Víkurfréttir - 08.11.1984, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 8. nóvember 1984
VÍKUR-fréttir
VÍKUlt
ptiUt
Útgafandl: VlKUR-fréttir hf.
Rlt»t|órar og ábyrgðarmann:
Emil Páll Jónsson, simi 2677 og Páll Ketilsson, sími 3707
Afgreiöala, rltatjóm og augl.: Hafnargötu 32, II. hæö
Sími 1717 - Pósthólf 125 - 230 Keflavík
Setning og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavlk
ATVINNA
Óskum að ráða nú þegar í eftirtalin störf:
1. Aðstoðarmanneskju við frágang á
prentverki (fullt starf).
2. Aðstoðarmanneskju við frágang á
prentverki (hálft starf).
3. Starfskraft á innskriftarborð. Góð vél-
ritunar- og íslenskukunnátta nauðsyn-
leg. - Vinnutími frá kl. 13-17.
Við leitum eftir stundvísu og áreiðanlegu
starfsfólki.
Góð vinnuaðstaða. - Uppl. aðeins veittar á
staðnum.
GRÁGÁS HF.
Vallargötu 14 - Keflavík
„Við viljum koma á samskiptum
skáta og íþróttafélaga“
Góðir gestir frá Englandi
Á dögunum fékk JC
Grindavík góða gesti frá
Englandi í heimsókn. Heim-
sóknin er upphaf samskipta
þeirra Grindvíkinga við JC
vinafélag frá smábænum
Penistone. Þetta mun vera í
fyrsta skipti sem íslenskt
JC-félag stofnar til slíkra
tengsla við erlent JC-félag,
og lék okkur forvitni á að
vita hvert væri markmið
tengslanna og hvernig þau
væru til komin.
Við brugðum okkur því í
félagsheimili JC-deildar-
innar í Grindavík, sem er til
húsa í gömlu kirkjunni, og
hittum þar fyrir Erling Ein-
arsson, forseta félagsins,
Margréti Gísladóttur, tengil
félagsins, og ensku gest-
ina Sue Wood og hjónin Gill
og Chris Dent, en hann er
forseti JC Penistone.
Penistone er 8000 manna
bær í Suður-Yorkshire,
skammt frá Sheffield og
Leeds. Segja má að bærinn
sé svefnbær, þar sem flestir
íbúanna sækja vinnu í aðra
hvora stórborgina, en á
árum áður var þetta sveita-
Fasteignaþjónusta Suöurnesja
KEFLAVIK:
2ja herb. íbúð við Faxabraut, góðir greiðsluskilmálar .. 780.000
Nýstandsett 2ja herb. íbúð við Kirkjuveg ........... 1.080.000
3ja herb. íbúð við Háteig, aðeins sex íbúðir í húsinu .. 1.500.000
3ja herb. nýl. íbúðir við Heiðarhvamm, verð frá .... 1.400.000
Góð 2ja til 3ja herb. íbúð við Faxabraut ........... 1.150.000
4ra til 5 herb. efri hæð við Miðtún ................ 1.500.000
160 m2 efri hæð við Háaleiti með tvöföldum bílskúr .,. 2.500.000
140 m2 efri hæð við Hátún með bílskúr .............. 1.900,000
Parhús við Suðurgötu, mikið endurnýjað m/nýl. bílskúr 1.900.000
135 m2 raðhús við Greniteig með bílskúr ............ 2.600.000
Viðlagasjóðshús í skiptum fyrir 3ja herb. íbúð við Heiðar-
hvamm eða Heiðarból.
Nýlegt einbýlishús við Háteig. ,,Góð eign“ með tvöföldum
bílskúr. Eignaskipti möguleg ....................... Tilboð
— 5
Fokhelt einbýlishús við Suðurvelli til sölu í skiptum fyrir rað-
hús eða aðra sambærilega eign. Teikningar fyrirliggjandi.
Til leigu eldra einbýlishús með húsgögnum.
NJARÐVÍK:
87 m2 góð íbúð við Hjallaveg ....................... 1.550.000
126 m2 einbýlishús við Kirkjubraut í l-Njarðvík .... 2.400.000
Gott raðhús við Brekkustíg ásamt bílskúr............ 1.800.000
Góð 140 m2 íbúð við Brekkustíg ..................... 1.550.000
Efri hæð og ris við Brekkustíg ásamt bílskúr........ 1.900.000
3ja herb. efri hæð við Klapparstíg. Möguleiki að taka bif-
reið upp í útborgun ................................ 1.200.000
Fasteignaþjónusta Suðurnesja
Hafnargötu 31, II. hæö - Keflavík - Simi 3441, 3722
Gestir og gestgjafar. F.v.: Chris, Sue, Margrét, Erlingur,
Gill og Gunnar.
