Fréttablaðið - 15.07.2016, Page 26

Fréttablaðið - 15.07.2016, Page 26
Þjóðhátíð Kynningarblað 15. júlí 20166 „Ég var að klára Verzlunarskóla Íslands og stefni ekki á meira nám að svo stöddu. Núna get ég einbeitt mér 100% að tónlistinni. Hún hefur verið mín atvinna í sumar ásamt því að að vinna að heimildarmynd um lesblindu og fjölda verkefna í kringum hana. Svo ætla ég eitthvað til útlanda,“ segir söngkonan Sylvía Erla Mel­ sted um sumarplönin. Sylvía sendi frá sér glænýtt lag í gær, Celebrate, en áður höfðu lögin Getaway og Gone notið mik­ illa vinsælda. Eins og titillinn gefur til kynna fjallar nýja lagið um það að fagna lífinu. Fagna og hafa gaman „Ég samdi textann en Printz Bord og ég sömdum lagið í sam­ einingu. Ég elska þetta lag og textinn á líka svo vel við í dag. Að fagna lífinu og hafa gaman, eins og við gerðum þegar lands­ liðinu okkar gekk vel á EM. En við eigum ekki bara að fagna þegar vel gengur, heldur fagna öllum stundum í lífi okkar. Tím­ inn okkar er svo dýrmætur, við verðum að nýta hann vel. Við eigum ekki að eyða tímanum í að flækja lífið og vera með al­ menn leiðindi. Lagið er um það, þó að á móti blási þá má maður ekki láta það eyðileggja skapið og viðhorf sitt til lífsins, held­ ur höldum við áfram og þegar við trúum að allt verði betra þá verður allt betra. Við eigum að njóta og lifa og hafa gaman þar til yfir lýkur!“ Hálfan dag á þjóðhátíð Sylvía mun koma fram á Þjóð­ hátíð í ár. Sjálf hefur hún einung­ is einu sinni áður farið á Þjóðhá­ tíð og hlakkar því mikið til. „Ég fór með mömmu minni og kærastanum. Við vorum bara í hálfan dag en ég fékk að upplifa brekkusönginn sem var geggjað. Það leggst mjög vel í mig að koma sjálf fram og ég er spennt,“ segir hún en það vakti athygli þegar tilkynnt var um þátttöku hennar og Ragnhildar Gísladóttur í dag­ skrá Þjóðhátíðar, þar sem þótti halla á konur. „Það hefði verið gaman að hafa fleiri konur með í ár því við eigum svo ótrúlega mikið af flott­ um tónlistarkonum. En á Íslandi erum við svo heppin að eiga svo mikið af frábæru tónlistarfólki að ég held að það sé mjög erfitt að velja. Ég hef það samt á tilfinn­ ingunni að það verði kona sem mun syngja næsta þjóðhátíðar­ lag #girlpower!“ Beyonce og mamma fyrirmyndirnar Áttu þér fyrirmynd í tónlistar- heiminum? „Þeir sem þekkja mig vita að það er engin önnur en Beyoncé. Það er ekki hægt að elska hana meira en ég geri. Hún er án gríns fyrirmynd mín í líf­ inu líka og auðvitað mamma mín,“ segir Sylvía brosandi. „Dans og söngur hefur verið mitt áhugamál síðan ég man eftir mér. Ég byrjaði að læra á píanó í Suzuki fjögurra ára gömul. Mamma var búin að skrá mig þegar ég var bara nokk­ urra mánaða. Síðan var ég í söng­ skóla Maríu Bjarkar og síðastliðin ár hef ég verið að læra óperu hjá Alínu Dublik og ég ætla að halda áfram að bæta við mig söngstig­ um hjá henni. Ég hætti að æfa á píanó 12 ára en bý enn þá að nám­ inu. Ég sem stundum á píanó.“ Hvernig semurðu lögin? „Ég sem alltaf söguna fyrst sem ég vil segja, síðan finn ég laglínu og set söguna í texta. Textarnir og sagan skipta mig miklu máli. En ég hef stundum strandað og kem ekki sögunni í texta og þá bara finn ég einhvern til að gera textann við söguna. Ég hef verið að vinna með fólki héðan og þaðan. Ég er búin að vinna með strákunum í Stop Wait Go, Lárusi Arnarsyni, stráknum í September, Mike Er­ ikson frá Svíþjóð og einnig Printz Board frá L.A. Hvað ertu sjálf að hlusta á? „Ég hlusta á flestalla tónlist. Mest á Beyoncé, Erykah Badu, Micheal Jackson, Drake, The Weekend, elska samt að hlusta á eldri tón­ list. Eins og Arethu Franklin, Billy Holiday og Jackson 5.“  heida@365.is Fagna lífinu í stað þess að flækja það Sylvía Erla Melsted er tvítug söngkona af Seltjarnarnesi og eldheitur Beyoncé- aðdáandi. Hún sendi frá sér glænýtt lag í gær, Celebrate, en fyrir höfðu lög hennar Gone og Getaway notið mikilla vinsælda. Sylvía mun troða upp á Þjóðhátíð í ár. Sylvía Erla Melsted sendi frá sér glænýtt lag í gær. hún mun koma fram á Þjóð­ hátíð í ár og hlakkar mikið til. Myndir/Saga Sig „Þó að á móti blási má maður ekki láta það eyðileggja skapið og viðhorf sitt til lífsins, heldur höldum við áfram og þegar við trúum að allt verði betra þá verður allt betra. Við eigum að njóta og lifa og hafa gaman þar til yfir lýkur!” Fáðu Fréttablaðið ókeypis í símann eða spjaldtölvuna. Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum NÝTT OG BETRA APP Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu blaðið hvar og hvenær sem er. 1 5 -0 7 -2 0 1 6 0 5 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 0 3 -3 E E C 1 A 0 3 -3 D B 0 1 A 0 3 -3 C 7 4 1 A 0 3 -3 B 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.