Fréttablaðið - 01.11.2016, Side 26
Bílasalan 100 bílar hefur nú flutt
sig um set úr Mosfellsbæ í rúm-
gott húsnæði við Stekkjarbakka
4 í Mjóddinni við hliðina á Garð-
heimum. Í nýja húsnæðinu er
rúmgóður innisalur og rúmgóð
bílastæði úti. Bílasalan 100 bílar
var stofnuð árið 2005 og var þá
til húsa í Funahöfða 1. Áramótin
2008/2009 fluttu 100 bílar í Mos-
fellsbæ og hafa verið þar þang-
að til um miðjan ágúst þegar flutt
var í Stekkjarbakka.
100 bílar selja bíla fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki og sjá 100
bílar um sölu á notuðum bílum
fyrir Íslensk-Bandaríska ehf. bíla-
umboð (Ís-Band) sem var að opna
umboð fyrir Fiat Chrysler sam-
steypuna. Ís-Band er tímabundið
með nýju bílana í húsnæði 100 bíla
á meðan breytingar standa yfir á
sýningarsal Ís-Band í Mosfellsbæ.
Fólk getur því komið í húsnæði
100 bíla og skoðað úrval af nýjum
Fiat-, Jeep- og Dodge-bílum.
Laugar daginn 17. september verð-
ur formleg opnun í Stekkjarbakka
þar sem veitingar verða í boði
fyrir gesti á milli 11 og 15.
Fiat-Chrysler á Stekkjarbakka
100 bílar við Stekkjarbakka.
Þriðji ársfjórðungur þessa árs var
gjöfull fyrir General Motors og
tvöfaldaðist hagnaðurinn á milli
ára og nam 2,77 milljörðum doll-
ara, eða 318 milljörðum króna. Að
auki var velta GM á ársfjórðungn-
um sú mesta frá hruni og var hún
10% meiri en í fyrra. Sala bíla
GM gekk afar vel í heimaland-
inu Bandaríkjunum, en einnig var
mikil söluaukning í Kína. Salan í
Evrópu og S-Ameríku gekk ekki
eins vel og dró aðeins úr hagn-
aði GM. Hagnaður GM nam 1,72
dollara á hvern hlut í fyrirtækinu
og fór næstum því 20% fram úr
spám kaupahéðna á Wall Street.
Ef til vill kemur þessi góða nið-
urstaða til með að hækka hluta-
bréfaverð í GM, en stjórnendur
þess hafa furðað sig á lágu gengi
hlutabréfaverðs í fyrirtækinu
þrátt fyrir ágæt uppgjör á síðustu
ársfjórðungum. Á meðan hefur
hlutabréfaverð í Tesla haldist hátt
þrátt fyrir að það hafi aldrei skil-
að hagnaði. Fiat-Chrysler skilaði
einnig uppgjöri fyrir 3. ársfjórð-
ung og nam hagnaðurinn 78 millj-
örðum króna, en mikill kostnað-
ur við innkallanir hafði neikvæð
áhrif á hagnað Fiat-Chrysler að
þessu sinni.
General Motors tvöfaldar
hagnaðinn frá því í fyrra
Höfuðstöðvar GM í Detroit.
Fimmta árið í röð hækkar
Nissan á lista fyrir verðmæt-
ustu vörumerki heims sam-
kvæmt úttekt ráðgjafarfyrir-
tækisins Interbrand sem sér-
hæfir sig í virði vörumerkja og
birtir árlega niðurstöðu sína
í skýrslu sem kallast „Best
Global Brands Study“. Á þessu
ári setur Interbrand Nissan
í 43. sæti yfir verðmætustu
vörumerki heims sem er hækk-
un um 6 sæti frá 2015. Að mati
Interbrand er Nissan í fjórða
sæti á lista yfir vörumerki sem
aukið hafa verðmæti sitt mest á
undanförnum árum og er Niss-
an nú metið á meira en 11 millj-
arða bandaríkjadala.
Skýr sýn og tækniþróun
Hjá Nissan er árangurinn fyrst
og fremst að þakka skýrri fram-
tíðarsýn og tækniþróun sem
miðar að framleiðslu á far-
artækjum framtíðarinnar.
