Fréttablaðið - 01.12.2016, Side 44

Fréttablaðið - 01.12.2016, Side 44
Starri Freyr Jónsson starri@365.is Það var á upphafsárum sínum í menntaskóla sem Sturla Sær Fjeld­ sted fékk fyrst áhuga á tísku fyrir alvöru. Þá hóf hann að hugsa meira um hverju hann klæddist og fór að skapa sinn eigin stíl. Á öðru ári byrjaði hann að fikta við saumaskap og tók eitt sauma­ námskeið í vali. „Ég fór að prófa mig áfram, breytti sniðum og saum­ aði einnig flíkur frá grunni. Mér var síðar gefin saumavél og síðan hefur getan aukist gríðarlega. Á þriðja ári tók ég þátt í frumkvöðla­ verkefni ásamt Arnari Leó og Kon­ ráði Loga vinum mínum og stofnuð­ um við fatafyrirtæki undir nafninu Reykjavík Roses. Við gáfum út nýja fatalínu núna í lok sumars og er hún til sölu í Smash og selst vel. Það er gaman hvað við höfum fengið frá­ bærar viðtökur.“ Utan þess að teikna, hanna og sauma föt hefur Sturla Sær einn­ ig áhuga á íþróttum, hjóla­ og snjó­ brettum. LÝSTU FATASTÍLNUM ÞÍNUM Hann er einfaldur en um leið fremur fjölbreyttur, best lýst sem „streetstyle“, „skate“ blandað við pönk, hiphop og smá af breskum „urban“ stíl. Ég elska að vera gyrtur og einnig að klæðast stórum flíkum. Stíllinn minn breytist hratt því ég hef gaman af að blanda saman mismunandi tísku og er ekki hræddur við að prófa nýja hluti. HVERNIG FYLGIST ÞÚ MEÐ TÍSKUNNI? Ég nota mest Insta­ gram til að fylgjast með en skoða líka netsíður. Það sem ég sé úti í bæ hefur samt mest áhrif og er að mínu mati besta leiðin til að fylgj­ ast með. Þá fæ ég oft hugmyndir og púsla saman „outfit­um“ í hug­ anum sem ég útfæri svo betur.“ HVAÐ EINKENNIR KLÆÐNAÐ KARLA? Karlmenn pæla mikið í því hverju þeir klæðast. Hiphop og tónlistarmenn almennt eru miklir áhrifavaldar. Núna er mikið 90’s og allt „oversized“. ÁTTU ÞÉR UPPÁHALDSVERSL- ANIR? Núna er það klárlega Smash. Ég á mér í rauninni engar uppáhaldsverslanir heldur geng á milli verslana, bæði heima og erlendis. Ef mér líst vel á flíkina þá kaupi ég hana. Annars sauma ég einnig mikið af fötum sem ég geng í daglega.“ UPPÁHALDSHÖNNUÐIR? Marg­ ir íslenskir hönnuðir eru að gera frábæra hluti og gaman að sjá hvað fleiri og fleiri eru að taka af skarið með sína eigin hönnun. Sjálfur er ég að hanna föt og koma mér á framfæri. Ef ég á að nefna erlenda hönnuði eru það Jerry Lorenzo (Fear of God) og Demna Gvasalia (Vete­ ments). ÁTTU EINA UPPÁ- HALDSFLÍK? Ég á frábært safn af buxum sem ég hef bæði breytt og lag­ fært að mínum þörf­ um. Uppáhaldsflíkin mín núna eru Levi’s­ dömubuxurnar með bótum á hnénu. Ann­ ars eru flestar buxurnar mínar dömubuxur og ég skammast mín alls ekkert fyrir það. Flíkin sem ég held mest upp á er meira en hálfrar aldar gamall silkisloppur sem afi minn átti. BESTU OG VERSTU KAUPIN? Ég gerði líklega verstu kaupin þegar ég keypti fyrst föt á netinu. Við getum orðað það svoleiðis að ég fékk alls ekki það sama og ég pant­ aði mér. Mín bestu kaup eru lík­ legast bomber­jakki sem ég keypti í London fyrir nokkrum árum. Hann varð grunnurinn að mörg­ um jökkum sem ég hef hannað og saumað síðan. NOTAR ÞÚ FYLGIHLUTI? Ég nota ekki mikið af fylgihlutum. Þó er ég stundum með armbönd eða rúskinnsreimar utan um úlnliðina og nota mikið belti. Hins vegar fer úrið sem ég erfði frá afa mínum á Sigló sjaldan af mér. HVAÐ ER FRAM UNDAN Í VETUR? Við erum að endur­ panta síðustu línu Reykja­ vík Roses þessa dagana en erum samhliða að vinna að nýrri línu sem kemur út á næsta ári. Við félagarnir í Reykjavík Roses erum líka að byrja á nýju spennandi verk­ efni sem verður gaman að kynna betur þegar það er farið í gang. Annars er ég á leið í tveggja mán­ aða heims­ reisu í janúar. Það verður gaman að fá tækifæri til að kynnast nýjum menningar­ og tískuheimi. ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ PRÓFA NÝTT Sturla Sær er óhræddur við að blanda saman ólíkum stílum og prófa nýja hluti. Nýlega stofnaði hann fatamerkið Reykjavik Roses ásamt félögum sínum og vörur þeirra seljast vel. Flestar buxurnar hans eru dömubuxur. Hér klæðist Sturla Sær svartri La Madre-hettupeysu frá Reykjavík Roses, Stussy spiral collar bol og jakka frá Samsoe & Samsoe. MYNDIR/ERNIR Silkisloppur frá afa, keyptur um 1949. Levi’s rauðröndóttur bolur, Levi’s skinny buxur og Carhartt palm belti. Skórnir eru Vans old skool true white. Séð aftan á La Madre Reykjavík Roses hettupeysu. RVK HOODIE Reykjavík Roses hettupeysa, röndóttur bolur sem Sturla saumaði og Levi’s highrise skinny buxur sem hann reif. 1 . D E S E M B E R 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R8 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ K Y N I N G A R B L A Ð ∙ T Í S K A 0 1 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :2 0 F B 0 8 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 7 F -B 2 D 0 1 B 7 F -B 1 9 4 1 B 7 F -B 0 5 8 1 B 7 F -A F 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.