Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.1988, Síða 8

Víkurfréttir - 16.06.1988, Síða 8
mun 8 Fimmtudagur 16. júní 1988 yuuu molar Umsjón: Emil Páll Ingólfur kominn undir Önnu Nýlega greindum við frá því í þessum dálkum að Anna Margrét Guðmunds- dóttir, bæjarfulltrúi krata, væri orðin undirmanneskja Ingólfs Falssonar, bæjarfull- trúa íhaldsins, þar sem hún væri orðin starfsmaður hans á skrifstofu Aðalstöðvarinn- ar. Nú hafa málin þróast svo að Anna er orðin forseti bæj- arstjórnar og er því þar með komin yfir Ingólf, eða svo segja menn.... Loft í rútunni Færeyjaför á vegum Þing- eyingafélags Suðurnesja stendur nú yfir. Fór hópur- inn með rútu frá Steindóri austur og að sjálfsögðu var óskað eftir því að bílstjórinn væri einnig ættaður úr Þing- eyjasýslu. Má því segja að mikið hafi veriðaf Þingeysku lofti í þeirri rútu. Drífa þakkaði góð störf A síðasta fundi bæjar- stjórnar Keflavíkur sá Drífa Sigfúsdóttir ástæðu til að þakka þeim slökkviliðs- mönnum er nú hafa látið af störfum vegna skipulags- breytinga hjá BS, sérstaklega l'yrir góð störf. Enginn hinna bæjarfulltrúanna átta sá hins vegar ástæðu til að taka und- ir þetta hjá Drífu. Ekki þakkað fyrir Við kjör nýs bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar í Kellavik risu margir bæjar- fulltrúar upp og buðu menn velkomna í nýjar stöður. En athygli vakti að enginn bæj- arfulltrúi sá ástæðu til að þakka fráfarandi bæjar- stjóra fyrir vel unnin störf, að vísu var hann fjarstaddur, en honum hefði mátt þakka engu að síður. Þá sá Guð- finnur Sigurvinsson, verð- andi bæjarstjóri, ástæðu til að þakka hlý orð í sinn garð frá öllum ncma Drífu Sigfús- dóttur, á hana minntist hann ekki. Eftir fundinn benti Drífa á þetta og sagði þetta væri dænii um hina mestu karlrembu. Frítt inn og aðsóknin jókst um 200% Tilraun veitingastaðarins Glaumbergs siðastliðið föstudagskvöld, að hafa frítt inn i húsið frá kl. 23 til 24, tókst mjög vel. Vel á þriðja hundrað manns mættu á þessum eina klukkutíma en alls urðu gestirnir rétt tæplega þrjú hundruð þetta kvöld. Það er þrefalt lleiri en undanfarna föstudaga. Að- sóknin á föstudögum, allt frá því í haust, hefur verið frá 70 til 120 manns að meðaltali, og hefur farið minnkandi. Munu forráðamenn Glaum- bergs vera að huga að því að hafa einnig svona „frían klukkutíma" á laugardög- um... Engan kana Ekki eru margir hrifnir af aukinni aðsókn varnarliðs- manna í danshús Suður- nesjamanna, Glaumbergið, undanfarin ár, enda hefur ýmsum „leiðinlegum" tilfell- um, þar sem varnarliðsmenn koma við sögu, fjölgað. Kannski hefur það orðið til þess að forráðamenn Glaumbergs hafa nú lokað á lægra setta varnarliðsmenn, þannig að aðeins þeir, sem eru háttsettir og þurfa ekki útivistarleyfi, fá nú aðgang að húsinu. Ekki er að efa að margir munu fagna þessari ákvörðun... Eitt lítið err Það er oft furðulegt hvað einn lítill stafur getur spilað stórt hlutverk í setningum. Það fengu þeir Sandkorns- menn hjá DV að finna á dög- unum, þegar þeir gerðu grín að frétt héðan úr blaðinu. Þá varð þeim á að tala um Hafn- arhrepp í stað Hafnahrepps. Sá munur er hér á, að fyrir utan þetta litla r, þá er Hafn- arhreppur í Hornafirði en Hafnahreppur á Reykjanesi. Vill festa Frekjunafnið í fundargerð umferðar- nefnda Keflavíkur og Njarð- víkur var nýlega greint frá „Frekjunni," sem er götu- spottinn frá Samkaup að Flugvallarvegi. Ingólfur Falsson gat þess er fundar- gerð þessi kom fyrir bæjar- stjórn Keflavíkur að réttast væri að skíra götuna þessu nafni formlega. Aðrirsem til máls tóku um málið lögðu til að gata