Þá hefur Nissan einnig unnið
markvisst að því að gera vöru-
merkið sýnilegra á alþjóðavett-
vangi, m.a. með kostun á fram-
kvæmd alþjóðaviðburða. Einn-
ig hefur Nissan skapað ákveðna
og jákvæða ímynd í kringum
vörumerkið sem kallar á gleði
og eftirvæntingu og birtist m.a.
í þróun og framleiðslu á spenn-
andi ökutækjum sem höfða
sterkt til mismunandi markhópa
og eiga það um leið sameigin-
legt að endurspegla stefnu Niss-
an í umhverfismálum og mark-
miðið um bætt öryggi í um-
ferðinni.
Nissan hækkar stöðugt á lista
yfir verðmætustu vörumerkin
Nissan Leaf
Renault-Nissan verður aðalsam-
starfsaðili Sameinuðu þjóðanna
í samgöngumálum við fram-
kvæmd loftslagsráðstefnunn-
ar sem haldin verður í Marokkó
dagana 7. til 18. nóvember. Hana
sækja um 25 þúsund gestir frá
195 löndum og verða 50 Renault
Zoe, Nissan LEAF og 7 sæta Niss-
an e-NV200 á þönum allan sólar-
hringinn við fólksflutninga til og
frá fundarstaðnum í Marrakech,
þar sem ráðstefnan fer fram. Auk
bílanna mun Renault-Nissan setja
upp tuttugu hraðhleðslustöðvar í
borginni sem hlaðið geta geyma
rafbílanna í 80% á innan við
klukkustund.
Stæsti rafbílaframleiðandi heims
Renault-Nissan er sá bílafram-
leiðandi sem kominn er lengst í
þróun mengunarlausra bíla fyrir
almennan markað og hefur selt
yfir 360 þúsund rafbíla í flest-
um löndum heims. Vinsælasti bíll-
inn á heimsvísu er Nissan Leaf á
meðan Renault Zoe er vinsælast-
ur í Evrópu. Um það bil helming-
ur allra rafbíla sem nú eru í um-
ferðinni í heiminum er frá Ren-
ault-Nissan. Auk Leaf og Zoe má
nefna tveggja sæta borgarbílinn
Renault Twizy og skutluna Niss-
an e-NV200 sem tekur allt að 7
manns í sæti. Stjórnvöld í Mar-
okkó hafa markað sér stefnu í
loftslagsmálum þar sem m.a.
er á stefnuskránni að stórauka
áherslu á aukinn hlut mengunar-
lausra farartækja. Renault Group
er einn helsti bílaframleiðandinn
í Marokkó sem býður úrval raf-
magnsbíla á markaðnum og nú
þegar hafa fjölmörg fyrirtæki þar
í landi ákveðið að innleiða raf-
magnsbíla í flota sinn í stað bíla
með hefðbundnum aflgjafa.
Renault-Nissan aðalsamstarfsaðili Sameinuðu
þjóðanna í samgöngumálum í nóvember
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.com
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
ÖLL ALMENN
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900
DICK CEPEK dekkin eru amerísk gæðavara og þekkt fyrir frábæra
endingu, auk þess að vera afar hljóðlát. DICK CEPEK dekkin fást í
þremur mismunandi útfærslum og í stærðum frá 29 til 44 tommu, og
passa því undir flestar gerðir jeppa og jepplinga.
NOKIAN er einn virtasti framleiðandi í heimi á vetrardekkjum. Arctic
Trucks hefur átt gott samstarf við Nokian sem skilað hefur frábærum
árangri enda koma hér saman tveir sérfræðingar í vetrarakstri.
AT315 35 tommu dekkið er afrakstur þessa samstarfs og í byrjun árs
er væntanlegt á markað nýtt 44 tommu dekk sem sérstaklega er
hannað til aksturs við afar erfiðar aðstæður að vetri til .
Bílar
Fréttablaðið
8 1. nóvember 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
F
-A
F
F
0
1
B
1
F
-A
E
B
4
1
B
1
F
-A
D
7
8
1
B
1
F
-A
C
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K