Fréttablaðið - 01.12.2016, Side 37
FÓLK
KYNNINGARBLAÐ
„Naprapat meðhöndlar og leið-
réttir orsök verkja. Bein þýðing á
orðinu naprapati er ,,að leiðrétta
orsökina“. Í naprapati-meðferð-
inni er litið á stoð- og taugakerf-
ið sem eina heild og naprapat leit-
ast við ná fólki sársaukalausu sem
fyrst, ásamt því að finna og rétta
til ástæðuna fyrir verkjunum,“
útskýrir Guttormur Brynjólfsson,
naprapat eða doctor of naprapathy.
HNYKKIR, NUDDAR OG TEYGIR
Starf naprapats snýst um grein-
ingu, meðhöndlun og endurhæf-
ingu stoðkerfisins, naprapatinn
leggur mikla áherslu á að finna
og lagfæra orsök verkja, en or-
sökin getur leynst meðal ann-
ars í stoð- eða taugakerfi. „Þegar
vandinn hefur verið greindur hefst
meðferðin sem getur meðal annars
falist í hnykkingum, meðhöndlun
á band- og stoðvef með nuddi og
teygjum og sérsniðnum æfingum
fyrir stoðkerfið svo koma megi í
veg fyrir þjáningu og sársauka.“
Naprapati varð löggild starfs-
grein í Svíþjóð árið 1994 og til-
heyrir sænska heilbrigðiskerf-
inu. „Þriðji hver Svíi hefur leitað
til naprapats með stoðkerfisvanda-
mál sín sem gerir naprapati að vin-
sælustu stoðkerfismeðhöndlun
landsins. Rannsóknir hafa verið
gerðar í samvinnu við meðal ann-
ars Karolinska Institutet í Stokk-
hólmi, og hafa bent til að napra-
pati sé ein af áhrifaríkustu með-
höndlunum á stoðkerfinu sem völ
er á. Í því samhengi má benda á
rannsókn sem var birt í ,,Clinical
Journal of Pain“, einu af virtustu
læknaritum heims, ,,Naprapathic
manual therapy or evidence- based
care for back and neck pain“,“
segir Guttormur, sem útskrifaðist
sem naprapat árið 1996 og hefur
allt frá útskrift átt og rekið sína
eigin naprapatistöð í Madrid á
Spáni, Natt Center, og rekur enn.
JAFNVÆGI HEILANS MIKILVÆGT
Ástæðu bak- og hálsverkja má oft
rekja til starfsemi heilans að sögn
Guttorms og til dæmis megi nefna
að um sjötíu prósent af hrygg-
skekkjum séu sennilega tilkomn-
ar vegna ójafnvægis í heilanum.
„Heili og mæna, einu nafni mið-
taugakerfi, stjórna allri starfsemi
líkamans. Ójafnvægi heilahvel-
anna getur valdið spennu í vöðvum
og leitt til endurtekinnar rangr-
ar beitingar sem getur leitt til
meiðsla eða eymsla í líkamanum.
Ýmsar ástæður geta leitt til þess
að heilinn vinni ekki eins og best
verður á kosið, til dæmis ef litli
heilinn fær mismunandi skilaboð
frá hægri eða vinstri hlið líkam-
ans. Ástæður fyrir því geta verið
læsingar og minnkuð hreyfigeta í
liðum eða jafnvel eitthvað í mið-
taugakerfinu, sem veldur mismun-
andi vöðvastyrk eða hreyfigetu í
hliðum líkamans og getur valdið
rangri líkamsstöðu,“ lýsir hann.
STOFUR Á SPÁNI OG ÍSLANDI
Guttormur hefur síðastliðin tutt-
ugu ár byggt upp gott orðspor
á Spáni og víðar, meðal annars
hafa komið til hans í meðhöndl-
un fótboltamenn úr ensku úrvals-
deildinni og var Guttormur einnig
fenginn til Liverpool FC til þess að
meðhöndla leikmenn. Fyrir honum
eru þó allir sjúklingar jafnir og er
það honum kappsmál að geta hjálp-
að sem flestum.
Nú er Guttormur fluttur heim
til Íslands og hefur hann opnað
stofu í Orkuhúsinu á Suðurlands-
braut 34 þar sem hann meðhöndl-
ar alla þá sem eiga við meiðsli
eða verki að stríða, eða vilja bara
fyrir byggja stoðkerfisvandamál
og hámarka vellíðan sína. „Napra-
pat býr yfir mikilli þekkingu og
tækni til að tryggja það að líkam-
inn virki sem allra best.“
Stofa Guttorms er í Orkuhús-
inu Suðurlandsbraut 34, sími:
6250011. Frekari upplýsingar má
fá á www.naprapat.is, á Facebook
undir Naprapat – Orkuhúsið eða
senda tölvupóst á info@napra-
pat.is.
1 . D E S E M B E R 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R
2. hæð - Smáralind
Naprapat meðhöndlar og leiðréttir orsök verkja. Guttormur útskrifaðist sem naprapat árið 1996, hefur síðan rekið sína eigin naprapatistöð á Spáni og hefur nú einnig
opnað stofu hér á landi. MYND/ERNIR
NAPRAPATI ER ÁRANGURSRÍK
MEÐHÖNDLUN VIÐ VERKJUM
Guttormur Brynjólfsson er menntaður naprapat (Doctor of Naprapathy) en naprapati-meðhöndlun felst meðal annars í
hnykkingum, meðhöndlun á band- og stoðvef og sérsniðnum æfingum fyrir hvers kyns stoðkerfisvandamál.
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
7
F
-A
D
E
0
1
B
7
F
-A
C
A
4
1
B
7
F
-A
B
6
8
1
B
7
F
-A
A
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K