Víkurfréttir - 16.06.1988, Side 17
V/KUR
jtíttu
Fimmtudagur 16. júní 1988 17
„Hótel af annarri tegund
úú
- segir Steinþór Júlíusson, hótelstjóri í FLUG HÖTEL,
sem opnar næsta laugardag
Það þarf ekki að fara mörg
ár aftur í tímann til að rifja
upp það ástand, sem var í
Keflavík og Njarðvík fyrir
fólk er leitaði gistingar. Síð-
an hafa komið tvö minnihátt-
ar hótel, auk þess sem eitt er
við Bláa lónið. Nú um helgina
opnar enn eitt hótelið. Þetta
hótel, sem nefnt hefur verið
Flug hótel er langstærst og í
raun allt annað dæmi en hin
fyrri.
Formleg opnun verður á
laugardag en þá gera menn
sér vonir um að allt verði til-
búið og að búið verði að fá öll
tilskilin leyfi. Verði þau kom-
in opnar veitingaþjónustan og
barinn um leið. Er þegar búið
að bóka inn fólk til gistingar
þann 18., þ.e. á laugardag, og
þann 22. kemur fyrsti hópur-
inn en það eru gestir frá vina-
bæjum Keflavíkur á hinum
Norðurlöndunum vegna vina-
bæjamóts, sem hér verður
haldið.
Flug hótel er rekið af
Steinþóri Júlíussyni og fjöl-
skyldu hans en eigandi húss-
ins eru Byggipgaverktakar
Keflavíkur h.f. Á hótelinu eru
39 tveggja manna herbergi og
þrjár svítur. Geta því alls 84
gist hótelið í einu.
Þó mikið hafi verið að gera
í síðustu viku hjá Steinþóri,
vegna opnunarinnar, tókst
okkur að króa hann af til við-
tals um hótelið, það sem
framundan er, nafngiftina og
fleira sem forvitnilegt getur
talist. Fyrsta spurningin, sem
lögð var fyrir Steinþór, var
um það hvernig gengið hefði
að bóka fólk til gistingar.
„Það er ekki fullbókað en
eftir að ég fór að auglýsa, sem
að vísu var seint, fóru að ber-
ast bókanir. Ég hefði þurft að
vera kominn inn í dæmið fyrir
ári síðan. Hópar sem koma er-
fendis frá eru bókaðir með
margra mánaða fyrirvara, en
þá var ég ekki kominn inn.
Á þeim tíma var ekkert far-
ið að huga að því að selja hótel-
ið. Byggingaframkvæmdir
voru aðeins hafnar og verið var
að leita að einhverjum til að
annast reksturinn. Bygginga-
verktakar Keflavíkur auglýstu
þá eftir rekstraraðilum og sótt-
um við Axel Jónsson um þetta.
Síðan breyttust málin hjá Axel
og um tíma var ég búinn að
gefa þetta upp á bátinn. En eft-
ir að Axel seldi Glóðina kann-
aði ég hvort möguleiki væri að
fá þetta á leigu og í framhaldi
af því náðust samningar.“
-Þú ert þá rekstraraðilinn?
„Já, ég er með hótelið á leigu
og endurleigi Kristni á Glóð-
inni veitingaþjónustuna. Ég er
þeirrar skoðunar að þó sam-
keppni sé ágæt, ersamkeppnin
rosalega mikil og að fara að
setja upp 1. flokks veitinga-
þjónustu hinum megin við
hornið á móti Glóðinni, hefði
kannski eingöngu orðið til þess
að drepa báða. Þó hótelgest-
irnir verði vafalaust uppistaða
matargesta hjá veitingaþjón-
ustunni verður það bara við-
bót við þann markað sem nú
er. Sama ef 84 koma og vilja
fara út að borða.
Aftur á móti þegar lítið er að
gera, t.d. á veturna, eru allir að
bítast um sömu matargestina,
þ.e. Keflvíkinga. Þetta er því
erfiður rekstur, bæði varðandi
veitingasölu og hótelrekstur.
