Fréttablaðið - 01.11.2016, Page 16

Fréttablaðið - 01.11.2016, Page 16
Nýjast Enska úrvalsdeildin Stoke 3 –1 Swansea Efst Man. City 23 Arsenal 23 Liverpool 23 Chelsea 22 Tottenham 20 Neðst West Brom 10 West Ham 10 Hull City 7 Swansea 5 Sunderland 2 Í dag 19.15 Meistaradeildarmessa Sport2 19.40 Man City - Barcelona Sport 3 19.40 Ludogorets - Arsenal Sport 4 19.40 PSV - Bayern M. Sport 3 19.40 Basel - PSG Sport 5 21.45 Meistaradeildarmörkin Sport grétar ari aftur til hauka haukar hafa kallað markvörðinn grétar ara guðjónsson til baka úr láni frá Selfossi. Í staðinn fengu Selfyssingar markvörðinn Einar Ólaf Vilmundarson frá haukum. grétar ari hefur spilað stórvel með Selfossi í vetur og var verðlaun- aður með sæti í a-landsliðinu sem mætir tékklandi og Úkraínu í þessari viku. grétar ari, sem er tvítugur, mun verja hauka það sem eftir er tíma- bils ásamt giedrius Morkunas. Mark- varslan hefur ekki verið góð hjá haukum í vetur en þeir eru í 7. sæti Olís- deildar- innar. 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r16 s p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð KörFUboLtI Það var við hæfi að langstigahæsti íslenski leikmaður Domino’s-deildar kvenna væri á aukaæfingu þegar fréttablaðið heyrði í henni í gær. aukaæfing- arnar segir hún að séu reyndar „bara“ tvær núna þegar tímabilið er í fullum gangi en það fer ekkert á milli mála að hér fer stelpa með metnað til að vera öflugur körfu- boltaleikmaður. Emelía Ósk gunnarsdóttir varð 18 ára í vor og er að hefja sitt þriðja tímabil í meistaraflokknum. Ekki er hægt að kvarta mikið yfir fyrstu skrefunum hjá henni og liðs- félögunum. keflavíkurliðið tapaði reyndar fyrsta leiknum þar sem bandaríski leikmaður liðsins skoraði ekki eitt stig en hefur síðan unnið fimm leiki í röð. Sigursælar í yngri flokkum „Við höfum unnið flest upp alla yngri flokkana og við erum bara vanar því að vinna. Við höfum líka spilað saman mjög lengi og þekkjum því hver aðra vel,“ segir Emelía Ósk gunnarsdóttir sem er stigahæsti leikmaður toppliðs keflavíkur í Dom- ino’s-deild kvenna. „Meðalaldurinn er mjög lágur hjá okkur en það eru allar að skora hjá okkur og það er það sem er svo skemmtilegt við þetta,“ segir Emelía Ósk en stelpur sem eru átján ára og yngri hafa skorað 68 prósent stiga keflavíkurliðsins í fyrstu sex umferð- unum. Emelía Ósk er staðráðin í að halda sér og liðsfélögunum á jörðinni þrátt fyrir draumabyrjun. Emelía Ósk segir aukna umfjöllun fjölmiðla Sú stigahæsta elskar það að spila vörn Stigahæsti íslenski leikmaður Domino’s-deildar kvenna er aðeins átján ára gamall og hefur næstum því þrefaldað meðalskor sitt frá því í fyrra. Emelía Ósk Gunnarsdóttir og ungu stelpurnar í Keflavík eru á toppnum í deildinni þar sem táningar liðsins eru í aðalhlutverki. Hin átján ára gamla Emelía Ósk Gunnarsdóttir er farin að banka á dyrnar í A-lands- liðinu með frammistöðu sinni með Keflavikurliðinu í vetur. FréttABLAðið/StEFáN Opnaði markareikninginn í stórsigri Kominn á blað Björn Daníel Sverrisson fagnar hér marki sínu í 6-2 sigri AGF á Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Björn Daníel kom inn á sem varamaður á 62. mínútu og sjö mínútum síðar skoraði hann sitt fyrsta mark fyrir AGF og kom liðinu í 4-2. NordiCPHotoS/GEtty Stigahæstu íslensku stelpurnar í deildinni: 1. Emelía Ósk Gunnarsd., Keflavík 18,3 2. Sigrún ámundad., Skallagrími 15,5 3. Gunnhildur Gunnarsd., Snæfelli 15,3 4. Birna V. Benónýsdóttir, Keflavík 12,8 5. ragna Margrét Brynjarsd., Stjörn. 11,5 6. rósa Björk Pétursdóttir, Haukum 11,3 7. Sólrún inga Gísladóttir, Haukum 11,1 8. Petrúnella Skúladóttir, Grindavík 10,7 9. Ína María Einarsdóttir, Njarðvík 10,0 10. Hallveig Jónsdóttir, Valur 9,8 11. Bríet Sif Hinriksdóttir, Stjörnunni 9,7 12. Elín Sóley Hrafnkelsd., Val 9,3 Emelía Ósk Gunnars- dóttir hefur verið stigahæst í fjórum af sex leikjum Keflavíkur í vetur. og annarra um liðið ekki hafa farið framhjá sér. „Við erum að reyna að pæla ekki of mikið í því. við þurfum bara að hugsa um okkur sjálfar og halda áfram að gera góða hluti. Það er mjög gaman að heyra svona um okkur en við megum ekki búast við því að við séum orðnar bestar og að enginn geti unnið okkur,“ segir Emelía Ósk en hver er þá stefna keflavíkurliðsins í vetur? „Okkur langar að vera meðal fjögurra hæstu og komast í úrslita- keppnina. Við stefnum bara á að gera okkar besta og komast eins langt og við getum,“ segir hún. Hækkað sig um 12 stig í leik Emelía Ósk skoraði 6,5 stig í leik í fyrra en er nú með 18,3 stig í leik og er langstigahæsti íslenski leik- maðurinn í deildinni. Engin önnur íslensk stelpa náði að skora hund- rað stig í fyrstu sex umferðunum. „Það skiptir mig ekki miklu máli að ég sé stigahæst en ég er samt alveg ánægð með það,“ segir Emelía. Ástríða hennar er nefnilega á hinum enda vallarins. „ég elska að spila vörn og finnst það bara gaman. ég hef verið mjög góður varnarmaður en skora síðan stöku sinnum og aðallega úr hraða- upphlaupum af því að ég er snögg fram. ég er ekkert vön því að skora tuttugu stig í leik,“ segir hún. Emelía Ósk er ekki búin að ákveða hvert leiðin liggur á körfuboltaferlinum. „ég útskrifast í vor og þarf að fara að ákveða það hvort ég fari í háskóla hér eða hvort mig langi að fara út að spila. Mér líst samt bara vel á það að fara út að spila,“ segir Emelía. Ekkert hræddar hvar finnst Emelíu styrkur kefla- víkurliðsins liggja? „Í vörninni og liðsheildinni. Við spilum þetta saman og það er ekki ein manneskja sem ætlar að gera þetta allt sjálf. Það er gaman að sjá hvað við spilum boltanum og finn- um opna manninn. Við erum ekkert hræddar enda vitum við það að þetta er bara körfubolti,“ segir Emelía.  ooj@frettabladid.is sport 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 F -C 3 B 0 1 B 1 F -C 2 7 4 1 B 1 F -C 1 3 8 1 B 1 F -B F F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.