Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 23
fólk kynningarblað 2 1 . j ú l í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R Af hverju byrjaðirðu að hjóla? Ég æfði crossfit hjá Crossfit XY um tveggja ára skeið og stöðin sendi lið í WOW Cyclothonið fyrir tveimur árum. Svo tíu dögum fyrir WOW-ið rifbeinsbrotnaði einn liðsmaðurinn og ég ákvað að prófa. Fékk lánaðan „racer“, fór á eina æfingu og svo í cyclo- thonið og elskaði það. Keypti svo racer-inn sem ég fékk lánaðan og hjólaði allt það sumar ásamt því að stunda crossfit. Ég hvíldi svo hjólreiðarnar um veturinn og æfði bara og keppti í crossfit. Síð- astliðið vor fékk ég svo brjósklos og ákvað eftir það að hvíla það að lyfta þyngdum á bakið og einbeita mér að hjólreiðunum. Ég æfði því á æfingahjóli eða „trainer“ síðast- liðinn vetur og kom því vel æfð undan vetri fyrir hjólasumarið í sumar. Hefurðu hjólað erlendis? Já, ég fór til Tenerife í æfingaferð í febrúar og svo hef ég einu sinni farið til Mallorca að hjóla. Það er auðvitað æðislegt að hjóla úti, hitinn fer vel með líkamann og skemmtilegar og krefjandi leiðir í fjöllunum. Ég vann svo hjóla- ferð til Mallorca núna í septem- ber fyrir sigurinn í Kia Gull- hringnum og get ekki beðið eftir því stuði! Þú hefur unnið þrjú stærstu hjóla- mót landsins undanfarið: hvernig ferðu að þessu? Ég æfði sæmilega vel síðastliðinn vetur og er greini- lega að uppskera vel og á réttum tíma. Ég hef í raun ekki æft mikið í sumar, meira bara keppt og jafnað mig þess á milli. Þetta eru allt frekar ólíkar keppnir, Bláalónsþrautin er tveggja tíma fjallahjólakeppni sem er hröð en ekki mjög tæknileg, en ég fékk fjallahjólið mitt bara í fertugsaf- mælisgjöf í maí, svo ég er í raun- inni byrjandi á fjallahjóli. Það virðist henta mér að vinna lengi á háum púls og þessar keppnir eru allar 2-3 klukkutímar. Ég er kannski ekki enn orðin mjög tæknilega flink á fjallahjólinu en langar að læra meiri tækni til að geta brölt meira. Kia Gullhringurinn er skemmtileg götuhjólakeppni á Laugarvatni, 105 km, þar sem konur og karlar mega vinna saman, en götuhjól- reiðar snúast að miklu leyti um samvinnu. Ég elskaði það að hanga með körlunum á 37 km meðalhraða þessa leið og leið vel allan tímann. Vesturgatan, sem einnig var Íslandsmeistaramót í maraþonfjallahjólreiðum var um síðustu helgi á Þingeyri. Þar var hjólaður svokallaður Svalvoga- hringur, 55 km í ægifagurri nátt- úru og ég náði bara að keyra allt í botn allan tímann. Ég sá þar af leiðandi eitthvað lítið af þessari stórbrotnu náttúru og hjólaði því hluta leiðarinnar aftur daginn eftir, mjög rólega, til að njóta. Verður þú vör við aukna þátt- töku kvenna í þessu sporti Já, algjörlega. Enda konur jafnt sem karlar sem betur fer að að finna og uppgötva frelsið og kikkið sem fylgir því að hjóla. Hjólreiðar eru alls konar og það geta allir fundið sína fjöl í þessu sporti. Og mörg frábær hjólafélög og klúbbar með æfingar og samhjól sem henta alls konar hjólurum. Konur hafa finnst mér verið frekar ragar við að skrá sig til keppni, en með auknum margbreytileika hjóla- móta held ég að fleiri konur fari að sjá hvað það er gaman að vera með. Stemningin í kringum mótin er oft aðalatriðið, félagsskapurinn og eins og með Reykjavíkurmara- þonið og öll þessi hlaup má líta á hjólamótin sem skemmtilega við- burði sem gaman er að taka þátt í. Ég hvet allar konur til að hjóla til keppni og skora á sig, á sínum for- sendum. Það er svakalega gaman og gefur manni óendanlegt kikk! Skiptir það miklu máli á hvernig hjóli maður er? Já, það skiptir mjög miklu máli, að minnsta kosti ef þú ert að keppa við sekúnd- urnar og jafnvel sekúndubrotin. Ég er hluti af Team Cube sem hjólar þá á Cube-hjólum. Þau eru þýsk og þrjósk og gæðaleg eftir því! Starfsfólkið í TRI hjóla- verslun, sem selur Cube, hefur sinnt mér vel. Þau taka hjólin í gegn fyrir keppni og gefa góð ráð fyrir „byrjanda“ í sportinu eins og mig. Ég elska hjólin mín og tala oft við þau og syng fyrir þau og það er almennt frábært sam- band okkar á milli. Mig langar svo bara í fleiri hjól, „racer“ og fjallahjól eru eitt, en svo er það „cyclocross“-hjólið, fulldempaða fjallahjólið og „fat bike“ … það er endalaust hægt að bæta við sig hjólum og leika sér, en þetta snýst einmitt fyrst og fremst um að leika sér og hafa gaman! Ég er aldrei frjálsari en á hjólinu. Aldrei frjálSAri en á Hjólinu TRI kynnir Erla Sigurlaug Sigurðardóttir er fertug tveggja barna móðir sem stundar hjólasport af áhuga. Hún vann Bláalónsþrautina, Gullhringinn og Vesturgötuna, þar sem hún varð Íslandsmeistari kvenna í maraþonfjallahjólreiðum. Erla er á Cube-hjóli og er afskaplega ánægð með bæði hjólið og þjónustuna hjá þjónustuaðilunum. „Ég er bara að skemmta mér. Þetta er oft mjög erfitt en mér finnst erfitt bara svo sjúklega gaman!“ Ég hvet allar konur til að hjóla til keppni og skora á sig, á sínum forsendum. Erla Sigurlaug Sigurðardóttir Hér fagnar Erla sigri á Íslandsmeistara- mótinu í maraþonfjallahjólreiðum á Þingeyri. Vertu vinur á Facebook Vertu vinur á Facebook Vertu vinur á FacebookLaugavegi 63 • S: 551 4422 STÓRÚTSALA 40%– 60% AFSLÁTTUR GLÆSILEGIR FRAKKAR OG KÁPUR GERRY WEBER TAIFUN - BETTY BARCLAY GÆÐA DÖMUFATNAÐUR Skoðið laxdal.is Vertu vinur á Facebook 2 1 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 0 E -5 D 6 4 1 A 0 E -5 C 2 8 1 A 0 E -5 A E C 1 A 0 E -5 9 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 2 0 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.