Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.06.1988, Page 7

Víkurfréttir - 30.06.1988, Page 7
\)iKun jtUUt 15 ára Keflvíkingur: Veiddi stærsta lax sumarsins Fimmtán ára gamall Kefl- víkingur, Kristinn Agúst Ing- ólfsson, veiddi um síðustu helgi stærsta laxinn sem veiðst hefur á þessu sumri. Var sá lax 24 pund. Veiðistaðurinn var í Hvítá í Arnessýslu, sem er veiðiá or- lofsheimilis Vísis, félags skip- stjórnarmanna á Suðurnesj- um, sem staðsett er á jörðinni Hallanda. Að auki veiddi Kristinn Agúst tvo 15 punda laxa um helgina. Faðir hans, Ingólfur Falsson, veiddi einn 15 punda og finnskur blaða- kóngur, sem var á vinabæja- mótinu í Keflavík, fékk að renna með þeim félögum og fékk einn 22ja punda. Má því með sanni segja að stórir fiskar hafi veiðst í Hvítá þessa helgi. Kristinn Ágúst Ingólfsson með þann stærsta sem komið hefur á stöng þetta sumarið, 24 pund. Ljósm.: hbb. Tvö innbrotog tvær inn- brotstilraunir Brotist var inn á tveimur stöðum í Keflavík í síðustu viku og gerð var tilraun til að brjótast inn á tveimur stöðum til viðbótar en án árangurs. A miðvikudagsnótt var brotist inn í verslunina Stapafell og gerð tilraun til að komast inn í peninga- skáp en það tókst þó ekki. Er skápurinn mikið skemmdur, en auk þess að skemma skápinn var ýms- um varningi, að verðmæti 30-40 þúsund krónur, stol- ið á staðnum. Þá var á sunnudagsnótt brotist inn í veiðarfæra- geymslu Hraðfrystihúss Keflavíkur og stolið þaðan talstöð, ferðarakvél og litlu seguibandstæki. Gerð var tilraun til inn- brots í Brautarnesti á föstudagskvöld en án árangurs. Nóttina eftir var síðan gerð tilraun til inn- brots í Klippótek en það fór á sömu Ieið, að sögn John Hill, lögregiufulltrúa. Fimmtudagur 30. júní 1988 7 062202 //-///'/ SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK Ómissandi ferðafélagi. OI196B esident eyris- þjónusta n Afgreiðum gjaldeyri samdægurs Seðlar í öllum helstu myntum Ferðatékkar í 6 myntum, dollurum, pundum, þýkum inörkum, pesetum, frönskum frönkum og hollenskum gyllinum. Gjaldeyrir til námsmanna erlendis Innlendir gjaldeyris- reikningar Persónuleg og fjölþætt þjónusta okkar sparar þér sporin. p r

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.