Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.11.2016, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 01.11.2016, Qupperneq 40
Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is 1. nóvember Sýningar Hvað? Þorskastríðin, For cod’s sake Hvenær? 10.00 Hvar? Sjóminjasafnið í Reykjavík Sýningin Þorskastríðin, For cod’s sake fjallar um pólitískar deilur milli Íslands og Bretlands um fisk- veiðiréttindi á Íslandsmiðum á árunum 1958–1976. Saga þorska- stríðanna er rík og margslungin. Í henni koma við sögu fagurklæddir sjómenn frá Hull, ármenn Íslands eða strákarnir okkar, grjótkast og árekstrar bæði á hafi og í landi. Á sýningunni er varpað ljósi á ýmsa þætti þessarar sögu, suma lítt þekkta. Sýningin er afrakstur vinnu meistaranema í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands í samstarfi við Borgarsögu- safn Reykjavíkur. Viðburðir Hvað? Mikaela Odemyr, forseti EFA, með erindi á Íslandi Hvenær? 16.30 Hvar? Barnaspítali Hringsins Hér á landi er stödd, í boði Astma- og ofnæmisfélags Íslands, Mikaela Odemyr, sænsk kona sem er í dag forseti EFA (European Federation of Astma and Airways diseases,http://www.efanet.org/) en er að auki reynslumikil móðir ofnæmisbarna og virtur fyrirlesari á því sviði. Mikaela segir sjálf að hún sé enginn læknir en hafi yfir tveggja áratuga reynslu á sviði astma og ofnæmis. Hún hefur verið virk í faglegri fræðslu til fjöl- skyldna og einstaklinga á sínu heimasvæði sem og víðar í Svíþjóð. Þar talar hún um hvernig hún og fjölskyldan hafi þurfti að lifa með lífshættulegu bráðaofnæmi og astma og vinna með leik- og skóla- kerfinu á því sviði. Mikaela verður með síðdegiserindi í Reykjavík í Hringsal Barnaspítala Hringsins þriðjudaginn 1. nóvember kl. 16.30. Hvað? Höfundakvöld með John Ajvide Lindquist Hvenær? 19.30 Hvar? Norræna húsið John Ajvide Lindquist er sænskur rithöfundur, þekktur fyrir hryll- ingssögur sínar. Fyrsta bók hans Låt den rätte komma in eða Hleyptu þeim rétta inn kom út árið 2004. Sagan gerist í úthverfi Stokkhólms og fjallar um Óskar, einmana dreng sem verður fyrir miklu einelti í skóla. Um vináttu hans og stúlkunnar Eli sem reynist ekki öll þar sem hún er séð, svo vægt sé til orða tekið. Bókin hefur verið þýdd á meira en þrjátíu tungumál og kvikmynd með sama nafni var gerð árið 2008 í leikstjórn Tomas Alfredson. Leik- gerð var einnig unnin upp úr bókinni sem farið hefur sigurför um heiminn og meðal annars verið sett upp, við miklar vin- sældir, í Royal Court leikhúsinu í London, Skoska þjóðleikhúsinu, St. Ann’s Warehouse í New York og á Norðurlöndunum. Í mars 2016 var leikritið sett upp í Þjóðleikhús- inu. John Ajvide Lindqvist hefur skrifað fleiri skáldsögur sem flestar hverjar má skilgreina sem hryll- ings- og/eða spennusögur ásamt því að skrifa sjónvarps- og kvik- myndahandrit. Nýjasta skáldsaga hans, Rörelsen, den andra platsen (2015), færði höfundinum tilnefn- ingu til Augustverðlaunanna sama ár. Í bókinni skoðar höfundurinn mörkin á milli þess sanna og ósanna, þess raunverulega og þess yfirnáttúrulega. Hvað? Tilraunir með hveragufu til hús- hitunar í Reykholti á Sturlungaöld Hvenær? 20.00 Hvar? Garðakaffi, Akranesi Guðmundur Þorsteinsson hefur í vel áratug rýnt í skýrslur og aðrar heimildir um forn mannvirki í Reykholti með aðstoð leikra og lærðra. Hann segir frá þeim í máli og myndum en honum virðist þau vera fyrstu þekktu tilraunir með notkun hveragufu til húshitunar. Sennileg aðkoma Snorra Sturlu- sonar verður skoðuð en Guðný, móðir hans, gæti sem barn hafa leikið sér þar sem Garðakaffi er nú. Hann rekur sérstaka sögu leiðslu- steins sem fannst árið 1929 og var nýlega á hans vegum skoðaður af jarð- og jarðefnafræðingi til að kanna efnainnihald og upp- runa. Leiðslusteinninn hefur verið í geymslu en með þeirri nýju aðkomu og sýn sem sagt verður frá gæti þessi „Reykholtssteinn“ fengið veglegri sess. Kynning Guðmundar fer fram á Garðakaffi. Reynt verður að stilla beinni kynningu í hóf en fá fram fyrirspurnir og umræður eftir því sem tíminn leyfir. Setið er við borð og geta gestir notið veitinga að vild. Tónlist Hvað?  