Fréttablaðið - 01.12.2016, Side 24

Fréttablaðið - 01.12.2016, Side 24
JAFNVÆGISHJÓL Á jólatilboði! Frábær hjól fyrir börn til þess að læra að halda jafnvægi og stíga sín fyrstu skref á hjóli. Einstaklega létt, 2,9 kg., engir pedalar, keðja eða oddhvassir hlutir sem geta meitt. Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi / Sími 557 4848 / www.nitro.is Verð aðeins 12.590,- kr Áður 17.990,- 30% Afsláttur Tilvalin jólagjöf Apple tilkynnti í lok nóvember að lítið upplag af iPhone 6S símunum hafi verið selt með gölluðum raf- hlöðum. Um er að ræða ákveðin raðnúmer sem hægt er að fletta upp en símarnir geta slökkt óvænt á sér þrátt fyrir að hafa næga hleðslu. Galli í rafhlöðunum hefur gert vart við sig á Íslandi, sér í lagi þegar farið er með símana út í kulda. Erla Björk Sigurgeirsdóttir, þjón- ustustjóri Eplis, umboðsaðila Apple á Íslandi, segist ekki hafa tölu á því hve margir símar sem Epli seldi séu með gallaða rafhlöðu. „Við erum búin að fá fyrirspurnir en höfum ekki fengið nein tæki inn,“ segir Erla. Epli hefur tilkynnt að vegna heimsálags fái verslunin ekki raf- hlöður á lager fyrr en um miðjan desember til þess að geta skipt út gölluðu rafhlöðunum. „Apple gefur út prógramm til að fólk geti skipt þessu út. Prógrammið byrjar um miðjan desember en við búumst við því jafnvel fyrr.“ Sigurður Helgason, eigandi iStore, segir að tilfelli hafi komið upp þar sem rafhlöður hafi slökkt svona á sér. „Við vitum ekki alveg hvort þetta eru þessar gölluðu rafhlöður, við erum ekki enn þá búin að fá leiðbeiningar um hvernig eigi að fletta upp rað- númerunum sem þetta varðar. En viðskiptavinir okkar hafa fengið að skipta út símum vegna þess að batteríið hefur verið að slökkva á sér í tíma og ótíma, sérstaklega úti í kulda,“ segir Sigurður. Hann segir að oftast taki eina viku að afgreiða nýtt batterí. Það geti þó tekið hátt í tvær vikur en viðskiptavinir hafi fengið lánaða iPhone-síma á meðan. Rafhlöðugalli í iPhone gert vart við sig hér Dæmi eru um iPhone 6S síma á Íslandi með gallaða rafhlöðu sem slökkva á sér þótt hleðslan sé næg. Þetta gerist sérstaklega úti í kulda. Hægt verður að skipta út rafhlöðum um miðjan desember. Biðtíminn kemur illa við notendur. Samkvæmt gögnum Bókunar var velta korthafa á svörtum föstudegi svokölluðum í síðustu viku ekki hærri en suma aðra daga nóvem- bermánaðar. Svartur föstudagur er bandarískur siður og var fjöldi verslana á landinu með afsláttartil- boð þennan dag. Borgun tók saman gögn um allan nóvembermánuð 2016. Samkvæmt þeim virðist erlenda veltan hafa aukist meira hlutfallslega þessa helgi heldur en velta þeirra sem versla hér heima. Mögulega fara Íslendingar utan á þessum tíma til að versla. Ef skoðuð eru innlend gögn selj- endamegin má sjá að verslun með raftæki og tölvur eykst um 240 pró- sent þennan dag. Húsgagnaversl- anir velta 360 prósentum meira og fata- og skóverslanir 70 prósentum meira. Að sama skapi minnkar velta í matvöruverslunum um 30 prósent, bensínsala minnkar um 50 prósent og veitingasala um 20 prósent. Því mætti lesa úr gögnunum að svartur föstudagur sé að virka hjá þeim stöðum sem eru með tilboð í gangi, fólk fari ef til vill ekki að kaupa bensín eða matvörur því að það sé upptekið við annað. Þó að heildar- upphæðin hafi verið svipuð og aðrar helgar má áætla að þeir sem voru með tilboðin hafi aukið veltu sínu. Gögn Borgunar eru ópersónu- greinanleg og um er að ræða bæði debet- og kreditkortagögn. – sg Verslun með raftæki margfaldaðist á föstudag Breska hagkerfið tapar 40 millj- örðum punda, jafnvirði 5.600 millj- arða króna, árlega vegna þess að starfsmenn þjást af svefnleysi. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn frá Rand Europe. BBC greinir frá því að útreikningar byggist á því að þreyttir starfsmenn séu annaðhvort afkastaminni eða taki sér veikindadag. Um 1,86 pró- sent af hagvexti tapist vegna svefn- leysis. Einnig kemur fram í rannsókninni að þeir sem sofa undir sex tímum á hverri nóttu séu 13 prósent líklegri til að deyja á undan þeim sem sofa sjö til níu tíma. Rannsóknin náði til Bretlands, Bandaríkjanna, Kanada, Þýskalands og Japans. Niðurstöðurnar voru jákvæðari í Bretlandi en í Japan þar sem starfsmenn missa af flestum vinnudögum sökum svefnleysis. Bretar missa af 200 þúsund vinnu- dögum árlega vegna svefnleysis en í Bandaríkjunum eru það 1,2 milljónir vinnudaga og í Japan 600 þúsund. Skýrsluhöfundar biðla til atvinnu- rekenda að átta sig á umfangi vand- ans og hvetja starfsmenn til að ná nægum svefni, sem og að útbúa her- bergi þar sem starfsmenn geti lagt sig. – sg Svefnleysi kostar milljarða Beðið eftir slysi Fjölmargar brúður bíða eftir því að vera notaðar í æfingakeyrslu hjá öryggistæknisetri Mercedes-Benz í í Sindelfingen í Þýskalandi. Brúðurnar eru notaðar í stað fólks til að prófa öryggi bíla úr smiðju þýska framleiðandans. Þær eru meðal annars notaðar til að prófa bílbelti. Fréttablaðið/aFP lítið upplag af iPhone 6S símum var selt með gölluðum rafhlöðum. Mynd/aPPle Vart hefur orðið við gallaðar raf- hlöður hjá mismunandi söluaðilum hér á landi. Eigendur síma með gallaða rafhlöðu sem Fréttablaðið ræddi við sögðust ósáttir við hve langur tími hefði liðið frá uppgötv- un vandamálsins og þangað til sím- arnir verða lagaðir. Þetta ætti sér- staklega við þar sem símarnir voru framleiddir í september og október á síðasta ári og vandamálið því verið viðvarandi í heilt ár. saeunn@frettabladid.is Þúsundir vinnudaga tapast á ári sökum svefnleysis. Fréttablaðið/Getty 240% aukning var í sölu raftækja á svörtum föstudegi á Íslandi. Forsvarsmenn Apple tilkynntu í síðasta mánuði að lítið upplag af iPhone 6S símum hefði verið selt með gölluðum rafhlöðum. Vandamálsins hefur orðið vart um allan heim. mArkAðurinn 1 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U d A G U r24 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð 0 1 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :2 0 F B 0 8 8 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 7 F -9 0 4 0 1 B 7 F -8 F 0 4 1 B 7 F -8 D C 8 1 B 7 F -8 C 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.