Fréttablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 12
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
Austurríki Ekkert hefur breyst frá
því að forsetakosningar skiluðu
Alexander Van der Bellen naumum
sigri yfir Norbert Hofer síðastliðið
vor. Fylgi þeirra var nánast hnífjafnt
og er það enn.
Van der Bellen sigraði með 50,3
prósentum en Hofer tapaði með
49,7 prósentum atkvæða.
Þær kosningar voru dæmdar
ógildar og verða endurteknar
sunnudaginn 4. desember. Fylgi
þeirra beggja er enn að mælast rétt í
kringum 50 prósentin. Hending ein
virðist ætla að ráða því hvor verður
ofan á.
Norbert Hofer er fullur eldmóðs,
ákafur þjóðernissinni og hægri-
maður, fulltrúi Frelsisflokksins
sem óspart höfðar til ótta almenn-
ings við flóttafólk, útlendinga og
alþjóðavæðingu almennt.
Alexander Van der Bellen er
hins vegar hæglátur hagfræðingur
og umhverfissinni sem nýtur
stuðnings austurríska Græningja-
flokksins, enda var hann leiðtogi
flokksins í rúman áratug, frá 1997
til 2008.
Sigur Hofers yrði túlkaður sem
vatn á myllu hreyfingar hægri þjóð-
Ugla sat á kvisti
Á sunnudaginn verður seinni umferð forseta-
kosninganna í Austurríki endurtekin eftir miklar
tafir og flækjur. Þjóðin skiptist í nánast tvær jafnar
fylkingar milli frambjóðendanna tveggja.
Alexander Van der Bellen og Norbert Hofer mættust í sjónvarpskappræðum um síðustu helgi. Fylgi þeirra mælist enn nærri hnífjafnt. NordicpHotos/AFp
ernissinna sem mikill uppgangur
hefur verið í víða í Evrópu undan-
farin misseri, í beinu framhaldi af
djúpri efnahagskreppu í álfunni og
hernaðarhörmungum í Sýrlandi
og víðar sem fólk hefur flúið unn-
vörpum. Og margir reynt að finna
hæli í Evrópu.
Hofer er partur af sömu hreyf-
ingu og þau Marine le Pen í Frakk-
landi, Geert Wilders í Hollandi og
Nigel Farage í Bretlandi, sem öll
leggja í einhverjum skilningi ofur-
áherslu á að verja þjóðleg gildi gegn
áhlaupi innflytjenda og alþjóða-
væðingar.
Þessir flokkar hafa verið nefndir
popúlistaflokkar, lýðskrumarar,
enda snúist málflutningur þeirra
fyrst og fremst um að ala á hræðslu
almennings. Sá málflutningur sé
allur á yfirborðinu en staðreyndir
oft látnar liggja á milli hluta.
Sigur Donalds Trump í forseta-
kosningum Bandaríkjanna hefur
orðið liðsmönnum þessara flokka
hvatning til dáða. Þeir líta margir á
hann sem ótvíræðan bandamann
sinn.
Mörgum létti því að loknum kosn-
ingunum í maí þegar naumum sigri
Græningjans Van der Bellens var lýst
yfir. Sú undarlega staða var komin
upp að fulltrúi Græningjahreyfing-
arinnar var orðinn fulltrúi hinna
gamalreyndu stjórnmála gegn upp-
reisnaröflum úr röðum almúgans.
Jafnframt endurvakti ógilding
þeirra kosninga ugg um að nú eigi
Hofer aftur góða möguleika á sigri.
Í sjónvarpskappræðum um síð-
ustu helgi tókust þeir á um þessi
átakamál, sem tröllriðið hafa evr-
ópskum stjórnmálum undanfarið.
Meðal annars sakaði Van der
Bellen andstæðing sinn um að vilja
koma Austurríki úr Evrópusam-
bandinu, með sama hætti og Bretar
samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu
í sumar. Hofer sagði samt ekkert
hæft í því.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Óttast alþjóðavæðingu
Uppgangur hægri þjóðernisflokka víða
í Evrópu virðist einkum knúinn áfram
af ótta við alþjóðavæðingu, jafnvel
frekar en af ótta við versnandi eigin
hag og varðstöðu um þjóðleg gildi.
Þetta kemur fram í nýrri könnun þýsku
Bertelsmann-stofnunarinnar.
Hér má sjá niðurstöður könnunar-
innar á afstöðu fylgismanna helstu
þjóðernisflokka Evrópu, borið saman
við meðaltal íbúa viðkomandi landa.
n Óttast alþjóðavæðingu n Óttast að hagur sinn versni n Þjóðernisíhald
Austurríki
55%
37%
38%
Frelsisflokkurinn
69%
52%
47%
FrAkklANd
54%
51%
55%
Þjóðfylkingin
76%
67%
67%
pÓllANd
50%
22%
55%
lög og réttur
k15
58%
20%
67%
58%
18%
56%
uNgVerjAlANd
47%
34%
38%
Fidesz
jobbik
61%
26%
44%
50%
38%
40%
ÞýskAlANd
45%
34%
39%
Valkostur fyrir Þýskaland AfD
78%
46%
46%
HollANd
40%
26%
53%
Frelsisflokkurinn
57%
37%
63%
ítAlíA
39%
45%
50%
Norðurbandalagið
66%
54%
55%
BretlANd
36%
26%
55%
Breski sjálfstæðisflokkurinn UKIP
50%
32%
53%
24. Apríl
Fyrri umferð
forsetakosninganna
Norbert Hofer (35,1%)
og Alexander Van der
Bellen (21,3%) fengu
flest atkvæði af samtals
sex frambjóðendum.
Þar sem enginn fékk
50% eða meira þurfti að
kjósa aftur milli tveggja
efstu.
✿ Forsetakosningar megnið af árinu
22. mAí
seinni umferð
forsetakosninganna
Alexander Van der Bellen (50,3%) vann
nauman sigur á Norbert Hofer (49,7%).
1. júlí
seinni umferðin
úrskurðuð ógild
Stjórnarskrárdómstóll úrskurðar
seinni umferð kosninganna
ógilda vegna galla á framkvæmd
hennar sem náði til 77.926 atkvæða,
helmingi fleiri en þau 30.863 atkvæði
sem munaði á kjörfylgi frambjóð-
endanna. Nokkrum dögum síðar er
ákveðið að seinni umferðin verði
endurtekin þann 2. október.
5. júlí
tilkynnt um endurtekningu
Christian Kern, kanslari landsins, skýrir
frá því að seinni umferð kosninganna
verði endurtekin þann 2. október.
12. septemBer
endurtekningunni frestað
Wolfgang Sobotka innanríkisráðherra
skýrir frá því að kosningunum verði
frestað til 4. desember vegna galla á um-
slögum undir utankjörstaðaatkvæði, sem
prenta þurfi aftur.
4. desemBer
seinni umferð
forsetakosn-
inganna
endur tekin
Seinni umferð
forsetakosning-
anna endurtekin.
Kjósendur velja
aftur á milli Van
der Bellens og
Hofers.
Fulltrúi hægri þjóðernis-
sinna fær annað tækifæri á
sunnudaginn til að vinna
nauman sigur á Hofer.
50,3%
atkvæða tryggðu Van der
Bellen nauman sigur á Hofer
í maí síðastliðnum, en þær
kosningar voru síðar ógiltar.
1 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F i m m t u d A G u r12 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
F
-6
D
B
0
1
B
7
F
-6
C
7
4
1
B
7
F
-6
B
3
8
1
B
7
F
-6
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K