Fréttablaðið - 21.07.2016, Síða 54

Fréttablaðið - 21.07.2016, Síða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Á morgun mun söngkonan Glowie, eða Sara Péturs-dóttir, gefa út tónlistarmynd við lagið No Lie sem hefur ómað á flestum útvarpsstöðvum landsins í allt sumar. Eins og allt annað sem Glowie gerir hefur lagið slegið í gegn en hún heldur upp á það með því að gefa út sitt allra stærsta myndband til þessa. „Það er heilmikil vinna sem er búin að fara í þetta. Ég fékk hugmyndina þegar við vorum að semja lagið. Þetta er algjört drauma- myndband fyrir mig, retróstíll og mjög sumarlegt. Ég vildi sýna minn stíl og hver ég er.“ Saga Sig leikstýrir tónlistarmynd- bandinu en Glowie segir samstarfið hafa gengið vel þar sem þær voru nánast sammála í einu og öllu. „Það var æðislegt að vinna með Sögu. Við vorum sammála um nánast allt. Það sem við erum með svipaðan stíl þá vissi hún hvernig þetta ætti að vera og útkoman er ótrúlega flott. Mynd- bandið er ekki í takt við textann, enda fjallar hann um strák sem er alltaf að ljúga að mér. En í staðinn fyrir að væla um það í myndband- inu og vera væmin vildi ég frekar eiga geðveikan dag með vinkonum mínum og líta frekar út fyrir að vera of „cool“ til að hugsa um einhvern strák.“ Stílíseringin er ansi skemmtileg en um hana sá Stella Björt Berg- mann Gunnarsdóttir. „Meirihlut- inn af fötunum í myndbandinu kom bara beint úr fataskápnum hennar Stellu eða úr Spúútnik. Stíllinn er alveg gjörsamlega retró alla leiðina í gegn og ég fíla það ótrúlega vel. Þetta er „old school“ og töff.“ Það er óhætt að segja að Glowie hafi smalað saman sínu nánasta fólki við gerð myndbands- ins en vinkonur Glowie leika með henni í myndbandinu og kærastinn hennar klippir það. „Það var fáránlega gaman að leika í myndband- inu með bestu vin- konum sínum. Svo skemmir ekki fyrir að vera að fínpússa og klára það með kærastanum.“ Afraksturinn má berja augum á Kexi Hosteli annað kvöld klukkan 21.00 en þá verður myndbandið frumsýnt. Í framhaldinu mun Glo- wie og teymi hennar senda það til Bandaríkjanna á stóru plötufyrir- tækin. „Ég er vongóð fyrir haustinu en ég veit að það mun aldrei neitt gerast nema ég trúi sjálf á það. Ég veit ekki hvort eitthvað gerist núna í ár eða eftir nokkur ár en ég veit að það mun einhvern tímann gerast. Ég hef trú á mér.“ gunnhildur@ frettabladid.is Skiptir öllu að hafa trú á sjálfri sér Glowie gefur út tónlistarmyndband á morgun við lagið No Lie. Með leikstjórn fór Saga Sig. Í haust ætlar Glowie að kynna afrakstur erfiðisins í Bandaríkjunum í von um að koma sér á framfæri þar. Ég er vongóð fyrir hauStinu en Ég veit að það mun aldrei neitt geraSt nema Ég trúi Sjálf á það. Glowie Glowie lék í myndbandinu ásamt bestu vinkonum sínum sem hefur eflaust verið mikil skemmtun. MyND/SAGA SIG Hlutastarf Gæðabakstur / Ömmubakstur auglýsir eftir morgunhressum einstaklingi í helgar-/ hlutastarf við áfyllingar í verslunum. Um er að ræða 2x helgar í mánuði (aðra hverja helgi) með möguleika á fleiri vöktum ef viðkomandi vill meiri vinnu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfssvið: Áfyllingar í verslunum Eftirlit með framstillingum í verslunum Vinnutími er frá ca. 07:00 - 13:00 Hæfniskröfur: • Skrifa og tala íslensku • Bílpróf • Góð skipulagsfærni • Stundvísi, reglusemi og sveigjanleiki • Góð mannleg samskipti • Sjálfstæði í vinnubrögðum • Snyrtimennska • Líkamlega hraust/hraustur Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 26. júlí 2016 á netfangið umsokn@gaedabakstur.is GÓÐIR SUNNUDAGAR Á BYLGJUNNI FÖSTUDAGSVIÐTALIÐ KL. 08:00 10:00 SPRENGISANDUR KL. 10:00 12:00 2 1 . j ú l í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R42 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð 2 1 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 0 E -2 7 1 4 1 A 0 E -2 5 D 8 1 A 0 E -2 4 9 C 1 A 0 E -2 3 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 2 0 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.