Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.01.1986, Síða 18

Víkurfréttir - 30.01.1986, Síða 18
18 Fimmtudagur 30. janúar 1986 VÍKUR-fréttir Orðsending frá LANGBEST Stella náði bindandi kosningu Við liöfum átt við töluvcrða byrjunar- örðugleika aðstríða Drukknaði í Bláa lóninu Þorvaldur Emil Valdi- marsson, 31 árs Keflvík- ingur, drukknaði í Bláa lón- inu í Svartsengi síðdegis á miðvikudag í síðustu viku. Hann var ókvæntur og barnlaus og átti lögheimili að Vallargötu 20, Kefla- vík. Þorvaldur heitinn fór þennan dag ásamt öðrum manni til að synda í Bláa lóninu. Tóku þeir leigubíl frá Keflavík. Fór hann fyrr út í og hvarf í þokuna, sem liggur ávallt yfir lóninu. Fé- laga Þorvaldar fór fljótlega að lengja eftir honum og fann hann ekki við leit. Gerði hann þá lögreglunni viðvart, og fann lögreglan í Grindavík Þorvald, og var hann þá látinn. Þetta er þriðji maðurinn sem lætur lífið í Bláa lón- inu á skömmum tíma. - epj- frá opnun veitinga- staðarins, og viljum fá að nota þetta tækifæri og biðja viðskiptavini okkar afsökunar á þeirri miklu bið, sem ver- ið hefur við af- greiðslu á pizzum. En nú höfum við Ný götu- nöfn í Njarðvík Bygginganefnd Njarð- víkur samþykkti nýlega tvö ný götunöfn í bæjarfélag- Á stjórnafundi Hitaveitu Suðurnesja sem haldinn var sl. föstudag, var m.a. rætt um þá slysahættu sem virð- ist vera vð Bláa lónið í Svartsengi, en þar hafa orðið þrjú dauðaslys. Að sögn Ingólfs Aðalsteins- sonar gera menn sér grein fyrir því að þarna verður að koma upp aðstöðu sem allir geta vel við unað. breytt um vinnuað- ferð og biðin eftir pizzum, pítum og lnamborgurum því orðin mun minni. Er það von okkar að Langbest geti nú farið að standa undir nafni. Verið ætíð vel- komin. F.h. Langbest Axel Jónsson. inu. Eru nöfn þessi á þver- götum er tengjast Fitja- braut. Hér eftir heitir þvergat- an sunnan Steypustöðvar Innrifit, og þvergata sunn- an Fitjabrautar 32 heitir Ytrifit. - epj. Eru því í bígerð viðræður varðandi samstarfsaðila að baðhúsi þarna, en um leið yrði komið á vakt við lónið og reynt á annan hátt að koma í veg fyrir að þar skapist hættuástand. - epj. 27 árekstrar frá áramótum Lögreglunni í Keflavík bárust 27 tilkynningar um umferðaróhöpp í umdæmi sínu fyrstu 25 daga þessa árs. Engin teljandi slys urðu í óhöppum þessum. I síðustu viku tók lög- reglan þrjá ökumenn grun- aða um ölvun við akstur í umdæminu, en það spann- ar yfir Keflavík, Njarðvík og Gullbringusýslu. epj. Þjófnaður úr fiskverkunar- húsi Sl. fimmtudag var farið inn á skrifstofu í fiskverk- unarhúsi Happasæls að Básvegi 9 í Keflavík. Þaðan var stolið m.a. verkfæra- kistu sem var full af ýmis konar verkfærum, CB-tal- stöð og MBO Alpa 900 reiknitölvu. Er málið nú í rannsókn. - epj. í frétt um niðurstöður í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kefíavik varð sú villa að sagt var að bæði Kristinn Guðmundsson og Stella Baldvinsdóttir hefðu lent í 4. sæti. Hið rétta er að Kristinn lenti í 4. en Stella í 5. sæti. Þá kom einnig fram að fyrstu fjögur sætin hefðu hlotið bindandi kosningu. Við talningu síðar um nóttina, eftir að sú frétt hafði farið í vinnslu, kom hins vegar í ljós að Stella náði einnig bindandi kosningu í 5. sæti listans fyrir næstu bæjarstjórnar- kosningar. Leiðréttist þetta hér með og eru viðkomandi beðnir velvirðingar á mistökum þessum. - epj. Vinnuslys við Slökkvi- stöðina Skömmu fyrir hádegi á þriðjudag í síðustu viku