Fréttablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 42
KviKmynd
The infiltrator
HHHHH
Leikstjóri: Brad Furman
Handrit: Ellen Brown Furman
Byggð á bók eftir Robert Mazur
Framleiðandi: Brad Furman, Miriam
Segal og Don Sikorski
Aðalleikarar: Bryan Cranston, John
Leguizamo, Juliet Aubrey, Diane
Kruger og Benjamin Bratt.
The Infiltrator er byggð á sönnum
atburðum og segir frá Robert Mazur
nokkrum sem er starfsmaður hjá
tollinum í Bandaríkjunum á 9.
áratugnum og kemst á snoðir um
stórtækt peningaþvætti sem sjálfur
Pablo Escobar stendur á bak við.
Mazur dulbýr sig sem spilltan við-
skiptamann til að komast inn í
innsta hring glæpaveldis Escobars,
en það ber með sér mikla hættu
bæði fyrir starf hans og einkalíf.
Hér er fátt nýtt á ferðinni. Við
höfum séð svipaða sögu oft áður, t.d.
í myndinni Donnie Brasco og hér er
að finna margar helstu klisjurnar
sem finna má í svona myndum. The
Infiltrator mun ekki marka djúp
spor í kvikmyndasögunni og skilur
í raun lítið eftir sig.
Engu að síður tekst The Infiltrator
að vera ágætis afþreying og þótt hún
sé klisjukennd og bjóði upp á lítið
nýtt er hún ekki heimskuleg eða of
augljós. Smá virðing er borin fyrir
vitsmunum áhorfenda og margt
látið liggja milli hluta. Það helsta
sem gerir myndina þó ágætlega
áhorfanlega og á köflum nokkuð
skemmtilega er að sagan er þrátt
fyrir allt lífleg og fjörug, en fyrst og
fremst eru það þó leikararnir sem
halda myndinni uppi.
Bryan Cranston sýndi í sjónvarps-
þáttunum Breaking Bad að þarna
væri á ferðinni stórleikari og í raun
minnir persóna hans hér um margt
á Walter White, (and)hetju Breaking
Bad. Mazur lifir sig ansi mikið inn í
hlutverkið og sýnir á sér myrkar
hliðar, eins og þegar hann niðurlægir
þjón fyrir framan konuna sína til að
halda andliti fyrir illmennunum
(svipaða senu má reyndar líka finna
í Donnie Brasco). John Leguizamo
er einnig magnaður og skemmtilega
ógeðfelldur sem samstarfsmaður
Mazurs. Flestir hér standa sig í raun
mjög vel, valinn maður er í hverju
rúmi og leikararnir setja sterkan
heildarsvip á myndina.
Leikstjórinn Brad Furman er eng-
inn rosa stílisti en tekst þó að láta
myndina líta ágætlega vel út og hún
flæðir yfir höfuð nokkuð vel. Það
er mikið af fallegum skotum og vel
útfærðum atriðum en það hefði samt
verið gaman ef myndin hefði haft
meiri „persónuleika“, svo að segja.
Hún virkar stundum hálf sjónvarps-
leg og vantar aðeins meiri sérstöðu
til að hún geti skarað sérstaklega
fram úr öðrum svipuðum myndum.
The Infiltrator er í stuttu máli sagt
mynd sem tekur litla áhættu og gerir
það sem hún á að gera en lítið meira.
Hún gæti hafa verið djúp hugleiðing
um stöðu og tilgang eiturlyfjastríðs-
ins en í staðinn virkar hún hálf hlut-
laus.
Atli Sigurjónsson
niðursTaða: The Infiltrator er
ágætlega skemmtileg og vel leikin en
hér er ekkert nýtt á ferðinni. Myndin
er lítt framúrskarandi í heildina en
heldur þó athygli manns ágætlega á
meðan hún varir.
The Infiltrator er dæmigerð dópsaga
Myndin er byggð á sönnum atburðum sem hverfast í kringum sjálfan Pablo Escobar.
Ágætis afþreying sem býður upp á lítið nýtt en er þó ekki heimskuleg eða of augljós.
Frumsýningar
Jason BournE
Spennumynd
Aðalhlutverk: Matt Damon,
Tommy Lee Jones, Alicia
Vikander, Vincent Cassel og Julia
Stiles.
Frumsýnd 27. júlí
IMDb 9,7/10
Bad MoMs
Gamanmynd
Aðalhlutverk: Mila Kunis,
Kristen Bell, Kathryn Hahn,
Christina Applegate og Jada
Pinkett Smith.
Frumsýnd 3. ágúst
suicidE squad
Hasarmynd
Aðalhlutverk: Will Smith,
Margot Robbie, Jared Leto,
Joel Kinnaman, Viola Davis,
Jai Courtney, Cara Delevingne,
Adam Beach, Scott Eastwood og
Adewale Akinnuoye-Agbaje.
Frumsýnd 3. ágúst
Í einum af aðalhlutverkum myndarinnar er Bryan Cranston sem er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í Breaking Bad.
2 1 . j ú l í 2 0 1 6 F i m m T u d a G u r30 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
bíó
2
1
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
0
E
-1
D
3
4
1
A
0
E
-1
B
F
8
1
A
0
E
-1
A
B
C
1
A
0
E
-1
9
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
0
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K