Fréttablaðið - 01.11.2016, Page 12
H E I L S U R Ú MAR
G
H
!!!
0
11
11
6
DAGAR REKKJUNNAR
20–40% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM AMERÍSKUM HEILSURÚMUM FRÁ KING KOIL.
AÐEINS
ÞRÍR
DAGAR
EFTIR!
NÚ ER TÆKIFÆRI Á AÐ
TRYGGJA SÉR GOTT RÚM
Á FRÁBÆRU VERÐI!
Bandaríkin Yfirlýsing James Comey,
yfirmanns bandarísku alríkislög-
reglunnar FBI, hefur komið kosn-
ingabaráttu Hillary Clinton í nokk-
urt uppnám.
Hann skýrði frá því í síðustu
viku að FBI ætlaði að hefja rann-
sókn á tölvupóstum úr tölvu þing-
mannsins Anthonys Weiner, en
hann sætir rannsókn vegna gruns
um kynferðisbrot gegn fimmtán ára
stúlku.
Í tölvunni sé meðal annars að
finna tölvupósta frá Hillary Clin-
ton, sem áður hefur sætt rannsókn
vegna tölvupóstsamskipta sinna.
Comey sagðist telja hugsanlegt að
tölvupóstsamskipti Clinton við
Weiner gætu reynst mikilvæg fyrir
hina rannsóknina á tölvupóstum
Clinton.
Comey hefur verið gagnrýndur
fyrir að nefna þetta opinber-
lega svona skömmu fyrir forseta-
kosningar, en þær verða haldnar
í Bandaríkjunum á þriðjudaginn í
næstu viku, þann 8. nóvember.
Demókrataþingmaðurinn Harry
Reid, leiðtogi minnihlutans í öld-
ungadeild, segir Comey jafnvel hafa
gerst brotlegan við lög með þessu:
„Starfsfólk mitt hefur komist að
þeirri niðurstöðu að þetta framferði
geti verið brot á taumhaldslöggjöf-
inni, sem bannar embættismönn-
um FBI að nota opinbera stöðu sína
til þess að hafa áhrif á kosningar,“
sagði Reid í yfirlýsingu á sunnudag.
Hann gaf engar upplýsingar um
hugsanlegt innihald tölvupóstanna
eða hvers vegna ástæða gæti þótt til
þess að efna til rannsóknar.
Óljóst er hvaða áhrif þetta mun
hafa á úrslit forsetakosninganna, en
heldur hefur verið að draga saman
með Clinton og Donald Trump
undanfarið. Um miðjan október
var hún með um sjö prósenta for-
skot að meðaltali en í gær var það
komið niður fyrir þrjú prósent.
Trump og stuðningsmenn hafa
óspart notfært sér þetta baráttu
sinni til framdráttar, enda beinir
þetta athyglinni frá vandræðum
Trumps sjálfs sem hefur meðal
annars verið gagnrýndur fyrir óvið-
eigandi ummæli um konur og fyrir
að birta ekki upplýsingar um skatt-
greiðslur sínar.
Talið er að Clinton og stuðnings-
menn hennar muni nú, þessa viku
sem eftir er til kosninga, beita sér af
meiri hörku gegn Trump en kannski
hefði orðið ef þessi yfirlýsing frá FBI
hefði ekki komið fram á síðustu
stundu.
gudsteinn@frettabladid.is
Trump færist nær Clinton
Óljós yfirlýsing um nýja lögreglurannsókn á tölvupóstum Clinton hefur gagnast Trump á lokametrum
kosningabaráttunnar. Yfirmaður FBI sakaður um lögbrot. Talið að Clinton muni beita sér af meiri hörku.