Þau hótel sem fyrir eru hafa
nærri því fullnægt þeirri þörf
sem hefur a.m.k. verið sýnileg.
Vonast ég þó eftir aukningu og
að fleiri komi. Enda hefur
aukningin í gistingu verið frá
engum, fyrir nokkrum árum,
og upp í 70-80, sem eru hér á
svæðinu að jafnaði í gistingu.
Varðandi þetta nýja hótel
held ég að það sé alveg óhætt
að segja að það er af nokkuð
annarri tegund en þau sem
fyrir eru. Vonandi tekst að
halda uppi 1. flokks þjónustu,
sem öll aðstaða býður upp á.
Gæti því verið að gestir, sem
annars færu inn í Reykjavík á
þessi 1. flokks hótel sem þar
eru, myndu frekar staldra við
hér.“
-Ertu þá með eitthvert sam-
komulag við flugfélögin eða
ferðaskrifstofurnar um að þeir
beini fólki hingað til gistingar?
„Nei, ég er ekki með sam-
komulag við þessa aðila enda
held ég að það tíðkist ekki. Hitt
er annað mál að ég er í sam-
bandi við alla þessa aðila og þá
líka erlendis, til að reyna að fá
ferðamenn til að stoppa hérna.
Bæði ég og önnur þau hótel
sem hér eru, erum þó aðallega
að reyna að ná til þess fólks
sem er á förum erlendis og fá
það til að stoppa hér eina til
tvær nætur áður en það fer út.
Það er mikið sniðugra fyrir
fólk sem kemur frá Akureyri
t.d. kl. 5 að deginum til, að fara
þá inn á hótel hér, fá sér hér að
borða og þurfa síðan ekki að
vakna fyrr en kl. 6 í stað þess
að vakna kl. 4 í Reykjavík.
Þess vegna leggjum við nokk-
uð á okkur til að fá þetta fólk
og bjóðum því jafnvel keyrslu
upp eftir að morgni og þess
vegna alveg eins að ná í það til
Reykjavíkur.
Þetta fólk getur því jafnvel
byrjað fríið fyrr og tekið eina
nótt hérna áður en það fer út.
Það er þessi sérhæfði markað-
ur sem við stílum inn á, en að
öðru leyti verður hótelið að
stíla inn á að veita öllum ferða-
mönnum þjónustu."
-En síðan bjóðið þið líka upp
á ráðstefnusal?
„Já, á hótelinu er ráðstefnu-
salur sem auðvelt er að koma
fjörutíu manns í sæti í og jafn-
vel fleirum. Auk þess erum við
í samvinnu við Glóðina og þar
er ágætis salur. Sjálfsagt mun-
um við allir hér á svæðinu
reyna að fá hingað ráðstefnur
yfir vetrarmánuðina og jafnvel
skipta þessu á milli okkar, þó
ekkert formlegt samkomulag
sé um það. Slíkt yrði til hags-
bóta, bæði fyrir okkur og við-
skiptavinina.
Það er skiljanlegt að fólki
fínnist að nú sé komið hér allt
of mikið framboð gistirýmis og
því vil ég benda á að þetta er
svolítið öðruvísi hótel. Eins má
benda á að ákvörðun um bygg-
ingu þessa hótels var tekin fyr-
ir all löngu, áður en hin hótelin
komu inn í myndina.“
-Þú ert þá bjartsýnn á að til sé
einhver óplægður akur í þessum
efnum?
„Já, ég er bjartsýnn á það.
Finnst mér það eiga að vera
aðal keppikefli okkar hérna að
ná hluta af þeirri köku sem
fyrir er, því oft og iðulega eru
hótel í Reykjavík yfirbókuðog
markaðurinn því stærri en
hægt er að sinna. Þá er ég þeirr-
ar skoðunar að Suðurnesin eigi
eftir að verða vaxtarbroddur
ferðamennskunnar. Þetta
svæði er ókannað af Islending-
um og hér er fjölfarnasta
ferðamannaleið landsins.“
-Verður ráðinn hótelstjóri
eða gegnir þú því embætti?