þorp og jafnframt nokkur
námagröftur í nágrenninu.
Hvernig eru þessi sam-
skipti til komin?
„Eitt af markmiðum JC-
hreyfingarinnar er að stuðla
að bættum kynnum og
skilningi þjóða í milli, og
enska landssambandið
hvatti okkur til að stofna til
tengsla við erlent JC-félag.
Við ákváðum að leita til (s-
lands af því að það er ekki of
langt að fara, en samt ólíkt
Englandi", svaraði Chris.
,,JC Grindavík hafði síðan
samband við okkur og
formlega hófust samskiptin
fyrir ári síðan. Við reyndum
að auglýsa kynnin eins og
hægt var, m.a. í útvarpi BBC
Leeds og bæjarblaðinu The
Barnsley Cronicle, og stuðl-
uðum að (slandskynningu
án þess raunarað vita mikið
um staðinn. Englendingar
þekkja lítið til (slands nema
í gegnu, fiskafurðir og
raunartók lcelandic Waters
verksmiðjan þátt í kynning-
unni og Fish n’Chips veit-
ingastaðurinn í bænum".
Teljið þið að þetta hafi
borið árangur?
„Já, það er enginn vafi á
því. Ýmis félög hafa lýst
áhuga sínum á að taka þátt í
þessu. T.d. fór Skátafélagið
fram á það að við reyndum
að koma þeim í samband
við skátafélag á Suðurnesj-
um, þeir hafa áhuga á að
sækja skátamót á (slandi og
einnig að fá gesti héðan.
Svo má nefna frjálsíþrótta-
félagið í Penistone, það
hefur nokkuð gott hlaupa-
lið og vill koma á samskipt-
um við sambærileg félög á
íslandi með keppni fyrir
augum að sjálfsögðu".
Hérna skaut Margrét Gísla-
dóttir því inn í, að viðkom-
andi félög, Heiðabúar eða
annað skátafélag og íþrótta-
félögin á Suðurnesjum,
gætu haft samband við sig
ef þau hefðu áhuga á sam-
skiptum við Englending-
ana.
Hver er raunveruleg vitn-
eskja Englendinga um fs-
land?
„Hún er afar lítil. Við viss-
um að hér eru eldfjöll og
hitaveita sem nýtir jarð-
varma, að hér væru fiski-
menn, og að Grindavík væri
sjávarþorp. Annað var það
nú eiginlega ekki“, sagði
Chris.
„Almenningur heldur að
(sland líkist helst Græn-
landi og ýmsir vinir okkar
buðu okkur bæði peysur og
skíðagalla, þegar þeirfréttu
að við værum á leiðtil þessa
„kalda" lands“, bætti Gill
Dent við.
„Það er líka erfitt að afla
sér upplýsinga um land og
þjóð. Jafnvel stórar ferða-
skrifstofur eins og Cooks
og Thompson, sem ís-
lensku flugfélögin benda
fólki á, virðast ekki hafa
neinar haldbærar upplýs-
ingar til ferðamanna”.
Undirrituðum varð nú
hugsað til þeirra hrakninga
sem sumir erlendir ferða-
menn hafa lent í á fjallveg-
um og í straumvötnum og
oft hafa leitt til hræðilegra
óhappa. Svo virðist sem is-
lensk ferðamálayfirvöld
hafi brýnt verk að vinna.
Hvert er svo næsta
skrefið i þessu?
„Við förum heim klyfjuð
af upplýsingum og með tugi
eða hundruð skyggni-
(slides) mynda, og munum
taka til við að kynna land og
þjóð fyrir öðrum JC-félög-
um heima. Auk þess sem
við munum heimsækja
skóla eftir fremsta megni,
Þannig getum við lagt okkar
að mörkum til bættra kynna
þjóðanna tveggja", sagði
Chris Dent.
Erlingur Einarsson sagði
að JC Grindavík hefði mik-
inn áhuga á að þróa tengsl-
in áfram og einnig væri
verulegur ahugi félags-
manna á að fara á Evrópu-
mót JC sem verður haldið í
Sheffield á næsta ári.
Að lokum: Hvað finnst
ykkur svo um land og þjóð?
(Dæmigerð spurning ís-
lensks blaðamanns, svo
notalegt að láta klóra sér
bak við eyrað).
„Dramatic, fantastic . . .
Gullfoss er stærsti foss sem
við höfum séð, goshverinn
var frábær (Strokkur) og
hreina loftið, maður minn,
skyggnið, útsýnið og mót-
tökurnar, maturinn, og svo
gaman og fróðlegt . . . “
ehe.