Hillary Clinton og varaforsetaefni hennar, Tim Kaine, sem gæti þurft að taka við keflinu leiði ný rannsókn lögreglunnar á tölvu-
póstum hennar eitthvað bitastætt í ljós. Stutt er til stefnu því kosið verður eftir viku. FréTTablaðið/EPa
Viðskipti Á undanförnum sex árum
hafa að meðaltali verið gerðar níu
kvikmyndir á Íslandi á ári. Heildar-
veltan í geiranum jókst um rúm 37
prósent frá 2009 til 2014 og nam
34,5 milljörðum króna árið 2014.
Þetta kom fram í máli Ágústs Ólafs
Ágústssonar, aðjunkts við við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands,
á Þjóðar spegli Háskóla Íslands á
föstudag.
Ágúst Ólafur hefur rannsakað
hagræn áhrif sjónvarps- og kvik-
myndaiðnaðar á Íslandi í samstarfi
við aðila í geiranum. „Samtals er
bein og óbein velta framleiðslu og
dreifingar á sjónvarps- og kvik-
myndaefni um 45 milljarðar króna.
Veltan er líklega hærri en þessi tala
í raun og veru,“ sagði Ágúst Ólafur.
Hann benti á að gríðarleg gróska
hefði verið í greininni frá hruni.
„Veltan í framleiðslu, dreifingu,
kvikmyndasýningum og stað-starf-
semi tvöfaldaðist frá 2008 til 2014
upp í 20,3 milljarða.
Til að setja veltuna í samhengi
má benda á að hún er litlu minni en
velta kjötiðnaðarins eða mjólkur-
afurða. Til samanburðar er velta
hótela og gististaða um 45 milljarð-
ar króna,“ sagði hann. „Hún er tíu
sinnum meiri en velta bókaútgáfu
í landinu.“
Ágúst Ólafur benti á að störfum í
greininni hefði líka farið fjölgandi.
„Fjöldi ársverka er um 1.300 sem er
á við þrjú stóriðjuverkefni. Bein og
óbein áhrif eru um 2.000 ársverk.“
Skatttekjur hins opinbera vegna
umsvifa aðila í kvikmynda- og
sjónvarpsiðnaðinum eru um 7,3
milljarðar króna, auk þess eru skatt-
tekjur hins opinbera vegna áhrifa
þeirra á ferðamannafjölda metnar
á um 4,6 milljarða króna. Fjórtán
prósent aðspurðra sögðu í könnun
Ferðamannastofu alþjóðlegt mynd-
rænt efni skýra ferð sína til Íslands
og jafngildir þetta rúmlega fjögurra
milljarða veltu. „Auðvitað tökum
við þessum tölum með fyrirvara,“
sagði Ágúst Ólafur.
„Samanlagt eru þetta um 12
milljarðar króna sem hið opinbera
fær í auknar skatttekjur vegna sjón-
varps- og kvikmyndaiðnaðarins. Þá
er ekki búið að taka inn stefgjöld
eða hagnað fyrirtækja. Á móti eru
framlög ríkisins til kvikmyndaiðn-
aðarins ásamt öllum framlögum til
Ríkisútvarpsins tæpir 5,9 milljarðar
króna,“ sagði Ágúst Ólafur.
Eins og fréttavefurinn Vísir hefur
greint frá hefur endurgreiðsla á fram-
leiðslukostnaði kvikmynda úr ríkis-
sjóði verið 20 prósent frá árinu 1999
og námu endurgreiðslur í fyrra vegna
þessa 793 milljónum króna. – sg
Fjárfesting ríkisins í kvikmyndageiranum skilar sér tvöfalt til baka
Viðskipti Gengi hlutabréfa skráðra
félaga í Kauphöllinni rauk upp í gær
eftir að niðurstöður kosninganna
lágu fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn
vann á og hlaut 29 prósent atkvæða.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,23
prósent í gær.
Svo virðist sem fjárfestar hafi öðl-
ast aukna trú á mörkuðum í kjölfar
þessara niðurstaðna, einungis þrjú
félög lækkuðu í gær. Gengi hluta-
bréfa í HB Granda hækkaði mest,
eða um 4,25 prósent, í 103 milljóna
króna viðskiptum. Gengi hlutabréfa
í Sjóvá hækkaði svo um 3,4 prósent
í 364 milljóna króna viðskiptum.