Carioca kvartett Hvenær? 21.00 Hvar? Harpa Kvartettinn leikur tónlist Carioca, íbúa hinnar margrómuðu borgar Rio de Janeiro þar sem heyra má ýmsa stíla svo sem chorinho, baiao og maracatu sem sjaldan hafa ratað inn á tónleikadagskrár hérlendis. Kvartettinn mun leika blöndu af tónlist helstu tónskálda brasilískrar tónlistarhefðar. Sjóð- heitar sömbur og brakandi choro- músík. Myndlist Hvað? Dr. Gunni – Atvik Hvenær? 17.00 Hvar? Mokka kaffi Dr. Gunni (Gunnar Lárus Hjálmarsson) heldur sína fyrstu myndlistarsýningu á Mokka kaffi. Sýningin stendur frá 1. til 30 nóv- ember. Opnun fer fram þann 1. nóvember kl. 17-18.30. Dr. Gunni sýnir 18 akrílmyndir sem málaðar eru á hvítgrunnuð plötuumslög. Í hverju umslagi er platan Atvik, ný sólóplata frá Dr. Gunna. Platan er 18 laga (eitt lag fyrir hverja mynd) og verður einungis til í 18 eintökum. Platan verður aldrei sett á netið. Efni myndanna eru minningarbrot – atvik – úr lífi Dr. Gunna. Minnið er undarlegt fyrirbæri, jafnvel smávægislegustu minningar tolla inni á meðan stærri atburðir detta út. Efnið spannar alla tilvist Dr. Gunna, frá barnæsku til miðaldra lífs hvíts karlmanns í nútímanum. Dr. Gunni (Gunnar Lárus Hjálmarsson) heldur sína fyrstu myndlistarsýningu á Mokka kaffi. Sýninging stendur frá 1. til 30 nóvember. Opnun fer fram í dag kl. 17 til 18.30. Kvartett leikur tónlist Carioca, íbúa hinnar margrómuðu borgar Rio de Janeiro, í Hörpu í kvöld kl. 21.00. ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Í DAG ÁLFABAKKA DOCTOR STRANGE 3D KL. 6:30 - 9 DOCTOR STRANGE 2D KL. 5:30 - 8 - 10:30 DOCTOR STRANGE 2D VIP KL. 5:30 - 8 - 10:30 JACK REACHER 2 KL. 5:30 - 8 - 10:30 THE GIRL ON THE TRAIN KL. 8 - 10:30 STORKAR ÍSLTAL KL. 6 SULLY KL. 8 - 10:10 PETE’S DRAGON KL. 5:50 KEFLAVÍK DOCTOR STRANGE 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 JACK REACHER 2 KL. 8 - 10:30 TRÖLL ÍSLTAL KL. 6 AKUREYRI DOCTOR STRANGE 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 JACK REACHER 2 KL. 8 - 10:30 STORKAR ÍSLTAL KL. 6 DOCTOR STRANGE 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 JACK REACHER 2 KL. 8 - 10:30 STORKAR ÍSLTAL KL. 6 BRIDGET JONES’S BABY KL. 5:20 - 8 - 10:40 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI EGILSHÖLL DOCTOR STRANGE 3D KL. 8 - 9:30 DOCTOR STRANGE 2D KL. 5:30 - 7 - 10:30 JACK REACHER 2 KL. 5:30 - 8 - 10:30 THE GIRL ON THE TRAIN KL. 5:30 - 10:20 DEEPWATER HORIZON KL. 8 Nýjasta stórmynd Clint Eastwood ENTERTAINMENT WEEKLY  VARIETY  Byggð á samnefndri metsölubók Emily Blunt Justin Theroux HOLLYWOOD REPORTER  THE WRAP  Sýnd með íslensku tali EMPIRE  ENTERTAINMENT WEEKLY  N.Y. DAILY NEWS  EMPIRE  Tom Cruise er mættur aftur sem Jack Reacher ENTERTAINMENT WEEKLY  THE WRAP “FLAT OUT COOL”  EMPIRE  TILDA SWINTON BENEDICT CUMBERBATCH CHIWETEL EJIOFOR ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 Captain Fantastic 17:30 Ransacked 18:00 Eiðurinn ENG SUB 17:45 Child Eater 20:00, 22:00 Innsæi / The Sea Within 20:00 Miss Peregrine’s Home for Peculiar Children 20:00 Embrace Of The Serpen 22:00 Fire At Sea 22:30 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ DR. STRANGE 3D 5.30, 8, 10.25 (P) JACK REACHER 2 8, 10.30 TRÖLL 2D ÍSL.TAL 6 INFERNO 10.30 BRIDGET JONES’S BABY 5.30, 8 POWERSÝNING KL. 22.25 Sýningartímar og miðasala á smarabio.is Upplýsingar um kvikmyndir og sýningartíma eru á smarabio.is ÞRIÐJUDA GSTILBOÐ 1 . n ó V e M b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r24 M e n n I n G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 F -B 9 D 0 1 B 1 F -B 8 9 4 1 B 1 F -B 7 5 8 1 B 1 F -B 6 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.