varð vinnuslys við Slökkvi- stöðina í Keflavík. Trésmið- ur sem var að vinna uppi í stiga féll niður, er stiginn rann undan honum. Var maðurinn fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús- ið, en reyndist ekki alvar- lega slasaður og fékk að fara heim eftir nokkurra daga legu. - epj. Smáauglýsingar Ibúð óskast Óska eftir 3-4ra herb. íbúð til leigu i 3 mánuði, frá 1. mars. Uppl. í síma 4181. Til sölu Silver-Cross barnavagn með stálbotni, kr. 8.500. Uppl. í síma 6550, Vogum, eftir kl. 19. Til sölu Sinclair Spectrum tölva. Uppl. í síma 1721. Herbergi óskast Nemandi við Fjölbrauta- skóla Suðurnesja bráðvant- ar litla íbúð eða herbergi til vors. Uppl. áskrifstofu F.S., sími 3100.______________ Dagmamma óskar eftir börnum. Hefur leyfi. Upplýsingar í síma 4792. Skíðaskór í plastpoka voru teknir í misgripum í hópferðabíl frá Steindóri 18/1. Vinsamlegast hafið samband í síma 1074. Til sölu eldavél, ísskápur og frsyti- kista, lítið notað. Uppl. í síma 5-4452. Til leigu 3ja herb. íbúð í Njarðvík, fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 4839. Til leigu stór 3ja herb. íbúð. Laus strax. Uppl. ísíma2746eftir kl. 19. NAUÐUNGARUPPBOÐ sem augl. hefur verið í Lögb.bl. á fasteigninni Hraunbraut2 í Grindavik, þingl. eign Ásdisar Klöru Enoksdóttur, ferfram á eigninni sjálfri að kröfu bæjarsjóðs Grindavíkur, þriðju- daginn 4.2. 1986 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Grindavík Keflavík - Skrifstofustarf Laust er starf á skrifstofu embættisins viö vélritun og fleira. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt launakerfi BSRB. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf óskastsendar undir- rituðum fyrir 10. febrúar. Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvík og Grindavík Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu Jón Eysteinsson NAUÐUNGARUPPBOÐ sem augl. hefur verið í Lögb.bl. á fasteigninni Efstahrauni 8 í Grindavik, þingl. eign Erlings Omars Erlingssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl., þriðjudaginn 4.2. 1986 kl. 14.15. Bæjarfógetinn i Grindavik NAUÐUNGARUPPBOÐ sem augl. hefur verið i Lögb.bl. áfasteigninni Blómsturvell- ir 2 í Grindavík, þingl. eign Hilmars Knútssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., þriðjudaginn 4.2. 1986 kl. 15.15. Bæjarfógetlnn í Grindavik NAUÐUNGARUPPBOÐ sem augl. hefur verið í Lögb.bl. á fasteigninni Miðgaröur 2i Grindavík, þingl. eign Netagerðarinnar Möskva sf., ferfram á eigninni sjálfri að kröfu Iðnlánasjóðs, Byggöasjóðs, inn- heimtumanns ríkissjóðs, Hákonar H. Kristjónssonar hdl., bæjarsjóðs Grindavíkur, Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., þriðjudaginn 4.2.1986 kl. ' Bæjarfógetinn í Grindavík NAUÐUNGARUPPBOÐ annað og síðasta á fasteigninni Garður í Grindavík, þingl. eign Þorleifs Hallgrímssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Búnaðarbanka íslands og Hafsteins' Sigurðssonar hrl., þriðjudaginn 4.2. 1986 kl. 16.15. Bæjarfógetinn i Grindavik NAUÐUNGARUPPBOÐ sem augl. hefur verið í Lögb.bl. á fasteigninni Hlíðargötu 2 í Sandgerði, þingl. eign Þóru Guðjónsdóttur, ferframáeign- inni sjálfri að kröfu Árna Einarssonar hdl., miðvikudaginn 5.2. 1986 kl. 10.15. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu Afgreiðsla blaðsins er flutt að Vallargötu 14, Keflavík Hitaveita Suðurnesja: Vakt sett upp við Bláa lónið

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.