Fyrir helgi kynntu mörg félög
uppgjör þriðja ársfjórðungs og
því má ætla að einhver áhrif séu
af jákvæðum niðurstöðum sumra
þeirra á mörkuðum. – sg
Markaðir upp
eftir kosningar
Starfsfólk mitt hefur komist að þeirri niðurstöðu að
þetta framferði geti verið brot á taumhaldslöggjöf-
inni, sem bannar embættismönnum FBI að nota opinbera
stöðu sína til þess að hafa áhrif á kosningar.
Harry Reid, leiðtogi þingminnihluta Demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings
ítalía Um fimmtán þúsund manns
misstu heimili sín á sunnudags-
morgun þegar þriðji stóri jarð-
skjálftinn reið yfir Ítalíu á rúmlega
tveimur mánuðum. Þúsundir þeirra
fengu skjól í íþróttahúsum eða tjald-
búðum sem reistar voru sérstaklega á
sunnudaginn. Margir þurftu að hírast
í bílum sínum yfir nóttina eða gista
hjá ættingjum og vinum.
Enginn lét lífið, svo vitað sé, en
nokkrir tugir manna hlutu meiðsli.
Eignatjón varð mikið, meðal annars
á kirkjum og fornminjum.
Skjálftinn á sunnudag mældist 6,6
stig að styrkleika og var því fjórum
sinnum öflugri en fyrsti stóri skjálft-
inn, sem varð á svipuðum slóðum
þann 24. ágúst síðastliðinn.
Nærri þrjú hundruð manns létu
lífið af völdum jarðskjálftans í ágúst.
Jafnframt var skjálftinn á sunnu-
dag öflugasti jarðskjálfti sem riðið
hefur yfir á Ítalíu síðan 1980.
Allir skjálftarnir þrír urðu á Mið-
Ítalíu, norðaustur af Róm. Sá síðasti
um sex kílómetra norður af Norcia. – gb
Þúsundir misstu heimili sín á Ítalíu
Slökkviliðsmenn hjálpa íbúum í Norcia að ná eigum sínum út úr húsum sem urðu
fyrir skemmdum í jarðskjálftanum síðastliðinn sunnudag. NordiCPHoToS/aFP
Þrír stórir á tíu vikum
24. ágúst
6,2 að styrkleika
Uppruni:
Nálægt accumoli
26. október
5,9 að styrkleika
Uppruni:
Macerata
30. október
6,6 að styrkleika
Uppruni:
Rétt hjá Norcia
Belgía Tvær Jasídakonur frá Kúrda-
svæðum Íraks fá Sakharov-verð-
launin í ár, en það eru mannrétt-
indaverðlaun Evrópuþingsins.
Þær Nadia Murad Basee og
Lamia Haji Bashar fá verðlaunin
fyrir baráttu sína fyrir réttindum
Jasída, einkum Jasídakvenna, en
þær voru meðal þúsunda kvenna
sem vígamenn Íslamska ríkisins,
Daish, hnepptu í kynlífsþrældóm
eftir að þeir réðust inn á svæði
Jasída árið 2014.
Þær Basee og Bashar voru meðal
þeirra Jasídakvenna sem vígasveit-
irnar hnepptu í kynlífsþrældóm.
Daish-liðarnir myrtu jafnframt
þúsundir manna í innrás sinni. – gb
Tveir Jasídar fá
verðlaun
Nadia Murad
basee, annar
verðlaunahafanna
34,5
milljarðar króna var heildar-
veltan í geiranum 2014.
1 . n ó V e m B e r 2 0 1 6 Þ r i ð J U d a g U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
F
-A
1
2
0
1
B
1
F
-9
F
E
4
1
B
1
F
-9
E
A
8
1
B
1
F
-9
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K