„Til að byrja með verður
ekki ráðinn sérstakur hótel-
stjóri. Reynt verður að fá gott
fólk í þau störfsem égþarfáað
halda. Skólafólkið hefur veitt
mér góða hjálp í þessum efnum
og vona ég að það fólk, sem ég
hef, sé hæft í þessi störf. Mun
ég reyna að halda utan um
þetta, enda fyrst og fremst
mitt fjárhagsdæmi."
-Er þetta þá ekki mikið happ-
drætti?
„Auðvitað er þetta happ-
drætti. Ég reikna með að þurfa
á milli 50 og 60% nýtingu svo
þetta beri sig, þ.e. minn rekst-
ur, en vonast til að hann geti
orðið talsvert betri. Þetta er
ekkert sambærilegt dæmi við
þau hótel, sem nú ganga hérna
vegna þess aðfjármagnskostn-
aðurinn á þessu hóteli er svo
mikið minni og ég ber engan
hlut af honum, greiði aðeins
leigu. Byggingaverktakar
leggja fram allt annað en sjálf
húsgögnin og það sem snýr
beint að rekstrinum, það sé ég
um.“
-Hvað telst þetta margra
stjörnu hótel?
„Hér á landi er engin opin-
ber stjörnueinkunnagjöf til.
Verðið er það sama og er á Hó-
tel Oðinsvé, sem er svona mitt
á milli bestu hótelanna og
þeirra sem eru ágæt en ódýr-
ari.“
-Verður þá þjónusta og gæði í
svipuðu hlutfalli?
„Þetta er miklu glæsilegra
hótel, jafn glæsilegt og þau
bestu á landinu hvað aðbúnað
gesta varðar. Síðan kemur
gufubað o.fl. í kjallarann en að
vísu fer það eftir aðsókninni
hversu fljótt sú þjónusta kem-
ur.“
-En hvað með nafnið, Flug
hótel?
„Ég veit að þetta nafn fellur
ekki mjög vel í Keflvíkinga
vegna þess að þegar maður er
Keflvíkingur, ég tala nú ekki
um eftir að hafa verið svona í
bæjarmálum eins og ég, þá
vildi maður kannski tengja
þetta næstu hundaþúfu. Eftir
að ég fór að íhuga þetta og leita
fyrir mér fannst mér að ég yrði
að 'tengja þetta eitthvað þeim
markaði, sem ég stíla inn á.
Þetta er flugvallarhótel, air-
port hotel. Það skilja útlend-
ingar. Þeir vita að þetta er ná-
lægt flugvelli, þeir þurfa ekki
að fara langar leiðir til að kom-
ast í gistingu við flugvöllinn.
Þeir Islendingar, sem koma til
með að gista hér, eru fyrst og
fremst útan af landi. Það er
ekkert sem gefur þeim betrí
hugmynd um hvar hótelið er
heldur en þetta nafn og við
Keflvíkingar og Suðurnesja-
menn erum alltaf að tengjast
þessu flugi meira. Þetta er allt-
af að verða stærri þáttur í okk-
ar tilveru og atvinnumálum.
Er það hlutur sem gerst hefur
án þess að við höfum stjórnað
því.“
-Þú telur þá að nafnið auglýsi
sig sjálft á þessum markaði?
„Já, mér finnst það og það
var ákveðið þannig að Bygg-
ingaverktakar tóku ákvörðun í
samráði við rekstraraðila.
Kom ég með þessa hugmynd
og samþykktu þeir hana og því
verður þetta nafnið meðan ég
er með það.“
Steinþór Júlíusson lítur yfir teikningar af hinu nýja hóteli. Þegar myndin var tekin voru tíu dagar í
formlega opnun, sem á að vera nú á laugardag. Ljósm.: epj.