þessi héti Njarðvík- urfrekjan, eins og hún var raunar skírð í frægu blaða- máli milli bæjarstjóra Njarð- víkur, sem þá var, og rit- stjóra Víkurfrétta. Nýr matseðill ÁLANGBEST MEÐAL NÝRRA RÉTTA ★ Gratineruð ýsuflök með bearnaise og rækjum ★ Barbicue hamborgari ★ Gratineruð skinkubrauðsneið m/ ananas og aspas UM HELGINA: ★ Lambasneiðar „Country Style“ ★ TACOS Hafnargötu 62, sími 14777 orðvar_________ TIL FÁNANS Rís þú, unga íslands merki, upp með þúsund radda brag. Tengdu í oss að einu verki anda, kraft og hjartalag. Rís þú, Islands stóri sterki stofn með nýjan frægðardag. Hvort skal nokkur banna og bjóða börnum frjálsum þessa lands og til vorra ættarslóða augum lita ræningjans? Fvlkjum oss i flokki þjóða. Fram. að lögum guðs og manns. Gætum bólmans. VoR valur víðskyggn yfir storð og hlé, Enginn fjörður, cnginn dalur auga hauksins gleymdur sé. Vakið, vakið, lirund og halur, heilög geymið Islands vé. Storma og ánuuð stóðst vor andi stöðugur sem hamraberg. Breytinganna straum hann standi sterkur, nýr á gömlum merg. Heimur skal hér líta i landi lifna risa fyrir dverg. Skín þú fáni, eynni yfir eins og mjöll i fjallahlíð. Fangamerkið fast þú skrifir fólks í hjartað ár og síð. Munist, hvar scm landinn lifir, litir þinir alla tíð. Hvert eitt landsins fley, sem flytur, fáni vor, þig beri hátt. Hvert þess barn, sem Ijósið lítur lífgar vonir, sem þú átt. Hvert þess líf, sem þvcrr og þrýtur, þinum hjúp þú vefja rnátt. Meðan sumar sólir bræða svellin vetra um engi og tún. Skal vor ást til island Skal vor ást til íslands glæða afl vort undir krossins rún, djúp sem blámi himinhæða, hrein sem jökultindsins brún. (Einar Ben) Svo fallega mælti Einar Bcncdiktsson fyrir nokkrum áratugum. Hvert einasta orð í þessu snilldarkvæði er í fullu gildi enn í dag og verður vænt- anlega um ókomna framtíð. Virðing okkar allra fyrir íslenska þjóðfánanum og þjóðsöngnum skal vera einlæg og skilyrðislaus. „Enginn má óvirða þjóðfánann, hvorki í orði né verki,“ segir í lögum um fánann. „Þjóðsöngurinn er eign allrar þjóðarinnar. Hann skal ekki flytja eða birta í annarri ntynd, en liinni upprunalegu gerð,“ segir í lögum um þjóðsönginn. Full ástæða er til að minna foreldra og skólayfirvöld á mikilvægi þess að börnin fái staðgóða fræðslu um gildi fánans og þjóðsöngsins. Eins að þau læri ung að sýna hvoru- tveggju tilhlýðilega virðingu i orði og nthöfnum. Nemendur úr barnaskóla einum úti á landi minnast enn með lotn- ingu stundarinnar, þó tæp hálf öld sé liðin, þegar sýslumað- urinn sjálfur í fullum skrúða, borðalagður mcð embættis- húfuna, gekk inn í skólastof- una og lagði íslenska fánann, samanbrotinn, virðulega á kcnnarapúltið. Sú kennslu- stund markaði ævilöng spor í barnssálina. Stjórnvöld ættu hið bráðasta að beita sér fyrir því að íslenski fáninn verði hafður uppi í öllum opinbcr- um skrifstofum, öllum skóla- stofum og í öllum kirkjum landsins. Lifi íslenska lýð- veldið. Ræstingar Óskum eftir að ráða fólk til ræstinga. Vinnutími eftir kl. 22. NONNI & BUBBI Keflavík «Ritari óskast Ritari óskast á skrifstofu F.S. frá 1. ágúst n.k. Nánari upplýsingar veitir undirrit- aður. Umsóknir berist fyrir 1. júlí n.k. Skólameistari PLONTUSALA DRANGAVÖLLUM 3 KEFLAVÍK Fjölbreytt úrval af garðplöntum. Tré, runnar og limgerði frá Skógrækt ríkisins. Blóm, rósir og kvistir frá Grímsstöðum í Hveragerði. Lífrænn áburður. Vikur og blómaker. Opið virka daga frá kl. 13-22, laugar- daga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 13-17. ATH: Sama verð og í Reykjavík

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.