verður til sýnis í dag frá kl. 17.15 – 17.45
OPIÐ
HÚS
Sævangur 42 – Hafnarfirði
Ca. 100 fm húsnæði á jarðhæð við Lækjargötu 8 í Reykjavík við
hliðina á Hraðlestinni. Í húsnæðinu var rekinn veitingarstaður.
Mögulegt er að staðurinn geti stækkað um 200 fm út í nýbyggingu
sem fyrirhugað er að byggja.
Upplýsingar gefur Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali
824-9093 og Hilmar Þór Hafsteinsson löggiltur fasteignasali og
leigumiðlari.
Lækjargata – til leigu.
Sala fasteigna frá
588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík
Sala fasteigna frá
588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík
TIL
LEIGU
Efnahagsmál Iðnaðarmenn í Nor-
egi eru að jafnaði allt að 23 stundir
að byggja hvern fermetra í íbúðar-
húsnæði, á meðan þeir íslensku eru
allt að 31 klukkustund með sama
verkið. Íslendingar eru því um 25
prósent lengur með verkið þegar
þeir vinna það á Íslandi en í Noregi.
Þetta kom fram á Þjóðarspeglinum
í Háskóla Íslands síðasta föstudag.
Þórólfur Matthíasson hagfræðingur
kynnti grein sem hann, ásamt Ævari
Rafni Hafþórssyni, vann upp úr
meistararitgerð Ævars.
Hugmyndin að rannsókninni
kviknaði í ljósi þess að margir
íslenskir iðnaðarmenn fóru til
Noregs upp úr hruni. Þar voru þeir
eftirsóttir starfskraftar og fengu
sömu laun og þarlendir. „Fram-
leiðnimunur á milli Íslands og Nor-
egs getur því ekki verið vanþekk-
ingu eða dugnaðarmun að kenna.
Þó virðast íslenskir iðnaðarmenn
auka framleiðni við það að fara til
Noregs,“ sagði Þórólfur.
Í erindinu kom fram að auðvelt
væri að bera saman framleiðnina í
ljósi þess að byggingarreglugerðir
eru mjög sambærilegar og að hlut-
fall framkvæmdakostnaðar og efnis-
kostnaðar í heildarkostnaði sé svip-
aður í löndunum tveimur.
Þórólfur sagði að það sem helst
skýrði muninn væri skipulagsvandi
á vinnustað. „Þegar verið er að steypa
upp eitthvað staðlað er minni fram-
leiðnimunur, en þegar kemur að
innanhússfráganginum er munurinn
meiri. Ævar segir að skýringin sé sú
að skipulagið á innanhússfrágang-
inum sé miklu lakari á Íslandi en
í Noregi,“ sagði hann. Innanhúss-
frágangur tekur mun lengri tíma á
Íslandi og nemur 26,2 prósentum af
heildarlaunum, samanborið við 19,1
prósent í Noregi.
Þórólfur benti á að skortur á
skipulagi væri vegna skorts á fjár-
magni. Íslenskir byggingaverktakar
hefðu ekki sama fjármagn og þeir
norsku til að klára verkið áður en
byrjað væri að hleypa íbúum inn.
Íbúðir væru seldar hér og þar í
íbúðar húsnæði í einu og því ekki
hægt að vinna allt verkið í einu.
„Þarna er möguleiki, ef menn koma
sér saman um betri leið til að skipu-
leggja framkvæmdirnar, og afhend-
ingu, að auka framleiðni í byggingar-
iðnaði á Íslandi einhvers staðar á
stærðarbilinu 25 til 30 prósent sem
er umtalsvert. Það er klárlega tæki-
færi á markaðnum til að gera betur.“
Á fundinum kom einnig fram
að aðrir þættir spiluðu inn í fram-
leiðni, svo sem óstöðugleiki í hag-
kerfinu, starfsmannaskortur, tækni-
stig og byggingaraðferðir.
saeunn@frettabladid.is
✿ hlutfall launa
iðnaðarmanna
Noregur, alls 19,1%
Ísland, alls 26,2%
Raf-
magn
Málning Pípu-
lagnir
Blikk-
smíði
Múr-
vinna
5,5%
3,4%
4,1%
7,3%
4%
5,7%
1,2%
2,5%
4,3%
7,3%
á fermetra
Verktakar byggja mun
hraðar í Noregi en hér
Munur á framleiðni iðnaðarmanna í byggingariðnaði í Noregi og á Íslandi
nemur fjórðungi samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Vandamálið á Íslandi
liggur í skipulagsvanda og fjárveitingarvanda að sögn prófessors í hagfræði.
Þegar verið er að
steypa upp eitthvað
staðlað er minni framleiðni-
munur, en þegar kemur að
innanhússfrá-
ganginum er
munurinn
meiri.
Þórólfur Matthíasson,
prófessor í hagfræði
Páfinn heimsækir frændur vora
Frans páfi er í Svíþjóð. Í gær fór hann til Málmeyjar og Lundar. Hann hitti Munib A Younan, forseta Alheims-
samtaka lútherstrúarmanna (Lutheran World Federation), og Martin Junge framkvæmdastjóra. Fréttablaðið/EPa
fornlEifar Starfshópur á vegum
Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfis-
ráðherra leggur til að Hofstöðum í
Mývatnssveit verði haldið í opinberri
eigu og að þar verði sett á fót þekk-
ingarsetur. Samþykkt var á ríkis-
stjórnarfundi á miðvikudag að kanna
betur kostnað við slíka uppbyggingu
og á meðan verði eignarhald staðar-
ins óbreytt.
Hofstaðir í Mývatnssveit hafa verið
í eigu og umsjón ríkisins síðan í júlí
2015, eftir að eigendur jarðarinnar
féllu frá. Að mati starfshópsins sam-
einar Hofstaðalandið það besta sem
náttúra og saga Mývatns- og Laxár-
svæðisins hefur upp á að bjóða og
hefur ótvírætt varðveislugildi.
Á síðastliðnum áratugum hafa farið
þar fram umfangsmiklar náttúru- og
fornleifarannsóknir og meðal annars
hafa fundist þar merkar fornminjar,
sem talið er að megi rekja aftur til
landnámsaldar. Ljóst er að staðurinn
hefur að geyma fleiri minjar og til
að mynda uppgötvaðist þar á dög-
unum stæðilegur landnámsskáli frá
víkingaöld, sem bætir enn við þekk-
ingu á svæðinu og gerbreytir skilningi
á Hofstöðum og miðstöðvarhlutverki
staðarins á víkingaöld, eins og Orri
Vésteinsson lýsti í viðtali í Frétta-
blaðinu á föstudag. – shá
Þekkingarsetur verði sett
á fót að Hofstöðum
Enginn staður á Íslandi er eins vel rann-
sakaður með tilliti til fornleifa. Mynd/Orri
1 . n ó v E m b E r 2 0 1 6 Þ r i Ð J U D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
0
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
F
-C
D
9
0
1
B
1
F
-C
C
5
4
1
B
1
F
-C
B
1
8
1
B
1
F
-C
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K